Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 267 — 236. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um fyrirkomulag og umfang upplýsingatækni hjá ríkinu.
Frá Degi B. Eggertssyni.
1. Hversu margir aðilar kaupa inn hvers kyns vörur eða þjónustu á sviði upplýsingatækni og stafrænna mála á vegum ráðuneytisins og undirstofnana? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum.
2. Hefur ráðuneytið og undirstofnanir þess á að skipa sérhæfðu starfsfólki vegna innkaupa á upplýsingatækni eða stafrænna mála? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum.
3. Hver var heildarrekstrarkostnaður og fjárfestingarkostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess árin 2021, 2022, 2023 og 2024 vegna upplýsingatæknireksturs og stafrænna mála? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum eða kostnaðarstöð og því hvort um er að ræða fjárfestingu eða rekstur. Einnig er óskað eftir að sá hluti rekstrar- og fjárfestingarkostnaðar sem telst vöru- eða þjónustukaup verði flokkaður eftir tegund innkaupa (lausafjárkaup, útboð, rammasamningar o.s.frv.) og hvort þau kaup voru með aðstoð Ríkiskaupa (Fjársýslunnar) eða annarra og þá hverra.
4. Hvað starfar margt starfsfólk annars vegar og verktakar hins vegar á sviði upplýsingatækni eða stafrænna mála á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum.
5. Hversu margt fólk starfar við hugbúnaðargerð eða þróun, svo sem fram- eða bakendaforritun, á vegum ráðuneytisins og undirstofnana þess? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og stofnunum.
6. Sér ráðherra sér hag í eða hefur hann áform um að auka samþættingu og hagræðingu varðandi stafræn mál innan opinberrar stjórnsýslu? Ef svo er, yrðu slík áform hugsuð fyrir bæði stjórnsýslustig?
Skriflegt svar óskast.