Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 247, 156. löggjafarþing 3. mál: heilbrigðisþjónusta o.fl. (fækkun hæfnisnefnda).
Lög nr. 12 29. mars 2025.

Lög um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu og lögum um landlækni og lýðheilsu (fækkun hæfnisnefnda).


I. KAFLI
Breyting á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.

1. gr.

     2. mgr. 9. gr. laganna fellur brott.

2. gr.

     36. og 37. gr. laganna falla brott, ásamt fyrirsögnum.

II. KAFLI
Breyting á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

3. gr.

     Orðin „að fengnu mati nefndar skv. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu“ í 2. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna falla brott.

4. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 24. mars 2025.