Ferill 216. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 239 — 216. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um niðurlagningu menningar- og viðskiptaráðuneytisins.
Frá Ingibjörgu Isaksen.
1. Hver er sundurliðun 240 millj. kr. áætlaðs sparnaðar vegna niðurlagningar skrifstofu ráðuneytisstjóra og skrifstofu fjármála og gæðamála menningar- og viðskiptaráðuneytisins sem fjallað er um í minnisblaði ráðuneytisins frá 18. febrúar 2025?
2. Hver er sundurliðun 107 millj. kr. sparnaðar sem hlýst af því að fækka um einn ráðherra og tvo aðstoðarmenn?
3. Í hverju felst 15 millj. kr. sparnaður hjá Umbru vegna færri ráðherra?
4. Hvað felst í þeirri óvissu sem vísað er til í tengslum við niðurlagningu ráðuneytisins? Getur niðurstaðan orðið minni sparnaður vegna niðurlagningar ráðuneytisins?
5. Hver eru helstu verkefni starfsmanna þeirra 6,8 stöðugilda sem færast til innan Stjórnarráðsins og hvernig er gert ráð fyrir að finna þeim varanlega stöðu innan kerfisins?
6. Hvaða stöðugildi leggjast af og hefur lögmæti áætlaðra uppsagna eða starfsloka verið metið?
7. Hefur kostnaður við fækkun verkefna við þessar breytingar verið skilgreindur, umfram kostnað vegna starfsmannahalds?
8. Hefur eðlilegur umbreytingarkostnaður verið metinn? Ef svo er, hefur hann verið sundurgreindur, svo sem í flokka eins og húsnæði, aðlögun að nýju umhverfi, húsgögn og fleira?
9. Hafa tímabundin áhrif flutninga starfsfólks verið metin að einhverju leyti, t.d. ef fresta þarf ákvörðunum eða verkefnum vegna illa undirbúins flutnings?
10. Er gert ráð fyrir frekari aðgerðum til hagræðingar í kjölfar niðurlagningar menningar- og viðskiptaráðuneytisins?
Skriflegt svar óskast.