Ferill 215. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 238  —  215. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu).

Frá félags- og húsnæðismálaráðherra.


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „þrjá“ í 1. mgr. kemur: sex.
     b.      Í stað orðsins „þrjá“ í 2. mgr. kemur: sex.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. laganna:
     a.      Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr.:
                  1.      Á eftir orðunum „í tengslum við“ kemur: meðgönguna eða.
                  2.      Á eftir orðunum „veikindin rakin til“ kemur: meðgöngunnar eða.
     b.      Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Veikindi foreldris í tengslum við meðgöngu eða fæðingu barns.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 34. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „þrjá“ í 1. mgr. kemur: sex.
     b.      Í stað orðsins „þrjá“ í 2. mgr. kemur: sex.

4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 35. gr. laganna:
     a.      Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr.:
                  1.      Á eftir orðunum „í tengslum við“ kemur: meðgöngu eða.
                  2.      Á eftir orðunum „veikindin rakin til“ kemur: meðgöngunnar eða.
     b.      Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Veikindi foreldris í tengslum við meðgöngu eða fæðingu barns.

5. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 54. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „um hver áramót“ í 2. mgr. kemur: svo sem.
     b.      Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Endurskoðun fjárhæða.

6. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2025 og eiga við um foreldra sem rétt eiga til greiðslna samkvæmt lögum þessum.

7. gr.

    Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á 33. gr. laga um sorgarleyfi, nr. 77/2022:
     a.      Í stað orðanna „um hver áramót“ í 2. mgr. kemur: svo sem.
     b.      Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Endurskoðun fjárhæða.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta var unnið í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu (nú félags- og húsnæðismálaráðuneyti).
    Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá 21. desember 2024 kemur fram að ríkisstjórnin hafi í hyggju að gera breytingar á fæðingarorlofskerfinu til að styrkja afkomuöryggi fjölskyldna. Fram kemur að í því sambandi muni ríkisstjórnin m.a. bæta hag fjölburaforeldra og þeirra sem veikjast á meðgöngu eða í kjölfar fæðingar.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem eru liður í því að styrkja enn frekar fæðingarorlofskerfið hér á landi í því skyni að stuðla að betra jafnvægi milli atvinnuþátttöku foreldra og fjölskyldulífs.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Tilefni þykir til að auka rétt innan fæðingarorlofskerfisins fyrir foreldra sem fætt hafa barn í þeim tilvikum þegar foreldri glímir við veikindi í tengslum við meðgöngu eftir að barnið er fætt. Þykja rök þannig standa til þess að hið sama eigi að gilda hvað varðar rétt foreldris sem fætt hefur barn til fæðingarorlofs sem og fæðingarstyrks hvort sem alvarleg veikindi foreldrisins eru rakin til meðgöngunnar eða fæðingarinnar þegar veikindin verða til þess að foreldrið er ófært um að annast barn sitt í fæðingarorlofi. Er því lagt til að réttur til lengra fæðingarorlofs sem og aukins fæðingarstyrks vegna alvarlegra veikinda á meðgöngu sem vara fram yfir fæðingu barns verði tryggður innan fæðingarorlofskerfisins á sama hátt og réttur foreldris sem fætt hefur barn er tryggður vegna alvarlegra veikinda sem koma til vegna fæðingar barnsins.
    Einnig þykir tilefni til að bæta hag fjölburaforeldra, ekki í síst í ljósi þess að meðganga og fæðing fjölbura kann á margan hátt að vera frábrugðin meðgöngu og fæðingu einbura auk þess sem ljóst þykir að fjölburum fylgir aukið álag fyrir foreldra. Er því lagt til að sameiginlegur réttur fjölburaforeldra til fæðingarorlofs sem og fæðingarstyrks verði aukinn enn frekar.
    Þá þykir tilefni til að ríkisstjórninni verði unnt að samþykkja breytingar á fjárhæðum greiðslna til foreldra samkvæmt lögunum, til hækkunar, á öðrum árstímum en um áramót ef aðstæður krefjast þess.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Með frumvarpinu er lagt til að réttur til fæðingarorlofs sem og réttur til fæðingarstyrks vegna fjölburafæðinga verði aukinn enn frekar þannig að foreldrar eigi sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs eða greiðslu fæðingarstyrks í sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt sem fæðist lifandi. Einnig er lagt til að foreldrar sem frumættleiða eða taka í varanlegt fóstur fleiri börn en eitt á sama tíma eigi sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs eða greiðslu fæðingarstyrks í sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt.
    Með frumvarpinu er einnig lagt til að heimilt verði að lengja fæðingarorlof foreldris sem fætt hefur barn um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda foreldrisins í tengslum við meðgönguna, enda verði veikindin rakin til meðgöngunnar og foreldrið hafi af þeim völdum verið ófært um að annast barn sitt í fæðingarorlofi. Gert er ráð fyrir að hið sama eigi við hvað varðar rétt foreldra sem fætt hafa barn til fæðingarstyrks samkvæmt lögunum.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Frumvarpið þykir ekki fela í sér álitaefni sem kalla á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, eða alþjóðlegar skuldbindingar.

5. Samráð.
    Áform um frumvarpið voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 4. febrúar 2025 og var veittur frestur til og með 18. febrúar til að veita umsagnir um áformin (mál nr. S-18/2025). Alls bárust fjórar umsagnir um áformin sem komu til skoðunar við lokavinnslu frumvarpsins.
    Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 19. febrúar 2025 og var veittur frestur til og með 5. mars til að veita umsagnir um drögin (mál nr. S-36/2025). Alls bárust fjórar umsagnir um frumvarpið sem teknar voru til skoðunar en sú skoðun leiddi þó ekki til breytinga á efni frumvarpsins.

6. Mat á áhrifum.
    Efni frumvarpsins á við um foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur. Vinnumálastofnun fer með framkvæmd laga um fæðingar- og foreldraorlof og annast stofnunin umsýslu í tengslum við Fæðingarorlofssjóð. Við mat á áhrifum frumvarpsins er því m.a. byggt á upplýsingum og gögnum frá Vinnumálastofnun, þ.m.t. tölulegum upplýsingum um nýtingu foreldra á rétti þeirra til fæðingarorlofs.
    Samkvæmt tölulegum upplýsingum frá Vinnumálastofnun nýta mæður í ríkari mæli en feður sameiginlegan rétt foreldra til fæðingarorlofs. Þá er ljóst að nánast undantekningarlaust eru það konur sem ganga með og fæða börn. Má því ætla að frumvarpið hafi meiri áhrif á konur en karla.
    Gert er gert ráð fyrir að árleg fjárhagsáhrif á ríkissjóð verði um 115–185 millj. kr. auk þess sem gert er ráð fyrir viðbótarkostnaði á árinu 2025 sem nemur um 70–90 millj. kr. Þá er áætlaður kostnaður vegna umsýslu Vinnumálastofnunar við uppfærslu hugbúnaðarlausna um 500 þús. kr.

Um einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. gr.

    Í 15. gr. laganna er kveðið á um aukinn rétt til fæðingarorlofs vegna fjölburafæðinga. Kveðið er á um að foreldrar eigi sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs um þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt sem fæðist lifandi. Þá er í ákvæðinu mælt fyrir um að foreldrar sem frumættleiða eða taka í varanlegt fóstur fleiri börn en eitt á sama tíma eigi sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs um þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt.
    Hér er lagt til að réttur til fæðingarorlofs vegna fjölburafæðinga verði aukinn enn frekar þannig að foreldrar eigi sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs um sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt sem fæðist lifandi. Einnig er lagt til að foreldrar sem frumættleiða eða taka í varanlegt fóstur fleiri börn en eitt á sama tíma eigi sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs um sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt.
    Um nánari skýringar hvað þetta varðar vísast til umfjöllunar í 2. kafla.

Um 2. gr.

    Í 18. gr. laganna er kveðið á um að heimilt sé að lengja fæðingarorlof foreldris sem fætt hefur barn um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda foreldrisins í tengslum við fæðinguna enda verði veikindin rakin til fæðingarinnar og foreldrið hafi af þeim völdum verið ófært um að annast barn sitt í fæðingarorlofi sínu að mati sérfræðilæknis.
    Hér er lagt til það nýmæli að einnig verði heimilt að lengja fæðingarorlof foreldris sem fætt hefur barn um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda foreldrisins í tengslum við meðgönguna enda verði veikindin rakin til meðgöngunnar og foreldrið hafi af þeim völdum verið ófært um að annast barn sitt í fæðingarorlofi. Er þetta lagt til þar sem mikilvægt þykir að aukinn réttur til fæðingarorlofs vegna alvarlegra veikinda í tengslum við meðgöngu verði tryggður með sama hætti og vegna alvarlegra veikinda í tengslum við fæðingu. Þykja rök þannig standa til þess að hið sama gildi hvað varðar rétt foreldris sem fætt hefur barn til fæðingarorlofs hvort sem alvarleg veikindi foreldrisins eru rakin til meðgöngunnar eða fæðingarinnar þegar veikindin verða til þess að foreldrið er ófært um að annast barn sitt í fæðingarorlofi.
    Þá er gert ráð fyrir að fyrirsögn greinarinnar verði breytt til samræmis við þær breytingar sem lagðar eru til á efni greinarinnar.

Um 3. gr.

    Í 34. gr. laganna er kveðið á um aukinn rétt til fæðingarstyrks vegna fjölburafæðinga. Kveðið er á um að foreldrar eigi sameiginlegan rétt til fæðingarstyrks í þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt sem fæðist lifandi. Þá er í ákvæðinu mælt fyrir um að foreldrar sem frumættleiða eða taka í varanlegt fóstur fleiri börn en eitt á sama tíma eigi sameiginlegan rétt til fæðingarstyrks í þrjá mánuði fyrir hvert barn umfram eitt.
    Hér er lagt til að réttur til fæðingarstyrks vegna fjölburafæðinga verði aukinn enn frekar þannig að foreldrar eigi sameiginlegan rétt til fæðingarstyrks í sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt sem fæðist lifandi. Einnig er lagt til að foreldrar sem frumættleiða eða taka í varanlegt fóstur fleiri börn en eitt á sama tíma eigi sameiginlegan rétt til fæðingarstyrks í sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt.
    Um nánari skýringar hvað þetta varðar vísast til umfjöllunar í 2. kafla.

Um 4. gr.

    Í 35. gr. laganna er kveðið á um að heimilt sé að lengja rétt foreldris sem fætt hefur barn til fæðingarstyrks um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda foreldrisins í tengslum við fæðinguna enda verði veikindin rakin til fæðingarinnar og foreldrið hafi af þeim völdum verið ófært um að annast barn sitt í fæðingarorlofi sínu að mati sérfræðilæknis.
    Hér er lagt til það nýmæli að einnig verði heimilt að lengja rétt foreldris sem fætt hefur barn til fæðingarstyrks um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda foreldrisins í tengslum við meðgönguna enda verði veikindin rakin til meðgöngunnar og foreldrið hafi af þeim völdum verið ófært um að annast barn sitt í fæðingarorlofi. Er þetta lagt til þar sem mikilvægt þykir að aukinn réttur til fæðingarstyrks vegna alvarlegra veikinda í tengslum við meðgöngu verði tryggður með sama hætti og vegna alvarlegra veikinda í tengslum við fæðingu. Þykja rök þannig standa til þess að hið sama gildi hvað varðar rétt foreldris sem fætt hefur barn til fæðingarstyrks hvort sem alvarleg veikindi foreldrisins eru rakin til meðgöngunnar eða fæðingarinnar þegar veikindin verða til þess að foreldrið er ófært um að annast barn sitt í fæðingarorlofi.
    Þá er gert ráð fyrir að fyrirsögn greinarinnar verði breytt til samræmis við þær breytingar sem lagðar eru til á efni greinarinnar.

Um 5. gr.

    Í 2. mgr. 54. gr. laganna er kveðið á um að ráðherra sé heimilt, að fengnu samþykki ríkisstjórnar, að breyta til hækkunar fjárhæðum greiðslna til foreldris úr Fæðingarorlofssjóði, skv. 1. og 3. mgr. 24. gr., og greiðslna fæðingarstyrks, skv. 1. mgr. 38. gr., um hver áramót ef verulegar breytingar verða á launaþróun og þjóðhagsforsendum frá afgreiðslu fjárlaga. Mikilvægt þykir að ríkisstjórninni sé unnt að samþykkja breytingar á framangreindum fjárhæðum á öðrum árstímum en um áramót ef aðstæður krefjast þess og er því lagt til að ekki verði lengur nauðsynlegt að miða breytingar á umræddum fjárhæðum við áramót hverju sinni.

Um 6. gr.

    Gert er ráð fyrir að þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpi þessu öðlist gildi 1. júlí 2025 og eigi við um foreldra sem eiga rétt til greiðslna samkvæmt lögunum. Er þannig gert ráð fyrir að breytingarnar eigi við um alla foreldra sem eiga ónýttan rétt innan fæðingarorlofskerfisins 1. júlí 2025 óháð því hvenær börn fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur.

Um 7. gr.

    Í 2. mgr. 33. gr. laga um sorgarleyfi, nr. 77/2022, er kveðið á um að ráðherra sé heimilt, að fengnu samþykki ríkisstjórnar, að breyta til hækkunar fjárhæðum greiðslna til foreldris í sorgarleyfi, skv. 16. gr., og greiðslna sorgarstyrks, skv. 25. gr., um hver áramót ef verulegar breytingar verða á launaþróun og þjóðhagsforsendum frá afgreiðslu fjárlaga. Mikilvægt þykir að ríkisstjórninni sé unnt að samþykkja breytingar á framangreindum fjárhæðum á öðrum árstímum en um áramót ef aðstæður krefjast þess og er því lagt til að ekki verði lengur nauðsynlegt að miða breytingar á umræddum fjárhæðum við áramót hverju sinni. Er þetta í samræmi við þær breytingar sem lagðar eru til í 5. gr. frumvarps þessa hvað varðar heimildir ráðherra til að breyta til hækkunar fjárhæðum greiðslna samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Almennt þykir mikilvægt að fjárhæðir á grundvelli laga um fæðingar- og foreldraorlof annars vegar og laga um sorgarleyfi hins vegar séu þær sömu á hverjum tíma þannig að foreldrar verði ekki fyrir tekjufalli í þeim tilvikum þegar greiðslur samkvæmt lögum um sorgarleyfi taka við af greiðslum samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof.