Ferill 253. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 312 — 253. mál.
1. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993 (rekstur líkhúsa).
Frá Bryndísi Haraldsdóttur.
Á undan 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
a. 2. mgr. orðast svo:
Búa ber um öskuna í þar til gerðum duftkerum úr forgengilegu efni. Heimilt er að grafa kerin niður í grafarstæði eða leggja þau í leiði ef vandamenn, er greinir í 1. mgr. 47. gr., óska þess. Sé ákveðið að grafa duftker skal dýpt duftkersgrafar vera um 1 metri.
b. 4. mgr. orðast svo:
Virða ber ósk hins látna um hvar og hvernig ösku er dreift eða hún varðveitt sé ósk hins látna sú að askan sé ekki jarðsett. Um nánari reglur um dreifingu ösku látins manns fer samkvæmt reglugerð settri með heimild í 1. mgr. 50. gr.
c. 5. og 6. mgr. falla brott.
Greinargerð.