Ferill 100. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 254 — 100. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998 (EES-reglur, einnota plastvörur).
(Eftir 2. umræðu, 25. mars.)
1. gr.
a. Á undan 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Eftirfarandi einnota plastvörur sem eru með tappa eða lok úr plasti er einungis heimilt að setja á markað ef tapparnir og lokin eru áfram föst við vörurnar meðan á tilætlaðri notkun þeirra stendur: drykkjarílát að rúmmáli allt að þremur lítrum sem eru notuð undir vökva, þ.m.t. tappar þeirra og lok, svo sem flöskur fyrir drykkjarvörur og samsettar umbúðir fyrir drykkjarvörur. Ákvæði þetta tekur ekki til bolla og glasa fyrir drykkjarvörur, drykkjaríláta úr gleri eða málmi sem eru með tappa eða lok úr plasti, drykkjaríláta sem eru ætluð fyrir og notuð undir matvæli sem eru í vökvaformi og notuð í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi eða til tappa eða loka úr málmi sem eru með innsigli úr plasti.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Gerð og samsetning einnota plastvara.
2. gr.
a. Við bætist ný grein, 72. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Innleiðing.
b. Fyrirsögn kaflans verður: Innleiðing og gildistaka.
3. gr.