Ferill 281. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.

Þingskjal 317  —  281. mál.
Lagfæring.

Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands.


Frá utanríkisráðherra.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands sem undirritaður var 23. janúar 2025 í Davos í Sviss.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands sem undirritaður var í Davos í Sviss 23. janúar 2025. Samningurinn er birtur sem fylgiskjal I og ensk útgáfa sem fylgiskjal II. Viðaukar við samninginn verða sendir utanríkismálanefnd og birtir á vef Alþingis.
    Fríverslunarviðræður hófust milli EFTA-ríkjanna og Taílands árið 2005 en gert var hlé á viðræðunum í kjölfar valdatöku hersins í landinu árið 2006. Viðræður hófust að nýju í kjölfar þess að lýðræðislegar kosningar fóru fram í landinu árið 2022 og viðræðunum lauk í nóvember 2024.
    Fríverslunarsamningurinn liðkar fyrir vöru- og þjónustuviðskiptum milli samningsaðila auk þess að fela í sér skuldbindingar sem lúta að fjárfestingum, vernd hugverka og sjálfbærri þróun. Samningurinn kveður á um niðurfellingu tolla á allar helstu útflutningsafurðir Íslands, ýmist strax við gildistöku hans eða í áföngum yfir lengra tímabil. Samningurinn kveður einnig á um samstarfsverkefni milli íslenskra og taílenskra aðila á sviði sjálfbærra fiskveiða og fiskveiðistjórnar en Taíland er meðal stærstu fiskveiðiþjóða heims. Samningurinn veitir íslenskum fyrirtækjum auknar heimildir til fjárfestinga í Taílandi og bætir aðgang íslenskra þjónustuveitenda að taílenskum þjónustumarkaði.
    Vöruútflutningur frá Íslandi til Taílands nam 650 millj. kr. árið 2024. Á sama tíma nam verðmæti innfluttra vara frá Taílandi 5,7 milljörðum kr. Útflutningur var að mestu sjávarafurðir, vélbúnaður til matvælaframleiðslu og drykkjarvatn. Helstu innflutningsvörur frá Taílandi eru raftæki, farartæki, hjólbarðar, fatnaður og matvæli. Útflutningur á þjónustu til Taílands nam rúmlega 1,2 milljörðum kr. árið 2023. Á sama tíma nam innflutningur þjónustu rúmlega 1,7 milljörðum kr.
    Með samningnum er lagður grunnur að bættri samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja, fjárfesta og einstaklinga í Taílandi.
    EFTA-ríkin, Ísland, Liechtenstein, Noregur og Sviss, hafa gert 33 fríverslunarsamninga við alls 44 ríki.

2. Nánar um fríverslunarsamninginn.
    Efni fríverslunarsamningsins skiptist í 15 kafla og 19 viðauka þar sem m.a. er kveðið á um vöruviðskipti, þjónustuviðskipti, fjárfestingar, vernd hugverka, opinber innkaup, samkeppni, viðskipti og sjálfbæra þróun, lítil og meðalstór fyrirtæki auk hefðbundinna ákvæða um sameiginlega nefnd samningsaðila og lausn deilumála.
    Í formálsorðum samningsins er gerð grein fyrir ýmsum forsendum og markmiðum samningsaðila við gerð samningsins. Þar kemur m.a. eftirfarandi fram:
     –      Lýst er yfir vilja til að skapa hagstæð skilyrði milli EFTA-ríkjanna og Taílands fyrir þróun og fjölbreytni í viðskiptum milli samningsaðilanna og fyrir aukna samvinnu, bæði viðskiptalega og efnahagslega, á sviðum þar sem þau eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta, á grundvelli jafnréttis, gagnkvæms ávinnings, jafnræðis og þjóðaréttar.
     –      Áréttuð er skuldbinding ríkjanna um að styðja við lýðræði, réttarreglur, mannréttindi og mannfrelsi í samræmi við skuldbindingar sínar að þjóðarétti eins og fram kemur m.a. í sáttmála Sameinuðu þjóðanna og mannréttindayfirlýsingunni.
     –      Áréttuð er skuldbinding ríkjanna um að stefna að markmiðinu um sjálfbæra þróun og sameiginleg afstaða þeirra um mikilvægi samræmdra stefna á sviði viðskipta, umhverfis og atvinnu sem styðja hver aðra með gagnkvæmum hætti í því tilliti.
     –      Áréttuð eru réttindi og skyldur ríkjanna samkvæmt marghliðasamningum um umhverfismál sem þau eru aðilar að og virðing fyrir grundvallarviðmiðum og réttindum við vinnu, m.a. grundvallarviðmiðum sem sett eru fram í viðeigandi samþykktum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem þau eiga aðild að.
     –      Staðfest er skuldbinding ríkjanna um að koma í veg fyrir og berjast gegn spillingu í viðskiptum og fjárfestingum ríkja í milli og að halda á lofti meginreglunum um gagnsæi og góða opinbera stjórnunarhætti.

2.1. Kaflar samningsins.
    Í 1.–4. kafla og viðaukum I–VII er að finna almenn ákvæði og ákvæði um niðurfellingu tolla og önnur ákvæði tengd viðskiptum með vörur. Auk ákvæða um tollaniðurfellingar eru þar ákvæði um m.a. upprunareglur, undirboð og jöfnunartolla, tæknilegar viðskiptahindranir, ráðstafanir á sviði hollustuhátta og heilbrigðis dýra og plantna og viðskiptaliprun. Kveðið er á um gagnkvæma niðurfellingu og bindingu tolla af hvers kyns iðnaðarvörum og sjávarafurðum sem framleiddar eru í ríkjum samningsaðila og fluttar inn til gagnaðila. Tollar munu jafnframt falla niður af tilteknum landbúnaðarvörum sem framleiddar eru til útflutnings hér á landi, svo sem skyri, vörum úr sjávarþara, drykkjarvatni og ýmsum öðrum drykkjarvörum og unnum matvælum.
    Í 5.–6. kafla og viðaukum VIII–XVI eru ákvæði um þjónustuviðskipti og fjárfestingar, þ.m.t. skuldbindingar samningsaðila hvað varðar markaðsaðgang til handa þjónustuveitendum frá ríkjum gagnaðila, svo og rétt til stofnsetningar fyrirtækja í landi gagnaðila. Í þeim er að mestu byggt á skuldbindingum ríkjanna samkvæmt ákvæðum GATS-samnings Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um þjónustuviðskipti.
    Í 7. kafla og viðauka XVII eru ákvæði um vernd hugverka. Þau byggjast á ákvæðum TRIPS-samnings WTO um hugverkarétt í viðskiptum. Samningsaðilarnir skulu kveða á um fullnægjandi og árangursríka vernd hugverkaréttinda án mismununar gagnvart eigin ríkisborgurum eða ríkisborgurum annarra.
    Í 8. kafla og viðauka XVIII er fjallað um opinber innkaup. Samningurinn felur ekki í sér skuldbindingar um markaðsaðgang að opinberum útboðum heldur sammælast samningsaðilar um mikilvægi opinberra innkaupa við að ýta undir útbreiðslu framleiðslu og viðskipta til að stuðla að hagvexti og atvinnu og sammælast um að efla gagnkvæman skilning á lögum sínum, reglugerðum og samningum um opinber innkaup. Einnig er að finna ákvæði um frekari samningaviðræður.
    Í 9. kafla er kveðið á um samkeppnismál. Áréttað er að samráð milli fyrirtækja sem leiðir til röskunar á samkeppni sem og misnotkun á markaðsráðandi stöðu sé ósamrýmanlegt markmiðum samningsins. Jafnframt er kveðið á um samvinnu milli ríkjanna á sviði samkeppnismála, m.a. með gagnkvæmum upplýsingaskiptum milli samkeppnisyfirvalda ríkjanna.
    10. kafli fjallar um viðskipti og sjálfbæra þróun. Kveðið er á um að samningsaðilar skuli stuðla að sjálfbærri þróun sem nái til efnahagslegrar og félagslegrar þróunar og umhverfisverndar þar sem allir þrír þættirnir séu háðir hver öðrum. Einnig er að finna ákvæði um mikilvægi kynjasjónarmiða í opinberri stefnumótun svo að efla megi þátttöku kvenna í hagkerfinu og alþjóðaviðskiptum. Samningsaðilar árétta enn fremur skuldbindingar sínar samkvæmt fjölþjóðlegum samningum og grundvallarreglum tengdum umhverfi og vinnumarkaði og ábyrgjast að viðhalda verndarstigi þeirra, jafnframt því sem ítrekað er að ríkin hafi fullan rétt til þess að setja eigin umhverfis- og vinnuverndarlöggjöf. Tekið er fram að samningsaðilar árétti skyldur sínar til að virða, efla og framfylgja þeim meginreglum um grundvallarréttindi sem er að finna í yfirlýsingu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um grundvallarviðmið og -réttindi við vinnu, eins og henni var breytt árið 2022.
    Í 11. kafla er fjallað um lítil og meðalstór fyrirtæki. Samningsaðilar skuldbinda sig til að tryggja litlum og meðalstórum fyrirtækjum aðgang að upplýsingum og stuðla að því að þau njóti ávinnings af samningnum.
    Í 12. kafla og viðauka XIX er fjallað almennt um samvinnu ríkjanna, m.a. á sviði sjálfbærra fiskveiða og fiskveiðistjórnar.
    Í 13.–15. kafla eru ákvæði um m.a. framkvæmd samningsins, lausn deilumála, breytingar á samningnum og gildistöku hans. Sett verður á stofn sameiginleg nefnd ríkjanna sem ætlað er að fjalla um framkvæmd samningsins, t.d. einstök vandamál í viðskiptum milli ríkjanna. Kveðið er á um lausn ágreiningsmála um túlkun og beitingu samningsins í formi sáttaumleitana eða eftir atvikum með stofnun gerðardóms ef samkomulag næst ekki með öðrum hætti.


Fylgiskjal I.


Fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands.


www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0317-f_I.pdf


Fylgiskjal II.


Free Trade Agreement between the EFTA States and the Kingdom of Thailand.


www.althingi.is/altext/pdf/156/fylgiskjol/s0317-f_II.pdf