Ferill 125. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Nr. 4/156.

Þingskjal 249  —  125. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 167/2024 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn og nr. 181/2024 um breytingu á bókun 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins og bókun 37 sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr. við EES-samninginn.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 167/2024 frá 5. júlí 2024 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/123 frá 25. janúar 2022 um að styrkja hlutverk Lyfjastofnunar Evrópu að því er varðar viðbúnað við krísu og krísustjórnun varðandi lyf og lækningatæki.
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2024 frá 5. júlí 2024 um breytingu á bókun 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins og bókun 37 sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr. við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2371 frá 23. nóvember 2022 um alvarlegar heilsufarsógnir sem ná yfir landamæri og niðurfellingu ákvörðunar nr. 1082/2013/ESB.

Samþykkt á Alþingi 24. mars 2025.