Ferill 210. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 233  —  210. mál.




Fyrirspurn


til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um Menningarfélag Akureyrar og Samkomuhúsið.

Frá Jóni Gnarr.


     1.      Eru fyrirhugaðar breytingar á árlegum framlögum ríkisins til Menningarfélags Akureyrar, með það að markmiði að efla leiklistarlíf á Akureyri?
     2.      Er ráðherra reiðubúinn til samtals og samstarfs við bæjaryfirvöld á Akureyri um viðhald og endurbætur á Samkomuhúsinu við Hafnarstræti?


Munnlegt svar óskast.