Ferill 148. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 309  —  148. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, nr. 160/2008 (heiti stofnunar).

Frá velferðarnefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, ÖBÍ réttindasamtökum og Blindrafélaginu.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Með frumvarpinu er lagt til breytt heiti þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Lagt er til að nýtt heiti stofnunarinnar verði Sjónstöðin.
    Við umfjöllun nefndarinnar um málið kom fram almenn ánægja með þá breytingu sem er lögð til með frumvarpinu. Heiti stofnunarinnar er í dag langt og óþjált, en sú tillaga sem fram kemur í frumvarpinu hins vegar lýsandi og nú þegar notast við þegar vísað er til stofnunarinnar í daglegu tali.

    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 31. mars 2025.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,
form.
Jónína Björk Óskarsdóttir,
frsm.
Kristján Þórður Snæbjarnarson.
Eiríkur Björn Björgvinsson. Rósa Guðbjartsdóttir. Sigríður Á. Andersen.
Eydís Ásbjörnsdóttir. Njáll Trausti Friðbertsson. Ingibjörg Isaksen.