Ferill 188. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 206  —  188. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 (gildistími ökuskírteinis).

Flm.: Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir, Karl Gauti Hjaltason.


1. gr.

    1. málsl. 3. mgr. 60. gr. laganna orðast svo: Gildistími fullnaðarskírteinis er 15 ár fyrir sömu flokka, sbr. þó a-lið 4. mgr. varðandi B-flokk, en þó fyrir umsækjanda sem orðinn er 60 ára tíu ár, 80 ára fimm ár og 90 ára og eldri tvö ár.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta er lagt fram í ljósi þess að lífaldur Íslendinga hefur undanfarna áratugi lengst ásamt því að hreysti fólks hefur almennt aukist og því eðlilegt að lögin taki tillit til þess þannig að eldri borgarar þurfi ekki að endurnýja ökuskírteini sín jafn ört og samkvæmt núgildandi lögum.
    Ökumenn 65 ára og eldri þurfa að endurnýja ökuskírteini sitt á eins til fimm ára fresti. Af því hlýst ómældur kostnaður fyrir einstaklingana og ríkið. Eldri ökumenn þurfa jafnframt að fara í læknisskoðun og afla vottorðs hjá heimilislækni á yfirfullum heilsugæslum með tilheyrandi flækjustigi.
    Flutningsmenn telja að með þessu frumvarpi verði eldri borgurum sem hafa hæfni til að aka gert léttara fyrir, létt verði á heilsugæslum landsins, fjármunir einstaklinga og ríkis sparist ásamt því að umstang hins opinbera minnki.