Ferill 209. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 232 — 209. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um skipun aðgerðahóps vegna almyrkva á sólu 12. ágúst 2026.
Flm.: Sigmar Guðmundsson, Eiríkur Björn Björgvinsson, Grímur Grímsson, Guðbrandur Einarsson, Ingvar Þóroddsson, Jón Gnarr, María Rut Kristinsdóttir, Pawel Bartoszek, Víðir Reynisson, Arna Lára Jónsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson, Ólafur Adolfsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Sigurður Helgi Pálmason, Ingibjörg Davíðsdóttir.
Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að skipa aðgerðahóp undir stjórn ríkislögreglustjóra um mat á helstu áhættuþáttum og skipulagningu aðgerða vegna almyrkva á sólu sem verður hinn 12. ágúst 2026.
Greinargerð.
Almyrkvinn mun ganga yfir 24 sveitarfélög, þar á meðal þau fjölmennustu. Gengur hann yfir íbúasvæði þar sem búa 290 þúsund manns.
Á þeim tíma er almyrkvinn gengur yfir eru gestakomur til landsins í hámarki. Þó má ætla að enn meiri ásókn verði vegna þessa viðburðar. Erfitt er að gera nákvæmar áætlanir en þó má taka mið af reynslu nágranna okkar í Færeyjum. Þar gekk almyrkvi á sólu yfir árið 2015 og áætlað er að þangað hafi um 11.500 manns komið gagngert til að berja atburðinn augum. Var þá ekki rými fyrir fleiri í landinu. Einnig er nærtækt að líta til reynslu Bandaríkjamanna af því þegar almyrkvi gekk þar yfir í ágústmánuði árið 2017. Í Oregon-fylki var til að mynda kallað út þjóðvarðlið til að sinna vegfarendum sem sátu fastir í umferð á leið frá sólmyrkvanum. Þar var þó um að ræða fjölmörg svæði þar sem því sem næst var gengið að heiðskírum himni vísum.
Nokkur samfélagsleg umræða hefur átt sér stað um áhrif erlendra gesta sem munu koma til landsins vegna almyrkvans. Minni umræða hefur verið um áhrif þess að þeir sem hér búa munu vilja sjá það stórkostlega náttúrufyrirbrigði sem sólmyrkvi er.
Eins og jafnan þegar um er að ræða slík fyrirbrigði eru ótal óvissuþættir sem taka þarf með í reikninginn. Bestu mögulegu aðstæður væru að heiðskírt verði á öllu vestanverðu landinu og fólk geti notið almyrkvans þar sem það er statt hverju sinni. Sú sviðsmynd er þó vel möguleg að fyrirsjáanleg birtuskilyrði verði takmörkuð við einungis hluta landsins, jafnvel svæði sem er vel utan alfaraleiðar. Verði reyndin sú eru yfirgnæfandi líkur á því að verulegur mannfjöldi muni hugsa sér til hreyfings. Ekki er bara um erlenda gesti að ræða. Reynsla annarra þjóða er sú að heimafólk á hverjum stað verður sífellt áhugasamara um almyrkva eftir því sem nær dregur atburðinum. Verði það raunin mun mikill fjöldi fólks streyma að einum tilteknum stað eða nokkrum stöðum, jafnvel þar sem engir innviðir eru til staðar til að flytja þetta fólk, veita því nauðsynlega þjónustu, svo sem salerni og veitingar, eða gæta öryggis þess. Vísa má á þá lærdóma sem dregnir voru af hátíðahöldum á Þingvöllum í tilefni 50 ára afmælis lýðveldisins.
Einnig verður að hafa í huga að umferð að almyrkvanum loknum verður veruleg áskorun. Til viðbótar við þá sem ferðast samdægurs til að berja almyrkvann augum mun fólk sem er tímanlega komið á viðkomandi stað hugsa sér til hreyfings um leið og almyrkvinn er yfirstaðinn.
Með tillögu þessari er mælst til þess að Alþingi feli dómsmálaráðherra að skipa aðgerðahóp sem greini mögulegar sviðsmyndir vegna almyrkva á sólu sem verður hinn 12. ágúst 2026. Gert er ráð fyrir að ríkislögreglustjóri leiði aðgerðahópinn og að hópnum komi helstu aðilar sem sinna lögbundnum verkefnum sem honum tengjast, auk annarra aðila sem ráðherra telur erindi eiga.