Ferill 139. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 285  —  139. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni um ofanflóðasjóð.


     1.      Hver er reynslan af ofanflóðasjóði og umgjörð um hann til forvarna vegna snjóflóða?
    Reynsla af ofanflóðasjóði til forvarna er góð. Ofanflóðasjóður hefur nýst til þess að framfylgja lögum nr. 49/1997, um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, reglugerð nr. 505/2000, um hættumat vegna ofanflóða og flokkun og nýtingu hættusvæða, og reglugerð nr. 636/2009, um hættumat vegna snjóflóða á skíðasvæðum, nema hvað uppbygging varna, sem ljúka átti 2010, hefur dregist (sjá nánar í svari við 3. tölul. fyrirspurnarinnar).
    Fé ofanflóðasjóðs skal nota til að greiða kostnað við varnir gegn ofanflóðum og rekstur sjóðsins og ofanflóðanefndar. Sá kostnaður er sundurliðaður í 13. gr. laga nr. 49/1997. Hann skiptist í kostnað við hættumat og hættumatsnefndir, mælitæki og rannsóknir sem miða að því að bæta hættumat og hönnun varnarvirkja og styðja við eftirlit með ofanflóðahættu, undirbúning og framkvæmdir við varnarvirki, viðhald varnarvirkja og kaup, og eignarnám eða flutning á húseignum.
    Að jafnaði eru um 80–90% af fjárheimildum ofanflóðasjóðs nýtt í undirbúning og framkvæmdir við varnarvirki eða uppkaup íbúðarhúsa á hættusvæðum í þéttbýli og einstaka sveitabæja á hættusvæðum í dreifbýli. Uppbygging varna í þéttbýli hefur að mestu fylgt niðurstöðum skýrslu um þörf fyrir snjóflóðavarnarvirki á Íslandi frá árinu 1996, en í henni voru möguleikar á snjóflóðavörnum athugaðir fyrir tíu þéttbýlisstaði á þekktum snjóflóðasvæðum og mat lagt á kostnað við þær varnir. Í dag hefur verið gripið til aðgerða á öllum þessum stöðum og á fimm stöðum til viðbótar þar sem áhætta reyndist yfir viðmiðunarmörkum. Alls hafa fallið 58 snjóflóð á nýlega varnargarða víðs vegar á landinu en langflest flóð hafa lent á varnargörðum á Flateyri (sjá mynd 1). Sum þessara flóða hefðu náð í eða niður undir byggð. Flóð sem annars vegar lentu á görðunum á Flateyri árið 2020 og bárust að hluta yfir þá og hins vegar á keilum og görðum í Neskaupstað árið 2023 hefðu líklega náð inn í byggð hefðu varnarvirki ekki verið komin. Varnirnar hafa því sannað gildi sitt en jafnframt sýnt að hönnun slíkra mannvirkja fylgir óvissa og hætta neðan varna hverfur ekki alveg.
    Forgangsröðun uppbyggingar hefur verið þannig að byrjað hefur verið á vörnum á þeim svæðum þar sem flest hús eru í bráðri hættu (hættusvæði C), hafi það verið mögulegt. Sjóðurinn hefur ekki verið nýttur til þess að verja atvinnusvæði, þar sem með setningu laganna var lögð áhersla á að verja fólk á heimilum sínum, þar sem það dvelur flestum stundum og uppsöfnuð áhætta er mest.
    Að jafnaði eru um 10–20% af fjárheimildum sjóðsins nýtt í önnur lögbundin verkefni. Þeirra helst er vinna vandaðs hættumats í þéttbýli, á skíðasvæðum (frá árinu 2009) og úttekt á hættu í dreifbýli. Hættumat kemur í veg fyrir að byggð þróist inn á hættuleg svæði og kalli á síðari tíma varnir.
    Umgjörð ofanflóðasjóðs hefur reynst skilvirk og farsæl. Hættumat hefur verið unnið og varnir hafa risið nokkuð áfallalaust í öllum þeim 15 bæjum þar sem íbúðarhús eru í mestri hættu. Hlutverkaskipting hefur einnig verið nokkuð skýr milli aðila, þ.e. ráðuneytisins, ofanflóðanefndar, Veðurstofu Íslands, almannavarna, almannavarnanefnda, hættumatsnefnda, sveitarfélaga, Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna og ráðgjafa/hönnuða. Samningar eru í gildi við Veðurstofu Íslands um kaup á vinnu fyrir ofanflóðasjóð á grundvelli árlegrar kostnaðar- og verkáætlunar. Að mati Veðurstofunnar leiðir fyrirkomulagið til skýrrar forgangsröðunar verkefna innan stofnunarinnar.
    Reynsla af framkvæmd laga nr. 49/1997 er góð. Hins vegar voru lögin sett fyrir um 30 árum og tíminn hefur leitt í ljós þörf á breytingum. Tímabært er að skýra og uppfæra ákveðin atriði í lögum og reglugerðum. Á það er m.a. bent af hálfu ráðuneytisins í hraðúttekt Ríkisendurskoðunar á ofanflóðasjóði frá 2024. Einnig má nefna kostnaðarhlutdeild sveitarfélaga við fyrirsjáanlegt viðhald mannvirkja. Enn fremur þarf að taka ákvörðun um hvort ráðast eigi í varnir gegn ofanflóðum á atvinnusvæðum, þegar uppbyggingu varna í þéttbýli lýkur, á grundvelli skýrslu um mat á þörf fyrir varnarvirki og viðbúnað vegna ofanflóða á atvinnusvæðum á Íslandi frá árinu 2023 og úttektar á hættu í dreifbýli. Loks er tímabært að móta heildstæða stefnu um náttúruvá á Íslandi, byggða á stöðumati um náttúruvá frá 2023, og hlut ofanflóðasjóðs í þeirri heildarmynd.
         
     Mynd 1. Rauðar útlínur snjóflóða sem fallið hafa úr upptakasvæðum ofan Flateyrar frá því að varnargarðar risu árið 1999, ásamt jafnáhættulínum í byggð (C-lína er bleik, B-lína er blá og A-lína er gul). Heildregnar jafnáhættulínur endurspegla gildandi mat á hættu og strikalínur endurspegla hættu eins og hún var fyrir snjóflóðin sem féllu í janúar 2020 og bárust að hluta yfir garðana. Teikning úr frumathugunarskýrslu Verkís hf. vegna endurgerðar varna á Flateyri.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




    
     2.      Hvað er langt í land varðandi greiningar, áhættumat og framkvæmdir til að uppfylla markmiðin með ofanflóðasjóði?
    Áhættumati fyrir þéttbýlisstaði aðra en Hveragerði lauk árið 2024 og verið er að ljúka endurskoðun hættumats undir vörnum sem þegar hafa risið. Áhættumat á skíðasvæðum er skemur á veg komið. Hættumati er lokið fyrir Hlíðarfjall og Oddsskarð og hættumat fyrir Bláfjöll og Skálafell er í umsagnar- og kynningarferli. Úttekt á hættu í dreifbýli er styst á veg komin. Hún hefur verið unnin eða er í vinnslu fyrir Eyjafjarðarsveit, Öxnadal og Hörgárdal, Skagafjörð austan Vatna og í Syðridal í Bolungarvík. Ofanflóðasögu hefur verið safnað fyrir fleiri byggðir en langt er í land með að hættuúttektin verði landsþekjandi. Til viðbótar er í vinnslu gerð varúðarkorta vegna snjóflóða. Þau sýna hvar snjóflóðahætta gæti verið til staðar. Þau munu nýtast við að kortleggja þau svæði í dreifbýli sem þurfa nánari könnun á ofanflóðahættu. Yfirlit um þetta má sjá í viðauka 1.
    Vinnu við áhættumat lýkur í raun aldrei, þar sem fyrirsjáanlegt er að endurskoða þurfi hættumat reglubundið t.d. vegna betri ofanflóðasögu, breytts byggðamynsturs, nýrra áhættuviðmiða, tilkomu betri reiknilíkana, í kjölfar óvæntra flóðaatburða eða breytts veðurfars. Því er nú talin ástæða til þess að endurskoða hættumat í þéttbýli með tilliti til skriðuhættu. Áhersla fram til þessa hefur verið á ofanflóðahættu í byggð og á skíðasvæðum en huga þarf að ofanflóðahættu á fleiri stöðum, eins og vinsælum ferðamannastöðum, vegum, tímabundnum vinnubúðum o.fl. Áhættuviðmið hafa ekki verið sett fyrir slík svæði en afar mikilvægt er að það verði gert.
    Framkvæmdir við ofanflóðavarnir eru langt komnar. Lokið hefur verið við að reisa um 70% þeirra varna sem þarf til að verja íbúðarhús í þéttbýli (36 verkefni). Kostnaður við þær varnir sem hafa risið er metinn um 40 milljarðar kr. á verðlagi ársins 2024. Fjögur verkefni eru í framkvæmd og tíu varnarverkefni eru í undirbúningi. Kostnaður við þau er áætlaður um 24 milljarðar kr. Sum þeirra eru tæknilega flókin, hlutfallslega dýr og hafa verið lengi í hönnun. Þörf er á að endurgera eða bæta varnir sem þegar hafa verið byggðar á nokkrum stöðum í kjölfar endurskoðunar á hættu undir varnargörðum. Sem dæmi hófst vinna við endurbætur varna á Flateyri á síðasta ári og áætlað er að hefja endurbætur upptakastoðvirkja í Drangagili í Neskaupstað í sumar. Kostnaður við þau verkefni er metinn tæplega 10 milljarðar kr. á verðlagi ársins 2024. Sjá nánara yfirlit í viðauka 1 og á mynd 2.
    Að lokum er vert að halda því til haga að uppbyggingu varna verður aldrei lokið að fullu þar sem sífellt þarf að vera hægt að bregðast við og læra af óvæntum atburðum, líkt og snjóflóðum sem fóru að hluta yfir varnargarða á Flateyri í byrjun árs 2020, skriðuföllum á Seyðisfirði í lok árs 2020 og líklegri aukningu á skriðuvirkni vegna loftslagsbreytinga. Einnig er viðbúið að aukin þekking á virkni varna og betri reiknilíkön kalli á endurskoðun varnarvirkja. Viðhaldsþörf mun aukast með tímanum. Ending stoðvirkja úr stáli á upptakasvæðum er takmörkuð vegna tæringar og þau eru útsett fyrir skemmdum af völdum t.d. grjóthruns. Eins miðast líftími netgrindakerfa brattra varnargarða við 100 ár en búast má við að garðarnir standi mun lengur. Verði varnir fyrir hraðskreiðum snjóflóðum má gera ráð fyrir að þær geti laskast staðbundið, sér í lagi keilur sem geta orðið fyrir miklu álagi. Árlegur kostnaður vegna viðhalds, vöktunar og endurbóta hefur ekki verið metinn en gæti numið um 400–700 millj. kr. á ári, miðað við 100–200 ára líftíma mannvirkjanna.

     Tafla 1. Fjöldi varnarvirkja sem reist hafa verið og fyrirhugað er að reisa. Kostnaður er á verðlagi ársins 2024. Ekki er um nákvæmar tölur að ræða.
    
Varnir Þvergarðar Leiðigarðar/ leiðiveggir Keilur Stoðvirki (km) Snjósöfnunargrindur (km) Kostn. (milljarðar kr.)
1995–2024 23 15 81 13,5 0,5 40
2025–2034 14
5, þar af 2 að klárast
60 2,4 2–4 32
Samtals 37 20 141 15,9 2–4 72

     Mynd 2.     Fjöldi verkefna ofanflóðasjóðs og kostnaður við þau á verðlagi ársins 2024.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



     3.      Hvernig er ofanflóðasjóður búinn undir það fjárhagslega að takast á við framangreind verkefni?
    Ofanflóðasjóður er vel í stakk búinn til að takast á við verkefnin. Innheimtar tekjur ríkissjóðs af ofanflóðagjaldi hafa um langt skeið verið hærri en fjárheimildir sjóðsins. Framkvæmdageta hefur um langt skeið verið meiri en fjárheimildir endurspegla. Í viðauka 2 er áskorun til stjórnvalda frá 2019 um að flýta uppbyggingu ofanflóðavarna.
    Auk lögbundinna verkefna hafa fjárheimildir sjóðsins verið nýttar til þess að greiða kostnað Veðurstofu Íslands við gerð hættumats vegna vatns- og sjávarflóða og eldgosa á grundvelli bráðabirgðaákvæðis frá árinu 2014.

VIÐAUKI 1

Yfirlit yfir stöðu hættumats í þéttbýli.
     Kjalarnes, lokið 2015.
     Mosfellsbær, lokið 2011.
     Snæfellsbær. Ólafsvík, lokið 2004, endurskoða þarf hættumat eftir að varnir voru reistar.
     Vesturbyggð. Patreksfjörður, lokið 2003. Endurskoða þarf hættumat þegar búið er að klára að reisa varnir fyrir bæinn. Tálknafjörður, lokið 2008. Endurskoða þarf hættumat þegar varnir verða reistar. Bíldudalur, lokið 2004, endurskoðað 2018. Endurskoða þarf hættumat þegar búið er að klára að reisa varnir fyrir bæinn.
     Ísafjarðarbær. Þingeyri, lokið 2005. Flateyri, fyrsta hættumat 2004, endurskoðað hættumat 2020. Endurskoða þarf hættumat þegar varnir hafa verið bættar. Ísafjörður, lokið 2003, endurskoðað 2008 og 2012. Endurskoðun hættumats vegna varna er í vinnslu. Suðureyri, lokið 2005.
     Bolungarvík, lokið 2003. Endurskoðun hættumats vegna varna er í vinnslu.
     Súðavík, lokið 2005.
     Kaldrananeshreppur. Drangsnes, lokið 2009.
     Skagafjörður. Sauðárkrókur, lokið 2016.
     Fjallabyggð. Siglufjörður, lokið 2002. Endurskoðun hættumats vegna varna er í vinnslu. Ólafsfjörður, lokið 2005. Endurskoðun hættumats vegna varna er í vinnslu.
     Akureyri, lokið 2010.
     Múlaþing. Seyðisfjörður, lokið 2002, endurskoðað 2019 og 2021. Endurskoða þarf hættumat þegar varnir hafa verið reistar
     Fjarðabyggð. Neskaupstaður, lokið 2002. Endurskoðun hættumats vegna varna er í vinnslu fyrir hluta bæjarins. Eskifjörður, lokið 2002. Endurskoðun snjóflóðahættumats er í vinnslu, endurskoðun skriðuhættumats er að hefjast, endurskoða þarf hættumat vegna varna. Fáskrúðsfjörður, lokið 2006. Endurskoða þarf hættumat vegna varna. Stöðvarfjörður, lokið 2024.
     Skaftárhreppur. Kirkjubæjarklaustur, lokið 2010.
     Mýrdalshreppur. Vík í Mýrdal, lokið 2010.
    
Yfirlit yfir stöðu hættumats á skíðasvæðum.
    Hættumati lokið fyrir Hlíðarfjall og Oddsskarð.
    Drög að hættumat eru tilbúin fyrir Bláfjöll og Skálafell.
    Hættumat er í vinnslu fyrir skíðasvæðið á Ísafirði (lýkur 2025) og hafið fyrir Stafdal.
    Eldri drög hættumats eru til fyrir Tindastól og Skarðsdal.
    Ekki er hafin vinna við hættumat fyrir Tindaöxl, Böggvisstaðafjall, Kröflu og Húsavík.
    
Yfirlit yfir stöðu hættumats í dreifbýli.
     Önundarfjörður og Dýrafjörður. Ofanflóðasögu hefur verið safnað. Könnun á ofanflóðahættu hefur verið gerð fyrir þrjá bæi sem taldir eru í mestri hættu.
     Syðridalur, Bolungarvík. Könnun lokið, skýrsla kemur út á árinu.
     Skagafjörður vestan Vatna. Ofanflóðasögu hefur verið safnað.
     Skagafjörður austan Vatna. Könnun á ofanflóðahættu lokið.
     Austur-Húnavatnssýsla. Ofanflóðasögu hefur verið safnað.
     Skagi. Ofanflóðasögu hefur verið safnað.
     Fnjóskadalur. Ofanflóðasögu hefur verið safnað.
     Öxnadalur og Hörgárdalur. Könnun á ofanflóðahættu lokið.
     Ólafsfjörður. Ofanflóðasögu hefur verið safnað.
     Eyjafjarðarsveit. Könnun á ofanflóðahættu lýkur á árinu.
     Kaldakinn. Ofanflóðasögu hefur verið safnað.
     Jökuldalur. Ofanflóðasögu hefur verið safnað.
     Fljótsdalur. Ofanflóðasögu hefur verið safnað.
     Skriðdalur. Ofanflóðasögu hefur verið safnað.
     Mýrdalur og byggð undir Eyjafjöllum. Söfnun ofanflóðasögu er hafin.
    
Yfirlit yfir þéttbýlisstaði þar sem lagt er til að skriðuhætta verði endurmetin.
    Ísafjörður, Suðureyri, Bíldudalur, Patreksfjörður, Bolungarvík, Sauðárkrókur, Siglufjörður, Akureyri, Neskaupstaður, Eskifjörður, Fáskrúðsfjörður.
    
Yfirlit yfir svæði þar sem varnir hafa risið eða hús keypt upp.
     Snæfellsbær. Ólafsvík. Farvegur Bæjarlækjar, á upptakasvæði í Tvísteinahlíð í Ólafsvík.
     Vesturbyggð. Á Patreksfirði hafa varnargarðar risið ofan sjúkrahúss og skóla, ofan hafnar við Urðir, Hóla og Mýrar, við neðri hluta Litladalsár og á upptakasvæði Stekkagils. Á Bíldudal hafa varnargarðar risið undir Búðargili og á Tálknafirði hafa verið uppkaup undir Geitárhorni.
     Ísafjarðarbær. Á Flateyri hafa varnargarðar risið undir Innra-Bæjargili og Skollahvilft. Á Ísafirði hafa varnargarðar risið undir Seljalandshlíð, undir Kubba og í upptakasvæði snjóflóða í Kubba og undir Gleiðarhjalla. Í Hnífsdal var byggð undir Búðarhyrnu keypt upp.
     Bolungarvík. Varnargarðar hafa risið undir Traðarhyrnu.
     Súðavík. Byggð undir Súðarvíkurhlíð var flutt.
     Fjallabyggð. Á Siglufirði hafa stoðvirki risið í upptakasvæðum Hafnarhyrnu og Gróuskarðshnjúks og varnargarðar undir Hafnarhyrnu, Strengsgili og Jörundarskál. Í Ólafsvík hefur varnargarður risið ofan Hornbrekku.
     Eyjafjarðarsveit. Varnargarður ofan Grænuhlíðar.
     Múlaþing. Á Seyðisfirði hafa varnargarðar risið á Bjólfsbrún.
     Fjarðabyggð. Á Eskifirði hafa garðar risið meðfram Lambeyrará, Ljósá, Hlíðarendaá og Bleiksá. Á Fáskrúðsfirði hafa varnargarðar risið ofan byggðar við Nýjabæjarlæk. Í Neskaupstað hafa varnir risið undir Drangagili, Tröllagili, Miðstrandarskarði, Urðarbotnum og Sniðgili. Á upptakasvæðum Tröllagilja og Drangagils hafa verið sett upp stoðvirki.
    
Yfirlit framkvæmda sem eru í gangi eða er fyrirhugað að hefjist árið 2025.
     Snæfellsbær. Endurbætur Bæjargilsfarvegar og leiðiveggja.
     Vesturbyggð. Á Patreksfirði verður lokið við endanlegan frágang bráðavarna í Stekkagili og varnargarða ofan hafnar. Á Bíldudal er fyrirhugað að hefja lokaáfanga í uppbyggingu varna fyrir byggðina árið 2025.
     Ísafjarðarbær. Á Flateyri er unnið að endurbótum varna.
     Múlaþing. Á Seyðisfirði er unnið að uppbyggingu varna á þremur svæðum undir Bjólfi.
     Fjarðabyggð. Í Neskaupstað er verið að byggja garða undir Nes- og Bakkagiljum (síðustu fyrirhuguðu nýframkvæmdir í Neskaupstað). Fyrirhugað er að hefja endurbætur á stoðvirkjum í upptakasvæði Drangagils árið 2025.
    
Yfirlit yfir staði þar sem framkvæmdir við uppbyggingu varna hafa ekki hafist.
    Verkefnin eru mislangt komin í undirbúningi.
     Vesturbyggð. Varnir á Patreksfirði undir Stekkagili, við Sigtún og í efri hluta Litladalsár. Varnargarðar á Tálknafirði undir Geitárhornum.
     Ísafjarðarbær. Undir Bakkahyrnu í Hnífsdal.
     Múlaþing. Undir Botnahlíð á Seyðisfirði.
     Fjarðabyggð. Meðfram Grjótá á Eskifirði.
    
Fyrirsjáanlegar eru endurbætur á vörnum á eftirtöldum stöðum.
     Snæfellsbær. Upptakastoðvirki í Tvísteinahlíð.
     Vesturbyggð. Á Patreksfirði er verið að prófa virkni snjósöfnunargrinda á fjallstoppi til þess að styrkja varnir ofan og við höfnina. Virkni hingað til er takmörkuð.
     Ísafjarðarbær. Á Flateyri er verið að prófa virkni snjósöfnunargrinda á fjallstoppi til þess að draga úr snjósöfnun í upptakasvæði ofan byggðar. Prófun lofar góðu.
     Bolungarvík. Varnargarðar hafa valdið auknu vindálagi á hús í byggð undir görðunum og til greina kemur að reisa vindveggi til þess að bregðast við því.
     Fjarðabyggð. Bæta þarf við varnarkeilum undir Drangagili og viðhalda eða endurbyggja núverandi keilur. Bæta þarf virkni leiðigarðs undir Miðstrandarskarði.
     Fjallabyggð. Bæta þarf varnargarða undir Hafnarhyrnu og leiðigarð undir Strengsgili og Jörundarskál.

VIÐAUKI 2


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.