Ferill 249. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 280  —  249. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um rekstur ÁTVR og lýðheilsumarkmið.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Telur ráðherra eðlilegt að rekstur ÁTVR falli undir málefnasvið fjármála- og efnahagsráðherra í ljósi þess að reksturinn grundvallast á lögum um verslun með áfengi og tóbak, nr. 86/2011, en lýðheilsumarkmið þeirra laga byggjast m.a. á að bæta lýðheilsu og á samfélagslegri ábyrgð, að takmarka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks?
     2.      Telur ráðherra eðlilegra og heppilegra að rekstur ÁTVR væri á málefnasviði annars ráðherra og ef svo er, hvaða ráðherra?


Skriflegt svar óskast.