Ferill 190. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 208  —  190. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um greiningu og úrræði fyrir parkinsonsjúklinga og aðstandendur.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Hve margir einstaklingar eru greindir með parkinsonsjúkdóm á Íslandi og hvaða opinberu skráningar liggja til grundvallar þeirri tölu?
     2.      Hvaða sérhæfðu úrræði og þjónusta standa parkinsonsjúklingum til boða á mismunandi stigum sjúkdómsins?
     3.      Hvernig er stuðningur við aðstandendur parkinsonsjúklinga tryggður og hvaða þjónustu geta þeir leitað sér?
     4.      Hvaða áform eru uppi um að bæta skráningu, meðferð og stuðning við bæði parkinsonsjúklinga og aðstandendur?


Skriflegt svar óskast.