Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 211, 156. löggjafarþing 7. mál: siglingavernd (áhættumat hafnaraðstöðu).
Lög nr. 11 27. mars 2025.

Lög um breytingu á lögum um siglingavernd, nr. 50/2004 (áhættumat hafnaraðstöðu).


1. gr.

     A-liður 3. mgr. 4. gr. laganna orðast svo: staðfesta áhættumat útgerða fyrir íslensk skip og áhættumat hafna og gera áhættumat fyrir hafnaraðstöðu.

2. gr.

     Í stað 2. málsl. 1. mgr. 6. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Samgöngustofa gerir áhættumat fyrir hafnaraðstöðuna og staðfestir áhættumat hafnar. Samgöngustofa staðfestir verndaráætlun hafnaraðstöðu og hafnar.

3. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 19. mars 2025.