Ferill 166. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 305  —  166. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um framkvæmdir við Bárðardalsveg.


     1.      Hefur útboð á framkvæmdum við Bárðardalsveg farið fram? Ef svo er ekki, hvenær er þess að vænta?
    Útboð á framkvæmdum við Bárðardalsveg hefur ekki farið fram. Í gildandi samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034 sem samþykkt var á Alþingi í júní 2020 var gert ráð fyrir framkvæmdum við Bárðardalsveg á árunum 2025–2029.
    Bárðardalsvegur vestri er um 37 km langur. Í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 sem ekki var afgreidd af Alþingi var gert ráð fyrir 500 millj. kr. á árunum 2024–2026 til framkvæmda við Bárðardalsveg vestri á um 3 km kafla frá Hringvegi að Öxará. Um er að ræða ný vegamót við Hringveg, byggingu nýs Bárðardalsvegar vestri auk nýrrar 8 m langrar brúar yfir Öxará.
    Í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 var einnig gert ráð fyrir framkvæmdum við 34 km Bárðardalsvegar á árunum 2029–2038.
    Vegagerðin er langt komin með undirbúning að fyrsta áfanga verksins frá Hringvegi að Öxará og miðast sá undirbúningur við að sá hluti verksins komi til framkvæmda árið 2026. Tímasetning framkvæmda birtist í nýrri samgönguáætlun en stefnt er að því að leggja hana fram á haustþingi 2025.

     2.      Stendur til að hefja framkvæmdir við veginn á yfirstandandi ári?
    Ekki stendur til að hefja framkvæmdir við veginn á yfirstandandi ári.