Ferill 222. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 246 — 222. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um hljóðvist.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hversu mörg heimili á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni liggja á svæðum þar sem hávaði fer yfir heilsuspillandi mörk samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum og íslenskum reglum þar um?
2. Hversu oft hefur Umhverfisstofnun eða sveitarfélög gert mælingar á hávaða undanfarin fimm ár og hversu oft hefur verið gripið til úrbóta í kjölfarið?
3. Hverjar eru áætlanir ríkisstjórnarinnar til að bæta hljóðvist í íbúðarhverfum og á svæðum þar sem fólk dvelur, svo sem vinnustöðum, skólum og leikskólum?
4. Hefur ráðherra í hyggju að herða reglur um hávaðamörk í samræmi við alþjóðleg viðmið og tryggja virkara eftirlit með þeim?
5. Hefur verið metið hvort stjórnvöld beri ábyrgð á skaða sem íbúar kunna að hafa orðið fyrir vegna vanrækslu á að tryggja ásættanlega hljóðvist?
Skriflegt svar óskast.