Ferill 247. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 278 — 247. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um netsölu áfengis.
Frá Ingibjörgu Isaksen.
1. Telur ráðherra nauðsynlegt að grípa til einhverra aðgerða, með hliðsjón af lýðheilsu- og forvarnasjónarmiðum, vegna netsölu áfengis og afhendingar þess til neytenda í fjölda verslana, annarra en verslana ÁTVR?
2. Telur ráðherra að framangreind sala og afhending áfengis sé í samræmi við gildandi áfengis- og vímuvarnastefnu og gildandi lýðheilsustefnu?
Skriflegt svar óskast.