Ferill 282. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 318  —  282. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008 (viðurkenning námsbrautarlýsinga o.fl.).

Frá mennta- og barnamálaráðherra.



1. gr.

    B-liður 3. gr. laganna orðast svo: aðalnámskrá og viðurkenningu á námsbrautarlýsingum skóla.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
     a.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Framhaldsskólum er heimilt að hafa með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans. Þegar um er að ræða samninga sem hafa veruleg áhrif á rekstur skóla skulu þeir staðfestir af ráðherra að fenginni umsögn skólanefnda viðkomandi skóla.
     b.      Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Stofnun framhaldsskóla o.fl.

3. gr.

    Við 2. mgr. 5. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi: veita umsögn um samstarf um rekstur framhaldsskóla samkvæmt beiðni ráðherra.

4. gr.

    Á eftir 4. mgr. 12. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er ráðherra heimilt að veita skólum, öðrum en þeim sem falla undir II. kafla, viðurkenningu til bráðabirgða, á meðan umsókn er til meðferðar. Við mat á því hvort veita eigi viðurkenningu til bráðabirgða skal ráðherra m.a. líta til hagsmuna nemenda og hvort líklegt sé að umsókn um viðurkenningu verði samþykkt.

5. gr.

    14. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

Skóla- og kennarafundir o.fl.

    Um samstarf framhaldsskóla um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans fer skv. 4. mgr. 4. gr., að undanskilinni umsögn skólanefndar.
    Um skólaráð, skólafundi og kennarafundi fer samkvæmt ákvæðum 7., 9. og 10. gr.
    Um námsorlof kennara, skólameistara, annarra faglegra stjórnenda og náms- og starfsráðgjafa í framhaldsskóla sem hlotið hafa viðurkenningu skv. 12. gr. fer samkvæmt ákvæði 11. gr.

6. gr.

    Í stað orðanna „staðfestingu“ í 16. gr., 17. gr., 1. málsl. 1. mgr. og 2. málsl. 2. mgr. 18. gr. og 19. gr. laganna og „staðfesta“ í 2. málsl. 1. mgr. 20. gr. laganna kemur: viðurkenningu; og: viðurkenna.

7. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „samkvæmt grein þessari“ í 4. málsl. 1. mgr. kemur: skv. 2. mgr.
     b.      Í stað tilvísunarinnar „23. gr.“ í 4. málsl. 1. mgr. kemur: 3. mgr.
     c.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Ráðherra er heimilt að gefa út námsbrautarlýsingar sem framhaldsskólar geta haft til viðmiðunar í starfi sínu. Slíkar viðmiðunarnámsbrautir eru hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla og geta náð til eftirfarandi námsbrauta:
             a.    námsbrauta sem leiða til starfsréttindaprófs, þar á meðal þeirra sem leiða til sveinsprófs,
             b.    námsbrauta sem leiða til stúdentsprófs,
             c.    annarra námsbrauta sem leiða til prófa og skilgreindra námsloka samkvæmt ákvörðun ráðherra.

8. gr.

    Við 2. mgr. 22. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Geta skal samnings um samstarf við annan framhaldsskóla skv. 4. mgr. 4. gr. í skólanámskrá.

9. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. laganna:
     a.      1. mgr. orðast svo:
                      Nám í framhaldsskóla fer samkvæmt viðmiðunarnámsbraut sem er hluti aðalnámskrár eða námsbrautarlýsingu framhaldsskóla sem ráðherra hefur viðurkennt skv. 3. mgr. Eingöngu er heimilt að innrita nemendur á námsbrautir sem hlotið hafa viðurkenningu ráðherra.
     b.      Í stað orðanna „innihald og vægi áfanga í einstökum greinum“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: vægi og röðun áfanga í einstökum greinum á hæfniþrepi.
     c.      Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Ráðherra viðurkennir námsbrautarlýsingar framhaldsskóla. Í slíkri viðurkenningu felst að námsbrautarlýsing sé í samræmi við ákvæði aðalnámskrár framhaldsskóla og önnur ákvæði laga þessara.
     d.      Orðin „eða Miðstöð menntunar og skólaþjónustu“ í 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
     e.      2. málsl. 3. mgr. fellur brott.
     f.      4. mgr. orðast svo:
                      Viðurkenning á námsbrautarlýsingu er háð því að skilyrðum aðalnámskrár skv. 21. gr. sé fullnægt. Ráðherra tryggir aðkomu starfsgreinaráða að undirbúningi viðmiðunarnámsbrauta og námsbrautarlýsinga framhaldsskóla, sbr. f-lið 1. mgr. 25. gr., og eftir atvikum annarra aðila, svo sem háskóla.
     g.      5. mgr. fellur brott.

10. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 25. gr. laganna:
     a.      Orðin „og eru hluti af almennum hluta aðalnámskrár framhaldsskóla“ í a-lið 1. mgr. falla brott.
     b.      d-liður 1. mgr. fellur brott.
     c.      Í stað orðsins „staðfestingu“ í f-lið 1. mgr. kemur: viðurkenningu.
     d.      Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: að vera ráðherra til ráðgjafar við mat á skilyrðum þess að iðnmeistara, fyrirtæki eða stofnun sé heimilt að gera vinnustaðanámssamning við nemanda, sbr. 4. mgr. 28. gr.
     e.      Í stað tilvísunarinnar „a- og d-lið“ í 3. mgr. kemur: a-lið.

11. gr.

    28. gr. laganna orðast svo:
    Vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað byggist á almennum ákvæðum aðalnámskrár um nám á vinnustað.
    Gera skal vinnustaðanámssamning á milli framhaldsskóla, nemanda og iðnmeistara, fyrirtækis eða stofnunar um vinnustaðanám nemandans. Vinnustaðanámssamningur skal gerður við upphaf vinnustaðanáms. Í samningnum skal í það minnsta kveða á um rétt og skyldur vinnuveitanda, skóla og nemanda, markmið vinnustaðanáms og gæðakröfur, gildistíma, meðferð ágreinings og samningsslit.
    Gerð og staðfesting vinnustaðanámssamnings er á ábyrgð framhaldsskóla og skal skólinn fylgja samningnum eftir gagnvart nemanda og iðnmeistara, fyrirtæki eða stofnun. Skóli skal jafnframt staðfesta ráðningarsamning milli nema og vinnuveitanda sem gerður er samhliða vinnustaðanámssamningi. Skulu slíkir samningar vera í samræmi við gildandi kjarasamninga. Ráðherra er heimilt að fela öðrum skóla en þeim sem nemandi stundar nám við, eða öðrum aðila, að sjá um gerð og staðfestingu vinnustaðanámssamnings og eftirfylgni með honum.
    Eingöngu er heimilt að gera vinnustaðanámssamning við iðnmeistara, fyrirtæki eða stofnun sem er á skrá ráðherra yfir aðila sem uppfylla skilyrði til vinnustaðanáms. Ef ráðherra fær upplýsingar um að iðnmeistari, fyrirtæki eða stofnun virði ekki samningsskyldur sínar, þ.m.t. ákvæði í ráðningar- og kjarasamningum og reglur um aðbúnað og öryggi á vinnustað, er heimilt að fella nafn hans af skránni.
    Ráðherra er heimilt að setja reglugerð sem mælir nánar fyrir um framkvæmd þessarar greinar í samráði við starfsgreinanefnd. Þar skal m.a. kveðið á um umsjón með gerð vinnustaðanámssamnings, skilyrði sem iðnmeistari, fyrirtæki eða stofnun þarf að uppfylla svo að viðkomandi sé heimilt að gera vinnustaðanámssamning við nemanda og samningsslit. Jafnframt er ráðherra heimilt að mæla nánar fyrir um notkun stafrænna lausna við skráningu um framvindu náms og námsferil nemanda á vinnustað í reglugerð.

12. gr.

    Við 1. mgr. 30. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Mat á hæfni nemanda í vinnustaðanámi er í höndum iðnmeistara, fyrirtækis eða stofnunar, undir umsjón skólameistara.

13. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 32. gr. laganna:
     a.      1. og 2. málsl. 2. mgr. orðast svo: Hver framhaldsskóli ber ábyrgð á innritun nemenda í viðkomandi skóla í samræmi við reglugerð skv. 3. mgr. og önnur fyrirmæli ráðherra um innritun. Við ákvörðun um innritun nemanda er heimilt að líta til sjónarmiða sem tengjast nemandanum, þ.m.t. námsárangurs úr grunnskóla og annarra upplýsinga sem nemandinn lætur skólanum í té, og sjónarmiða sem tengjast skólasamfélagi viðkomandi skóla, þ.m.t. sem miða að því að auka fjölbreytni í nemendahópnum.
     b.      Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Heimilt er framhaldsskóla að gera sérstakar kröfur um undirbúning og námsárangur vegna innritunar á einstakar námsbrautir eða tiltekna hluta námsbrauta í framhaldsskóla.
     c.      Við 3. mgr. bætist: þar sem m.a. er kveðið á um kröfur um undirbúning og skilyrði innritunar, forgangsröðun umsókna og málsmeðferð innritunar.

14. gr.

    Í stað 2.–6. mgr. 33. gr. a. laganna koma sex nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
    Nemendum ber að hlíta fyrirmælum kennara og starfsfólks í öllu því sem skólann varðar, þar á meðal í starfi á vegum nemendafélaga framhaldsskóla, fara eftir skólareglum og fylgja almennum umgengnisreglum í samskiptum við starfsfólk og samnemendur. Nemendur skulu sýna nærgætni og gæta virðingar í framkomu sinni gagnvart nemendum og starfsfólki framhaldsskóla.
    Ef hegðun, skólasókn eða námsárangur nemanda reynist áfátt ber skóla að reyna að leita orsaka þess. Í því skyni skal skóli eiga samtal við nemandann og eftir atvikum foreldra eða aðra forsjáraðila þar sem aflað er upplýsinga um stuðningsþarfir nemandans. Þar sem við á og eftir atvikum samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna skal skóli gera áætlun með nemandanum þar sem fjallað er um stuðningsþarfir og hvernig brugðist er við þeim.
    Ef nemandi brýtur gegn þeim skyldum sem á honum hvíla skv. 1. og 2. mgr. og samtal eða áætlun skv. 3. mgr. hefur annaðhvort ekki dugað eða brot nemanda er svo alvarlegt að samtal eða áætlun á ekki við getur skóli ákveðið viðbrögð eða viðurlög gagnvart nemandanum. Viðbrögð geta m.a. falið í sér sértækt skipulag náms og takmörkun á þátttöku nemandans í því sem skólann varðar. Viðurlög geta verið brottvísun um stundarsakir eða varanleg brottvísun. Þegar brugðist er við eða viðurlögum beitt skal gæta meðalhófs og vægasta úrræðið valið á grundvelli heildarmats á hagsmunum nemandans en jafnframt er heimilt að líta til hagsmuna annarra nemenda sem eftir atvikum hafa orðið fyrir áhrifum af brotinu.
    Á meðan mál skv. 3. mgr. er óútkljáð getur skóli tekið ákvörðun um tímabundin viðbrögð eða viðurlög skv. 4. mgr. Skilyrði þess að unnt sé að taka tímabundna ákvörðun er að skóli meti líkur á því að málinu ljúki með ákvörðun skv. 4. mgr.
    Um ákvarðanir skv. 4. og 5. mgr. gilda ákvæði stjórnsýslulaga. Ef tekin er ákvörðun um brottvísun nemanda sem er yngri en 18 ára skal framhaldsskóli, eftir atvikum með aðkomu ráðuneytisins eða Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, leiðbeina nemanda um hvernig hann geti haldið áfram námi í framhaldsskóla.
    Ráðherra mælir nánar fyrir um framkvæmd þessarar greinar, þ.m.t. um viðbrögð og viðurlög vegna brota nemenda, í reglugerð.

15. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. b laganna:
     a.      Í stað orðanna „Skólastjórnendum og kennurum“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: Skóla.
     b.      Á eftir orðinu „líkamlegt“ í 4. mgr. kemur: kynferðislegt.
     c.      5. mgr. orðast svo:
                      Skólar skulu hafa áætlun um hvernig brugðist er við tilvikum um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi.

16. gr.

    2. og 3. mgr. 44. gr. laganna orðast svo:
    Í samningum sem gerðir eru til 3–5 ára í senn milli ráðherra og annarra skóla en opinberra framhaldsskóla, sem hlotið hafa viðurkenningu skv. 12. gr., , skulu koma fram helstu áherslur í starfsemi skólans, námskrár, námsframboð, kennslufyrirkomulag, mat og eftirlit með gæðum og annað sem æskilegt er talið af hálfu samningsaðila. Slíkir samningar skulu jafnframt kveða á um réttarstöðu nemenda, nemendafjölda, gjaldtöku af nemendum og greiðslur fyrir aðra þjónustu sem veitt er á grundvelli samningsins. Farið skal yfir framkvæmd þessara samninga árlega og gildandi samningar endurskoðaðir ef ástæða er til.
    Ráðherra er heimilt að framlengja samning skv. 2. mgr. um allt að fimm ár í senn í samræmi við ákvæði greinar þessarar ef engar verulegar breytingar hafa orðið á starfsemi skóla og engin frávik hafa komið upp við framkvæmd samningsins. Upplýsingar um framkvæmd samnings skulu liggja fyrir eigi síðar en sex mánuðum áður en samningur rennur út.

17. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

18. gr.

    Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á lögum um lýðskóla, nr. 65/2019:
     a.      Í stað orðanna „Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu“ í 2. mgr. 1. gr. og 2. mgr. 3. gr. laganna kemur: ráðherra.
     b.      Í stað orðanna „Miðstöð menntunar og skólaþjónustu“ í 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: Ráðherra.
     c.      Við 3. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. er ráðherra heimilt að veita lýðskóla viðurkenningu til bráðabirgða á meðan umsókn er til meðferðar. Við mat á því hvort veita eigi viðurkenningu til bráðabirgða skal ráðherra m.a. líta til hagsmuna nemenda og hvort líklegt sé að umsókn um viðurkenningu verði samþykkt.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er samið í mennta- og barnamálaráðuneytinu og fjallar um breytingar á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008. Frumvarpinu er ætlað að bregðast við þróun sem orðið hefur á umhverfi framhaldsskóla frá gildistöku laganna þann 1. ágúst 2008 og skýra álitaefni sem hafa komið upp í framkvæmd þeirra. Um er að ræða breytingar í nokkrum liðum sem varða viðurkenningu skóla til kennslu á framhaldsskólastigi, staðfestingu námsbrautarlýsinga, vinnustaðanám, samvinnu framhaldsskóla og samningsgerð skóla og ráðuneytis, innritun nemenda og réttindi og skyldur þeirra.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Markmið þeirra breytinga sem lagðar eru til með frumvarpi þessu er að aðlaga tiltekin ákvæði gildandi laga að þeim breytingum sem orðið hafa á umhverfi framhaldsskóla frá því að lögin tóku gildi.
    Lög um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, nr. 91/2023, öðluðust gildi 1. apríl 2024. Með gildistöku þeirra var Menntamálastofnun lögð niður og færðust ýmis verkefni hennar til mennta- og barnamálaráðuneytis. Meðal þeirra verkefna er veiting viðurkenningar til annarra skóla en opinberra skóla, þ.e. einkaskóla, til kennslu á framhaldsskólastigi skv. III. kafla laga um framhaldsskóla. Við vinnslu þeirra mála er varða viðurkenningu einkaskóla hefur m.a. komið í ljós að tilefni er til að afmarka skýrar hvaða ákvæði II. kafla laga um framhaldsskóla, sem eiga við um opinbera framhaldsskóla, skuli jafnframt eiga við um aðra skóla á framhaldsskólastigi sem hlotið hafa viðurkenningu ráðherra. Jafnframt þykir tilefni til að skýra heimild til að veita afmarkaðar undanþágur frá ákvæði laganna um viðurkenningu til kennslu á framhaldsskólastigi, einkum þegar kemur að tímabundnum aðstæðum skóla. Tilgangur þessara breytinga er að regluverkið nái utan um óviðráðanlegar ytri aðstæður skóla en með þeim er ekki ætlunin að slá af kröfum sem gerðar eru til einkaskóla á framhaldsskólastigi.
    Frá gildistöku laga um framhaldsskóla hafa jafnframt komið upp álitamál sem tengjast fyrirkomulagi þess þegar framhaldsskólar setja sér námsbrautarlýsingar. Samkvæmt gildandi lögum er gert ráð fyrir að framhaldsskólar setji sér námsbrautarlýsingar og leggi þær fyrir ráðherra til staðfestingar. Námsbrautarlýsingar sem hafa staðfestingu ráðherra teljast þar með hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla og tilkynning um staðfestingu ráðherra á námsbrautarlýsingum skal birt í Stjórnartíðindum, sbr. 1. mgr. 23. gr. laga um framhaldsskóla. Þá skal brottfall námsbrautarlýsinga birt með sama hætti. Fyrirkomulagið er varðar staðfestingu námsbrautarlýsinga hefur reynst þungt í framkvæmd. Frá því að lög um framhaldsskóla tóku gildi hafa yfir þrjú hundruð námsbrautarlýsingar verið gerðar og gert ráð fyrir að allar breytingar á námsbrautarlýsingum kalli á nýja staðfestingu ráðherra á þeim og birtingu í Stjórnartíðindum. Sökum þess hve þetta fyrirkomulag er þungt í vöfum hefur það m.a. leitt til þess að framhaldsskólar hafa ekki allir uppfært námsbrautarlýsingar til samræmis við þróun kennslu á undanförnum árum. Er því tilefni til að gera breytingar á fyrirkomulagi þessu þar sem lögð er áhersla á aukna skilvirkni í framkvæmd en á sama tíma tryggt að ekki verði dregið úr kröfum til framhaldsskóla um gæði náms og námsbrautarlýsinga.
    Frá gildistöku laga um framhaldsskóla hafa stjórnvöld jafnframt unnið að því að efla starfsnám á framhaldsskólastigi og af því tilefni hafa ýmsar umbætur orðið að veruleika. Þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra setti reglugerð um vinnustaðanám, nr. 180/2021, sem öðlaðist gildi 1. ágúst 2021, og fól í sér grundvallarbreytingu á þjónustu við nemendur. Tilefni setningar reglugerðarinnar var m.a. skýrsla Ríkisendurskoðunar frá árinu 2017 Starfsmenntun á framhaldsskólastigi: Skipulag og stjórnsýsla þar sem hvatt var til þess að metinn yrði ávinningur af því að framhaldsskólum yrði falin skýr ábyrgð á þeim þáttum starfsnáms sem krefjast náms og þjálfunar á vinnustað. Nú þegar fengist hefur reynsla á framkvæmd reglugerðarinnar er tilefni til breytingar á ákvæðum laga um framhaldsskóla í ljósi fenginnar reynslu, en einkum til að styrkja og bæta lagagrundvöll reglugerðarinnar.
    Með frumvarpinu eru einnig lagðar til breytingar er tengjast innritun nemenda í framhaldsskóla. Fyrir liggur sú afstaða umboðsmanns Alþingis að sérstaklega skuli hugað að lagagrundvelli og stjórnskipulegu samhengi þeirra reglna sem ráðuneytið telur þörf á að setja um innritun nemenda í framhaldsskóla og um forgang tiltekinna hópa í því sambandi, sbr. álit umboðsmanns Alþingis frá 29. desember 2010 í málum nr. 5994/2010 og 6009/2010. Var það einnig afstaða umboðsmanns að það væri í betra samræmi við þá verkaskiptingu sem stjórnskipan Íslands byggist á að löggjafarvaldið taki sjálft afstöðu til þeirra meginatriða sem fylgja skal við innritun nemenda í framhaldsskóla á öðrum grundvelli en námsárangri. Á undanförnum árum hefur fjölbreytni meðal framhaldsskólanemenda aukist, m.a. með fjölgun nemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn og nemenda sem vegna fötlunar eða annarra ástæðna þurfa sérstakan stuðning. Mikilvægt er að jafna tækifæri nemenda í innritunarferlinu og að allir framhaldsskólar axli ábyrgð á fjölbreyttum nemendahópi. Er því tilefni til að skýra og eftir atvikum styrkja lagastoð reglna um innritun í framhaldsskóla.
    Undanfarin misseri hefur átt sér stað mikil umræða um ofbeldi, bæði kynferðisofbeldi og líkamlegt ofbeldi, í framhaldsskólum. Í ljósi þeirrar umræðu hefur verið talið mikilvægt að bregðast við ákalli um bætt verklag og skýrari ramma í málaflokknum. Af því tilefni vann mennta- og barnamálaráðuneyti, í samvinnu við þverfaglegan samráðshóp, að leiðarvísi um viðbrögð við einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi (EKKO) á meðal nemenda í framhaldsskólum sem gefinn var út í mars 2024. Við gerð leiðarvísisins kom í ljós að tilefni er til að aðlaga ákvæði laga um framhaldsskóla betur að þeim veruleika sem nemendur, kennarar, skólastjórnendur og annað starfsfólk stendur frammi fyrir þegar mál af þessum toga koma upp í framhaldsskólum.
    Þá eru lagðar til breytingar sem miða að því að styðja við samstarf á milli framhaldsskóla. Með vísan til aukinnar umræðu um samvinnu og samrekstur ríkisstofnana þykir tilefni til að setja skýrari umgjörð um samstarf framhaldsskóla. Frá gildistöku laga um framhaldsskóla hafa einnig orðið breytingar á ytra umhverfi samninga við einkaaðila um rekstur framhaldsskóla, þar á meðal með lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, og lögum um opinber innkaup, nr. 120/2016. Þá hafa ágreiningsmál risið vegna túlkunar á samspili ákvæða þessara laga og laga um framhaldsskóla. Kærunefnd útboðsmála hefur m.a. fengið til umfjöllunar mál sem tengist útboðsskyldu vegna endurnýjunar þjónustusamninga við þrjá framhaldsskóla. Kærunefndin fékk ráðgefandi álit frá EFTA-dómstólnum vegna málsins en niðurstaða hans var m.a. sú að samningar ráðuneytisins við einkaskóla um rekstur framhaldsskóla væru ekki opinberir þjónustusamningar í skilningi tilskipunar 2014/24/ESB um opinber innkaup, sbr. mál kærunefndar útboðsmála nr. 29/2018. Á sama tíma og þessi þróun hefur orðið hafa ákveðnir framhaldsskólar, sem reknir eru af einkaaðilum, fest sig í sessi. Þessar aðstæður gefa tilefni til að breyta ákvæðum laga um framhaldsskóla þar sem fjallað er um samninga ríkisins við einkaaðila um rekstur framhaldsskóla og námsbrauta á framhaldsskólastigi, m.a. með það að markmiði að skýra stöðu þessara samninga og fjalla sérstaklega um endurnýjun þeirra.

3. Meginefni frumvarpsins.
3.1. Skólaráð, viðurkenning framhaldsskóla o.fl.
    Með frumvarpinu er lagt til að afmarka skýrar hvaða ákvæði II. kafla laga um framhaldsskóla skuli jafnframt eiga við um aðra skóla á framhaldsskólastigi sem hlotið hafa viðurkenningu ráðherra til kennslu á framhaldsskólastigi skv. III. kafla laganna, til að mynda ákvæði um skólaráð, samstarfssamninga framhaldsskóla og námsorlof kennara, skólameistara, annarra faglegra stjórnenda og náms- og starfsráðgjafa. Með frumvarpinu eru jafnframt lagðar til breytingar er varða viðurkenningu einkaskóla til kennslu á framhaldsskólastigi, þar sem lögð er áhersla á að skýra heimild til að veita tímabundna viðurkenningu til kennslu.

3.2. Námsbrautarlýsingar framhaldsskóla.
Með frumvarpinu er lagt til að gerðar verði breytingar á ákvæðum laga um framhaldsskóla um námsbrautarlýsingar. Miða breytingarnar einkum að því að einfalda ferli námsbrautarlýsinga án þess að dregið sé úr kröfum til námsbrauta og auka yfirsýn ráðherra. Megintilgangur breytinganna er að námsbrautarlýsingar skóla verði ekki lengur birtar í Stjórnartíðindum til að öðlast gildi heldur verði viðurkenndar af ráðherra. Viðmiðunarnámsbrautir ráðherra verði aftur á móti birtar í Stjórnartíðindum og verði hluti aðalnámskrár. Gert er ráð fyrir því að námsbrautarlýsingar framhaldsskóla sem hafa þegar verið staðfestar af ráðherra á grundvelli laga um framhaldsskóla haldi gildi sínu.

3.3. Vinnustaðanám.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem miða að því að styrkja og bæta lagagrundvöll reglugerðar um vinnustaðanám, nr. 180/2021. Lúta þær breytingar einkum að því að skýra ábyrgð framhaldsskóla á því að iðnnemandi eigi kost á vinnustaðanámi. Við gildistöku laga um framhaldsskóla var farin sú leið að auka ábyrgð framhaldsskóla á námi nemenda sinna með þeim hætti að framhaldsskólum var falin ábyrgð á gerð starfsþjálfunarsamnings um vinnustaðanám. Breytingin átti að vera til þess fallin að tryggja að nemendur fengju viðeigandi starfsþjálfun í stað þess að þeir bæru sjálfir ábyrgð á að tryggja sér samning við vinnustað eins og tíðkaðist fyrir gildistöku laganna.
    Með lögum um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 71/2010, var hins vegar fallið frá þeirri tilhögun að framhaldsskólar bæru ábyrgð á gerð starfsþjálfunarsamnings, einkum vegna þess að ólíklegt þótti að skólarnir gætu tekið á sig fyrrnefnda ábyrgð vegna samdráttar í ríkisútgjöldum til framhaldsskólanna. Í lögum um framhaldsskóla er því ekki tilgreindur aðili sem ber ábyrgð á gerð starfsþjálfunarsamninga, einungis að þeir skuli gerðir. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá árinu 2017 Starfsmenntun á framhaldsskólastigi: Skipulag og stjórnsýsla var þáverandi mennta- og menningarmálaráðuneyti m.a. hvatt til þess að meta ávinning þess að framhaldsskólum yrði falin skýr ábyrgð á þeim þáttum starfsnáms sem krefjast náms og þjálfunar á vinnustað. Við gildistöku reglugerðar um vinnustaðanám, nr. 180/2021, var því farin sú leið að gera framhaldsskóla ábyrga fyrir því að iðnnemandi eigi kost á vinnustaðanámi. Í ljósi reynslunnar er því með frumvarpi þessu lögð til sú breyting að framhaldsskóli beri ábyrgð á gerð og staðfestingu vinnustaðanámssamninga og hafi jafnframt eftirlit með þeim. Með frumvarpinu er einnig lagt til að skýra hver beri ábyrgð á að halda skrá yfir fyrirtæki og vinnustaði sem uppfylla skilyrði til vinnustaðanáms og viðbrögð við því ef fyrirtæki eða vinnustaður uppfyllir ekki skilyrðin. Þá eru lagðar til breytingar sem miða að því að samræma orðnotkun laga um framhaldsskóla og reglugerðar um vinnustaðanám, nr. 180/2021, auk þess sem gert er ráð fyrir að skýra námsmat nemenda í vinnustaðanámi.

3.4. Innritun nemenda í framhaldsskóla.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar er lúta að innritun nemenda í framhaldsskóla. Lagt er til að skýra sjónarmið sem framhaldsskólum er heimilt að líta til við ákvörðun um innritun nemenda einkum þegar kemur að öðrum sjónarmiðum en námsárangri. Þá eru lagðar til breytingar á reglugerðarheimild ráðherra til að styrkja lagastoð reglna um innritun í framhaldsskóla.

3.5. Réttindi nemenda, ábyrgð og skólabragur.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar er varða réttindi nemenda, ábyrgð þeirra og skólabrag. Lagt er til að skýra skyldur nemenda og viðbrögð skóla við brotum nemenda á þessum skyldum. Þá eru lagðar til breytingar á skyldum framhaldsskóla til að gera viðbragðsáætlanir, þ.m.t. um kynferðislegt ofbeldi.

3.6. Samstarf framhaldsskóla.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem eiga að styðja við samstarf milli framhaldsskóla. Framhaldsskólar hafa ýmsar heimildir til samstarfs í gildandi lagaumhverfi, þar á meðal til að standa saman að námsbrautarlýsingum. Í ljósi aukinnar umræðu um samvinnu og samrekstur ríkisstofnana er í frumvarpinu lagt til að ákveðinn rammi verði settur utan um samstarf milli framhaldsskóla. Í því felst einkum að gerðar eru kröfur um að opinberir framhaldsskólar geri með sér sérstaka samninga um samstarf. Með frumvarpinu er gert ráð fyrir að ráðherra staðfesti samninga sem hafa veruleg áhrif á rekstur skóla að fenginni umsögn skólanefnda viðkomandi skóla.

3.7. Samningar við framhaldsskóla.
    Að lokum eru lagðar til breytingar sem miða m.a. að því að skýra stöðu samninga ríkisins við einkaaðila um rekstur framhaldsskóla og námsbrauta á framhaldsskólastigi auk þess sem gert er ráð fyrir heimild ráðherra til að endurnýja slíka samninga að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Að öðru leyti fer um samninga samkvæmt lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Í frumvarpinu er m.a. fjallað um matskenndar ákvarðanir sem framhaldsskólar geta tekið gagnvart nemendum, bæði hvað varðar innritun í framhaldsskóla og réttindi þeirra og skyldur. Við framkvæmd þessara ákvæða þarf að gæta að því að leggja mat á réttindi sem njóta verndar stjórnarskrár og alþjóðlegra mannréttindasamninga. Í 2. mgr. 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, er mælt fyrir um að öllum skuli í lögum tryggður réttur til almennrar menntunar og fræðslu við sitt hæfi. Við beitingu reglnanna gagnvart börnum í framhaldsskólum getur þurft að gæta sérstaklega að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, sbr. jafnframt 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar. Þá geta ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks haft áhrif á túlkun reglna frumvarpsins þegar kemur að rétti fatlaðs fólks til menntunar.
    Samkvæmt jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar skulu allir vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna. Þar sem ákvæði frumvarpsins fjalla um heimildir skóla til að taka ákvarðanir um innritun sem tengjast skólasamfélaginu, þ.m.t. að stuðla að fjölbreytni í nemendahópum, er rétt að fram komi að sértækar aðgerðir sem ætlað er að bæta stöðu einstaklinga á sviðum þar sem á þá hallar og byggja að öðru leyti á málefnalegum sjónarmiðum, hafa verið taldar samrýmast jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.

5. Samráð.
    
Frumvarpið snertir fyrst og fremst framhaldsskóla, skólameistara, nemendur og eftir atvikum foreldra, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, starfsgreinaráð og atvinnulífið.
    Áform um breytingu á lögum um framhaldsskóla voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 28. ágúst 2023, umsagnarfrestur var til 11. september 2023 (mál nr. S-157/2023) og bárust 10 umsagnir. Almennt voru umsagnir um áform um lagasetningu jákvæðar, einkum um þær breytingar er tengdust innritun nemenda í framhaldsskóla, réttindum þeirra og ábyrgð og samningum við framhaldsskóla. Ýmsar gagnlegar ábendingar komu fram sem litið var til við vinnslu frumvarpsins.
    Drög að frumvarpinu voru kynnt almenningi í samráðsgátt stjórnvalda 19. febrúar 2025, umsagnarfrestur var til 5. mars 2025 (mál nr. S-37/2025) og bárust 15 umsagnir um frumvarpið. Almennt voru umsagnir um frumvarpsdrögin jákvæðar en þar komu fram nokkrar ábendingar sem urðu tilefni breytinga á frumvarpinu. Þar á meðal má nefna breytingar um aðkomu annarra aðila að undirbúningi námsbrautarlýsinga framhaldsskóla, námsmat í vinnustaðanámi og ráðgefandi hlutverk starfsgreinaráða vegna mats á skilyrðum til vinnustaðanáms.

6. Mat á áhrifum.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem fela í sér skýrari og fyrirsjáanlegri reglur sem munu jafnframt leiða til einföldunar og aukinnar skilvirkni. Tillögur að breytingum vegna námsbrautarlýsinga eru til þess fallnar að auka skilvirkni. Þá eru tillögur að breytingum vegna vinnustaðanáms til þess fallnar að hafa jákvæð áhrif á stöðu nemenda í iðn- og starfsnámi. Breytingarnar fela einnig í sér skýrari reglur, t.d. um innritun nemenda í framhaldsskóla og viðbrögð framhaldsskóla við ofbeldismálum, sem hafa jákvæð áhrif á nemendur í framhaldsskólum. Skýrari reglur hafa enn fremur jákvæð áhrif á stjórnsýslu ríkisins. Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi áhrif á ríkissjóð.

Um einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. gr.

    Í ákvæðinu er lögð til sú breyting að í stað þess að ráðherra staðfesti námskrár og námsbrautarlýsingar skóla verði gert ráð fyrir að ráðherra viðurkenni námsbrautarlýsingar einstakra framhaldsskóla. Með því er vikið frá gildandi fyrirkomulagi að ráðherra staðfesti námskrár og námsbrautarlýsingar. Áfram er þó gert ráð fyrir ábyrgð ráðherra á aðalnámskrá og námsbrautarlýsingum framhaldsskóla. Þessi breyting er liður í því að auka skilvirkni í framkvæmd þegar kemur að námsbrautarlýsingum. Vísað er til frekari skýringa við 9. gr. frumvarpsins.

Um 2. og 3. gr.

    Í greinunum eru lagðar til breytingar á 4. og 5. gr. laganna sem hafa það að markmiði að setja skýrari umgjörð um samstarf milli framhaldsskóla.
    Í a-lið 2. gr. frumvarpsins er lagt til að lögfest verði heimild framhaldsskóla til að hafa með sér samstarf um rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans. Dæmi um slíka samninga er ef skólar ákveða að reka saman stoð- eða skólaþjónustu eða eiga samvinnu um námsframboð. Þá er lagt til að slíkir samningar sem hafa veruleg áhrif á rekstur skóla skuli staðfestir af ráðherra. Staðfesting ráðherra á m.a. að tryggja að samstarfsverkefni séu nægilega skilgreind út frá fjárhagslegum og faglegum þáttum og t.d. tryggja að rétt sé gengið frá réttindum nemenda og starfsfólks við þessar aðstæður. Til að tryggja samráð við nærsamfélag skóla er gert ráð fyrir að skólanefnd viðkomandi skóla veiti umsögn um samninga um samstarf framhaldsskóla, sbr. 3. gr. frumvarpsins.
    Í b-lið 2. gr. er lögð til breyting á fyrirsögn greinarinnar til að endurspegla efni ákvæðisins.

Um 4. gr.

    Lagt er til að ráðherra verði heimilt að veita einkaskólum viðurkenningu til bráðabirgða á meðan umsókn er til meðferðar. Í fyrsta lagi þykir rétt að tafir á umsóknarferli viðurkenningar komi ekki í veg fyrir að skóli geti veitt nauðsynlega þjónustu á grundvelli laga um framhaldsskóla renni gildistími viðurkenningar út á meðan umsókn er til meðferðar. Á þetta einkum við um þá einkaskóla sem starfað hafa á grundvelli viðurkenningar en hafa óskað eftir endurnýjun hennar. Skóli sem sækir um endurnýjun viðurkenningar ber þó ábyrgð á því að senda umsókn og tilskilin fylgigögn með hæfilegum fyrirvara, en að jafnaði hefur verið miðað við að umsókn berist þremur mánuðum áður en gildistími viðurkenningar rennur út. Í öðru lagi þykir rétt að koma til móts við óvæntar aðstæður sem geta komið upp í starfsemi framhaldsskóla og kunna að hafa áhrif á skilyrði gildrar viðurkenningar, til að mynda þegar ófyrirséðar ástæður leiða til þess að framhaldsskóli þarf að flytja í nýtt húsnæði.
    Skilyrði þess að veita viðurkenningu til bráðabirgða er að viðkomandi skóli hafi sótt um um viðurkenningu eða endurnýjun viðurkenningar til ráðuneytisins. Með því er tryggt að tímabundin viðurkenning verði eingöngu gefin út í tengslum við umsókn í vinnslu og fellur þannig annaðhvort úr gildi þegar ný viðurkenning er gefin út eða ef umsókn um viðurkenningu er synjað. Tímabundin viðurkenning er því aðeins í gildi á meðan umsókn um viðurkenningu er í vinnslu. Rétt er að árétta að umsóknarferli hefst um leið og umsókn er lögð inn þótt fyrir liggi t.d. að gögn sem fylgja eiga umsókninni hafi ekki enn borist ráðuneytinu.
    Í ákvæðinu eru nefnd í dæmaskyni sjónarmið sem málefnalegt er að líta til þegar tekin er ákvörðun um viðurkenningu til bráðabirgða. Annars vegar er vísað til hagsmuna nemenda, t.d. að ekki verði rof á námsferli þeirra. Hins vegar er vísað til mats á því hversu líklegt er að umsókn um viðurkenningu verði samþykkt og má þá t.d. líta til þess hvort viðurkenning hafi verið veitt áður. Jafnframt eru önnur sjónarmið sem unnt er að líta til og almennt verða að teljast málefnaleg.

Um 5. gr.

    Í 14. gr. laganna er afmarkað hvaða ákvæði II. kafla laganna eiga jafnframt við um aðra skóla á framhaldsskólastigi sem hlotið hafa viðurkenningu ráðherra til kennslu á framhaldsskólastigi. Eru það annars vegar ákvæði um skólafundi og hins vegar um kennarafundi. Ákvæði II. kafla laganna eiga að öðru leyti einungis við um opinbera framhaldsskóla. Með þessari grein er lagt til að afmörkun 14. gr. laganna nái til fleiri þátta í II. kafla laganna. Er því lögð til breyting á fyrirsögn greinarinnar til samræmis við breytingar á 14. gr. laganna.
    Í 1. mgr. er lagt til að setja skýrari umgjörð um samstarf milli framhaldsskóla, sem er í samræmi við 2. gr. frumvarpsins. Þannig er lagt til að um samstarf annarra skóla á framhaldsskólastigi sem hlotið hafa viðurkenningu ráðherra skv. 12. gr. fari samkvæmt sömu reglum og gilda um opinbera framhaldsskóla. Ekki er gert ráð fyrir að skólanefndir veiti ráðherra umsögn um samninga einkaskóla um samstarf þar sem slíkar nefndir eru ekki lögbundnar þegar einkaskólar sem hlotið hafa viðurkenningu ráðherra eiga í hlut.
    Þá hefur tíðkast að skólaráð starfi í öðrum skólum á framhaldsskólastigi en opinberum framhaldsskólum, sem hlotið hafa viðurkenningu ráðherra samkvæmt ákvæðum III. kafla laganna, sbr. 7. gr. laganna, enda er skólaráð mikilvægur samráðsvettvangur skólasamfélagsins. Í 2. mgr. er því lagt til að áfram verði vísað til að um skólafundi og kennarafundi fari samkvæmt ákvæðum 9. og 10. gr. laga um framhaldsskóla en við þá upptalningu bætist tilvísun til þess að um skólaráð fari skv. 7. gr. laganna og er það til að taka af allan vafa um að skólaráð skulu einnig starfa við aðra skóla á framhaldsskólastigi.
    Í 3. mgr. er lagt til kveðið verði sérstaklega á um að um námsorlof kennara, skólameistara, annarra faglegra stjórnenda og náms- og starfsráðgjafa í framhaldsskóla sem hlotið hafa viðurkenningu skv. 12. gr. fari samkvæmt ákvæði 11. gr. laganna. Ekki er um að ræða breytingu á framkvæmd þar sem sá hópur starfsfólks hefur getað sótt um úthlutun námsorlofs. Breytingunni er ætlað að styrkja lagastoð fyrir námsorlofi þessa hóps.

Um 6. gr.

    Í ákvæðinu eru lagðar til orðalagsbreytingar á tilteknum greinum IV. kafla laganna, sem fjallar um skipulag náms og námslok, og að vísað verði til viðurkenningar ráðherra í stað staðfestingar ráðherra á námsbrautarlýsingum. Gert er ráð fyrir því að námslok nemenda með framhaldsskólapróf, próf til starfsréttinda, stúdentspróf eða önnur lokapróf miðist við tilskyldan árangur samkvæmt námskrá og námsbrautarlýsingu framhaldsskóla sem fengið hafa viðurkenningu ráðherra skv. 9. gr. frumvarpsins.

Um 7. gr.

    Í ákvæðinu eru lagðar til breytingar á 21. gr. laganna um aðalnámskrá.
    Í a- og b-lið eru lagðar til breytingar á tilvísunum til almenns hluta aðalnámskrár og námsbrautarlýsingar hennar. Áfram er gert ráð fyrir því að aðalnámskrá framhaldsskóla skiptist í tvo hluta. Skerpt er á tilvísun í almennan hluta sem er skv. 2. mgr. 21. gr. laganna en í 1. mgr. sama ákvæðis er vísað almennt til ákvæðisins. Þá er lagt til að tilvísun til námsbrautarlýsingar aðalnámskrár vísi til þeirra sem ráðherra er heimilt að gefa út til viðmiðunar, sbr. c-lið. Breytingin tekur mið af því að ekki er lengur gert ráð fyrir því að ráðherra staðfesti námsbrautarlýsingar og því ekki talið rétt að þær verði hluti af aðalnámskrá.
    Þá er í c-lið lagt til að 5. mgr. 23. gr. laganna verði ný málsgrein í 21. gr. laganna. Ákvæðið er að efninu til óbreytt en gerðar á því smávægilegar orðalagsbreytingar í samræmi við þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpi þessu, svo sem að nota hugtakið viðmiðunarnámsbrautir í stað viðmiðunarnámskrá. Þannig er lögð áhersla á að ráðherra hafi áfram heimild til þess að setja ramma í aðalnámskrá með námsbrautarlýsingum sem framhaldsskólar geta haft til viðmiðunar. Viðmiðunarnámsbrautir ráðherra teljast hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla.

Um 8. gr.

    Í ákvæðinu eru lagðar til breytingar sem tengjast 2. og 3. gr. frumvarpsins og fjalla um að geta skuli samninga um samvinnu milli framhaldsskóla í skólanámskrá enda um að ræða rekstur ákveðinna þátta í starfi skólans, svo sem skóla- og stoðþjónustu. Vísað er til nánari skýringa við 2. og 3. gr. frumvarpsins.

Um 9. gr.

    Í ákvæðinu eru lagðar til breytingar á 23. gr. laganna um námsbrautarlýsingar.
    Í a-lið er lagt til að ný málsgrein komi í stað 1. mgr. þar sem kveðið verði á um að nám í framhaldsskóla fari samkvæmt viðmiðunarnámsbraut sem sé hluti aðalnámskrár eða námsbrautarlýsingu framhaldsskóla sem ráðherra hafi viðurkennt. Um er að ræða breytingu frá gildandi fyrirkomulagi þar sem gert er ráð fyrir að ráðherra staðfesti ekki námsbrautarlýsingu með birtingu í Stjórnartíðindum heldur veiti námsbrautarlýsingu viðurkenningu með annarri opinberri birtingu. Þá verða viðurkenndar námsbrautarlýsingar ekki hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla. Í þessu felst breytt verklag en ekki verður dregið úr kröfum til framhaldsskóla um gæði náms og námsbrautarlýsinga. Einnig er lagt til að árétta að framhaldsskólum sé eingöngu heimilt að innrita nemendur á námsbrautir sem hlotið hafa viðurkenningu ráðherra. Er það m.a. til þess fallið að tryggja yfirsýn ráðherra yfir námsbrautir í framhaldsskólum.
    Í b-lið eru lagðar til breytingar á almennum fyrirmælum um uppbyggingu námsbrautarlýsinga. Lagt er til að fella brott tilvísun til þess að í námsbrautarlýsingu skuli kveða á um innihald áfanga í einstökum greinum. Í stað þess að lýsa ítarlega innihaldi áfanga er lagt til að kveðið verði á um vægi og röðun áfanga í einstökum greinum á hæfniþrep. Lýsing á hæfniþrepum er birt í aðalnámskrá framhaldsskóla og eru þau skilgreind með hliðsjón af þeirri hæfni sem nemandi á að búa yfir við lok hvers þreps.
    Í c-lið er lagt til að í 2. mgr. verði mælt fyrir um viðurkenningu ráðherra á námsbrautarlýsingum framhaldsskóla auk þess sem kveðið verði á um áhrif slíkrar viðurkenningar. Þótt fallið sé frá gildandi fyrirkomulagi um staðfestingu ráðherra á námsbrautarlýsingum mun ráðherra áfram hafa ríka aðkomu að námsbrautarlýsingum. Í frumvarpinu er því lagt til að hlutverk ráðherra gagnvart námsbrautarlýsingum framhaldsskóla felist í viðurkenningu þeirra en í viðurkenningu felist staðfesting á því að námsbrautarlýsing sé í samræmi við ákvæði aðalnámskrár framhaldsskóla og önnur ákvæði laganna.
    Í d- og e-lið eru lagðar til breytingar sem tengjast niðurlagningu Menntamálastofnunar og verkefnum nýrrar stofnunar, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, og ráðuneytisins. Áfram er gert ráð fyrir heimild ráðherra til að setja reglur um flokkun og þrepaskiptingu náms í samræmi við færni- og lokamarkmið námsins. Að svo stöddu er ekki ástæða fyrir ráðherra til að hafa heimild til að fela undirstofnun sinni verkefnið.
    Í f-lið er lögð til orðalagsbreyting á 4. mgr. til samræmis við framangreindar breytingar er viðkemur viðurkenningu ráðherra á námsbrautarlýsingum. Gert er ráð fyrir því að viðurkenning ráðherra á námsbrautarlýsingu verði háð því að skilyrðum aðalnámskrár skv. 21. gr. laganna sé fullnægt. Þá er lagt til að skerpt verði á skyldu ráðherra til að tryggja aðkomu starfsgreinaráða að viðurkenningu námsbrauta í starfsnámi, sem er eitt af lögbundnum hlutverkum starfsgreinaráða, sbr. f-lið 1. mgr. 25. gr. laganna. Að sama skapi komi fram að ráðherra geti óskað eftir aðkomu annarra, einkum háskólastigsins, að gerð námsbrauta, en það er í samræmi við ákvæði gildandi aðalnámskrár framhaldsskóla.
    Þá er í g-lið lagt til að 5. mgr. 23. gr. laganna, sem fjallar um viðmiðunarnámskrá, falli brott en lagt er til að efnislega sambærilegt ákvæði verði tekið upp í 21. gr. laganna, sbr. c-lið 7. gr. frumvarpsins.

Um 10. gr.

    Í ákvæðinu eru lagðar til breytingar á hlutverki starfsgreinaráða. Annars vegar er um að ræða breytingar sem tengjast námsbrautarlýsingum framhaldsskóla og hins vegar breytingar sem tengjast aðkomu starfsgreinaráða að skrá yfir fyrirtæki og vinnustaði sem uppfylla skilyrði til vinnustaðanáms.
    Í a-lið er lagt til að orðin „og eru hluti af almennum hluta aðalnámskrár framhaldsskóla“ falli brott. Breytingarnar tengjast áformum frumvarps þessa um að námsbrautarlýsingar framhaldsskóla verði ekki lengur staðfestar af ráðherra heldur viðurkenndar af ráðherra og munu þar af leiðandi ekki teljast hluti aðalnámskrár framhaldsskóla.
    Í b-lið er lagt til að d-liður 1. mgr. 25. gr. laganna falli brott í ljósi þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á aðkomu starfsgreinaráða að halda skrá yfir fyrirtæki og vinnustaði sem uppfylla skilyrði til vinnustaðanáms, sbr. 11. gr. frumvarpsins og reglugerðar um vinnustaðanám, nr. 180/2021. Skv. 10. gr. reglugerðarinnar er Menntamálastofnun (nú Miðstöð menntunar og skólaþjónustu) gert að halda skrá yfir iðnmeistara, fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla skilyrði sett samkvæmt reglugerðinni. Í e-lið 10. gr. frumvarpsins er að finna brottfall á tilvísun sem leiðir af þeim breytingum sem gerðar eru skv. b-lið.
    Í c-lið eru lagðar til breytingar á f-lið 1. mgr. 25. gr. laganna til samræmis við breytingar á fyrirkomulagi námsbrautarlýsinga. Í stað þess að skólar leiti staðfestingu ráðherra á námsbrautarlýsingu starfsnáms er lagt til að skólar leiti viðurkenningar ráðherra á námsbrautarlýsingu. Ekki er gert ráð fyrir breytingu á aðkomu starfsgreinaráða að námsbrautarlýsingum starfsnáms.
    Í d-lið er lagt til að hlutverk starfsgreinaráðs verði jafnframt að vera ráðherra til ráðgjafar við mat á skilyrðum þess að iðnmeistara, fyrirtæki eða stofnun sé heimilt að gera vinnustaðanámssamning við nemanda, sbr. einnig 4. mgr. 11. gr. frumvarpsins.

Um 11. gr.

    Með ákvæðinu eru lagðar til breytingar á 28. gr. laganna um vinnustaðanám. Markmið breytinganna er að renna skýrari lagastoð undir reglugerð um vinnustaðanám, nr. 180/2021 og styrkja stöðu nemenda í vinnustaðanámi almennt, m.a. þegar kemur að gerð samninga um vinnustaðanám.
    Ákvæði 1. mgr. er samhljóða 1. mgr. 28. gr. laganna að öðru leyti en því að lagt er til að notað verði hugtakið vinnustaðanám í stað verknáms en það er í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla og reglugerð um vinnustaðanám, nr. 180/2021.
    Í 2. mgr. er lagt til að mælt verði fyrir um að vinnustaðanámssamning skuli gera á milli framhaldsskóla, nemanda og iðnmeistara, fyrirtækis eða stofnunar um vinnustaðanám nemandans. Með aðild framhaldsskóla að slíkum samning er lögð áhersla á samfellu og gæði vinnustaðanáms og áhrif framhaldsskóla á forsendur samningsins. Þá er lagt til í 2. mgr. að vinnustaðanámssamningur skuli gerður við upphaf vinnustaðanáms. Jafnframt er að finna í ákvæðinu upptalningu á þeim meginatriðum sem eiga að koma fram í vinnustaðanámssamningi.
    Í 3. mgr. er mælt fyrir um breytingu á ábyrgð skóla á gerð vinnustaðanámssamninga. Breytingin færir fyrirkomulagið nær því sem gilti þegar lög um framhaldsskóla öðluðust gildi þegar skólum var falin ábyrgð á því að gerðir væru samningar fyrir nemendur um starfsþjálfun. Vísað er til nánari umfjöllunar í 3. kafla. Með 3. mgr. er því lögð til sú breyting að framhaldsskóli beri ábyrgð á gerð og staðfestingu vinnustaðanámssamninga og fylgi samningunum eftir. Rétt þykir að framhaldsskólarnir, sem starfa á grundvelli laga um framhaldsskóla og bera ábyrgð á námi nemenda sinna, beri þessa ábyrgð en það er að öðru leyti í höndum nemenda og iðnmeistara, fyrirtækis eða stofnunar að framfylgja samningnum. Í eftirfylgni með slíkum samningum getur m.a. falist að skóli slíti samningi ef hann telur skilyrði hans ekki vera uppfyllt. Breytingin er í samræmi við áherslur reglugerðar um vinnustaðanám, nr. 180/2021, og er m.a. til þess fallin að auka rétt og öryggi nemenda um eðlilega námsframvindu. Ákvæði 2. og 3. málsl. 3. mgr. samsvarar til 3. mgr. 28. gr. laganna. Sú áhersla á að framhaldsskóli skuli staðfesta ráðningarsamning milli nemanda og vinnuveitanda sem gerður er samhliða vinnustaðanámssamningi er í samræmi við ábyrgð framhaldsskóla á gerð og eftirliti með vinnustaðanámssamningum. Í 4. málsl. er mælt fyrir um heimild ráðherra til að fela öðrum skóla en þeim sem nemandi stundar nám við, eða öðrum aðila, að sjá um gerð og staðfestingu vinnustaðanámssamninga og hafa eftirlit með þeim. Með öðrum aðila er einkum átt við aðila sem ráðherra hefur falið umsýslu með vinnustaðanámssamningum.
    Í 4. mgr. er lagt til að mælt verði fyrir um að iðnmeistari, fyrirtæki eða stofnun sem er aðili að vinnustaðanámssamningi skuli vera á skrá ráðherra yfir aðila sem uppfylla skilyrði til vinnustaðanáms. Breytingin er fólgin í því að ráðherra er gert að halda slíka skrá í stað starfsgreinaráða, sbr. d-lið 1. mgr. 25. gr. laganna. Með þeirri breytingu er ætlað að skýra hver ber ábyrgð á því að hafa yfirsýn yfir fyrirtæki og vinnustaði sem uppfylla skilyrði til að taka nema í vinnustaðanám. Í ákvæðinu er einnig lögð áhersla á að iðnmeisturum, fyrirtækjum og stofnunum beri að virða samningsskyldur sínar og uppfylla skilyrði til vinnustaðanáms sem mælt er fyrir um í reglugerð. Með samningsskyldum iðnmeistara, fyrirtækis og stofnunar í þessu samhengi er t.d. átt við ákvæði ráðningar- og kjarasamnings nemans, skyldur sem tengjast öryggi starfsumhverfis og viðbrögðum við einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundnu áreiti og ofbeldi á vinnustöðum í samræmi við ákvæði reglugerðar um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum, nr. 1009/2015. Í ákvæðinu er einnig lagt til að mælt verði fyrir um heimild ráðherra til að fella nafn iðnmeistara, fyrirtækis eða stofnunar brott af skránni. Um slíka ákvörðun gilda ákvæði stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
    Í 5. mgr. er mælt fyrir um heimild ráðherra til að setja reglugerð um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað í samráði við starfsgreinanefnd. Lagt er til að í slíkri reglugerð sé m.a. kveðið á um umsjón með gerð vinnustaðanámssamnings, skilyrði til að iðnmeistara, fyrirtæki eða stofnun sé heimilt að taka nemanda á vinnustaðanámssamning og samningsslit. Einnig er lagt til að ráðherra verði heimilt að mæla nánar fyrir um notkun stafrænna lausna við skráningu um námsframvindu og námsferil nemanda á vinnustað í reglugerð. Með notkun stafrænna lausna er tryggt að nemandi fái nauðsynlega þjálfun og menntun á vinnustað auk þess verður vinnustaðanám nemandans skilvirkara. Slíkri stafrænni lausn hefur þegar verið tryggður grundvöllur í reglugerð um vinnustaðanám, nr. 180/2021, þar sem gert er ráð fyrir notkun rafrænna ferilbóka.

Um 12. gr.

    Meðal þeirra breytinga sem reglugerð um vinnustaðanám, nr. 180/2021, fól í sér var að við ákvörðun um lengd vinnustaðanáms væri horft til hæfni nemanda. Skilgreindir hafa verið hæfniþættir fyrir hverja námsgrein og þarf nemandi að ná þeim handbrögðum sem þar eru tilgreind. Tilsjónarmenn með vinnustaðanámi meta hæfni nemanda samkvæmt hæfnikröfum starfsins og telst vinnustaðanámi lokið þegar nemandinn hefur náð öllum hæfniþáttum og þeirri hæfni sem tilskilin er. Í ákvæðinu er lagt til að mat á hæfni nemanda í vinnustaðanámi sé í höndum iðnmeistara, fyrirtækis eða stofnunar, undir umsjón skólameistara. Sú áhersla er til þess fallin að samræma reglur sem gilda um námsmat í framhaldsskólum og styrkja rétt nemandans til skýringa og úrlausnar ágreinings vegna mats á hæfni í vinnustaðanámi, sbr. einnig 2. mgr. 30. gr. laganna.

Um 13. gr.

    Lagðar er til breytingar á ákvæðum um innritun nemenda í framhaldsskóla. Í áliti umboðsmanns Alþingis frá 29. desember 2010 í málum nr. 5994/2010 og 6009/2010 kemur fram sú afstaða umboðsmanns að löggjafinn eigi að taka afstöðu til þeirra meginatriða sem fylgja skuli við innritun nemenda í framhaldsskóla á öðrum grundvelli en námsárangri. Í ljósi aukinnar umræðu um inngildingu í skólastarfi ásamt öðru er lagt til að ákvæði laganna um innritun í skóla verði endurskoðuð og skýr afstaða tekin til þess að heimilt sé að líta til annarra sjónarmiða en námsárangurs við innritun nemenda í framhaldsskóla. Lagt er til að heimilt verði að byggja á fleiri atriðum sem tengjast nemandanum en námsárangri hans. Hér er t.d. átt við upplýsingar um þátttöku og árangur í óformlegu námi, félagsstarfi og íþróttum og upplýsingar sem varpa ljósi á áhuga nemandans, t.d. hvort viðkomandi skóli sé fyrsta eða annað val hans. Þá er lagt til að heimilt verði að líta til sjónarmiða sem tengjast skólasamfélaginu, þ.m.t. til að vinna gegn einsleitni í nemendahópum. Hér er t.d. átt við að við innritun sé heimilt að líta til kyns, að aðrar reglur gildi um námsárangur þeirra sem ekki hafa íslensku að móðurmáli og taka tiltekinn fjölda nemenda með langvarandi stuðningsþarfir inn í skóla.
    Í a-lið greinarinnar felst að framhaldsskólar skuli innrita nemendur í samræmi við reglugerð sem ráðherra setur eða önnur fyrirmæli ráðherra um innritun. Hér getur bæði verið átt við fyrirmæli ráðherra sem beint er til opinberra framhaldsskóla á grundvelli laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, og fyrirmæli sem rúmast innan samninga sem ráðherra gerir við sjálfstætt rekna skóla. Þá felst í a-lið að tilvísun til skólasamninga skv. 44. gr. laganna falli brott en það er í samræmi við breytingar á því ákvæði í frumvarpi þessu, sbr. 16. gr. þess.
    Í b-lið er fjallað um heimild til að gera sérstakar kröfur um undirbúning og námsárangur vegna innritunar á einstakar námsbrautir eða tiltekna hluta námsbrauta í framhaldsskóla. Hvað varðar kröfur framhaldsskóla til inntöku á tiltekna hluta námsbrauta er t.d. litið til þess þegar gera þarf kröfu um tiltekin réttindi, aldur eða heilsufar til að ná ákveðnum námsáföngum, en ekki þykir ástæða til að til að gera slíka kröfu í upphafi náms.
    Í c-lið er lagt til að styrkja lagastoð reglna um innritun í framhaldsskóla. Lagt er til að í reglugerð um innritun nemenda verði m.a. kveðið á um kröfur um undirbúning og skilyrði til innritunar, forgangsröðun umsókna og málsmeðferð innritunar.

Um 14. gr.

    Í ákvæðinu eru lagðar til breytingar á 33. gr. a laganna um ábyrgð nemenda. Orðalag gildandi ákvæðis, þar á meðal tilvísun til hegðunar nemenda, hefur reynst erfitt í framkvæmd. Þá hafa nýleg mál vegna alvarlegra brota nemenda gagnvart öðrum nemendum varpað ljósi á mikilvægi þess að ákvæðið sé endurskoðað frá grunni.
    Í 1. mgr. ákvæðisins, sem lagt er til að verði 2. mgr. 33. gr. a laganna, eru lagðar til breytingar á 2. mgr. 33. gr. a laganna þar sem fjallað er um skyldur nemenda í framhaldsskólum. Lagt er til að skýrt sé að skyldur nemenda taki til starfs sem fari fram innan nemendafélaga framhaldsskóla enda eru nemendafélögin lögbundinn þáttur í starfsemi framhaldsskóla og starfa á ábyrgð skóla, sbr. 1. mgr. 39. gr. laganna. Í 2. málsl. eru dregnar fram skyldur nemenda gagnvart samnemendum sínum og starfsfólki skóla skýrar en í 1. málsl. þar sem er vísað til umgengnisreglna í samskiptum.
    Meginbreytingar ákvæðisins fela í sér að í stað 3.–5. mgr. 33. gr. a laganna komi fjórar nýjar málsgreinar. Ákvæði 2. mgr. ákvæðisins á margt sammerkt með 3. mgr. 33. gr. a laganna. Markmið ákvæðisins er lausnarmiðuð nálgun út frá stuðningsþörfum nemanda ef hegðun, skólasókn eða námsárangur er ófullnægjandi. Gengið er út frá að þetta verði gert áður en gripið er til meira íþyngjandi viðbragða gagnvart nemandanum ef unnt er. Almennt er ástæðan fundin með samtali við nemandann, eftir atvikum með aðkomu foreldra eða annarra forsjáraðila sem geta þá veitt frekari upplýsingar um stöðu nemandans. Þá er í ákvæðinu vísað til þess að þar sem við á eigi að gera áætlun um stuðning við nemandann. Áætlunin getur eftir atvikum verið unnin innan ramma laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, og þá í samstarfi við aðra þjónustuveitendur, en hún getur jafnframt verið unnin á vegum skólans.
    Í 3. mgr. ákvæðisins er mælt fyrir um viðbrögð við brotum nemenda á skyldum sínum. Ákvæðið fjallar efnislega um sömu atriði og nú eru í 4. og 5. mgr. 33. gr. a laganna en reynt hefur verið að skýra betur úrræði og málsmeðferð. Í ákvæðinu felst í fyrsta lagi að ef nemandi brýtur gegn skyldum sem á honum hvíla sé heimilt að bregðast við og beita viðurlögum ef þess þarf. Gert er að skilyrði fyrir viðbrögðum samkvæmt þessari grein að reynt hafi verið að nálgast nemandann í leit að lausn, ef það á við. Þetta getur t.d. átt við ef nemandi og skóli gera áætlun um stuðning við nemandann en nemandinn stendur ekki við sinn hlut. Í undantekningartilvikum er þó gert ráð fyrir að skóli geti beitt ákvæðinu ef brot nemanda er svo alvarlegt að lausnaleit getur ekki átt við. Dæmi um slík tilvik er alvarlegt ofbeldisbrot í skólanum. Í ákvæðinu er jafnframt skilgreint nánar hvaða viðbrögð eða viðurlög eru möguleg. Annars vegar er um að ræða brottvísun úr skóla, varanlega eða tímabundið, en um þessi viðurlög er þegar fjallað í 4. og 5. mgr. 33. gr. a laganna. Hins vegar er um að ræða viðbrögð sem geta t.d. falið í sér sértækt skipulag náms eða takmörkun á þátttöku nemandans í því sem skólann varðar. Með sértæku skipulagi er t.d. átt við að nemandinn taki annaðhvort hluta námsins eða allt í fjarnámi eða stundi nám að öðru leyti samkvæmt einstaklingsnámskrá. Með takmörkun á þátttöku nemandans í því sem skólann varðar er m.a. átt við að nemandinn sæki ekki viðburði á vegum nemendafélags, fari ekki í skólaferðir eða að viðvera hans í skólanum sé takmörkuð við ákveðin svæði. Um er að ræða nýmæli í framsetningu lagaákvæðisins þótt hingað til hafi verið litið svo á að skóli hafi ákveðnar heimildir til slíkra viðbragða. Í því sambandi segir í 5. mgr. 33. gr. a laganna að nemanda er „meinað að sækja kennslutíma í ákveðnu fagi eða námsgrein um nokkurt skeið“. Í 3. mgr. þessarar frumvarpsgreinar er sérstaklega áréttað að gæta skuli meðalhófs þegar brugðist er við eða viðurlögum beitt. Þetta er í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar. Þá er sérstaklega tekið fram að heimilt sé að líta til hagsmuna annarra nemenda sem hafa orðið fyrir áhrifum af brotinu. Hér er einkum átt við þau tilvik þegar viðbrögð skóla hafa áhrif á réttindi annarra nemenda en í því sambandi er m.a. bent á að skv. 1. mgr. 33. gr. laganna eiga nemendur rétt á því að finna til öryggis í skólanum.
    Í 4. mgr. ákvæðisins er fjallað um tímabundnar ákvarðanir en nú þegar er fjallað um slíkar ákvarðanir í 4. mgr. 33. gr. a laganna. Í ákvæðinu er lagt til að skýr heimild sé til að taka ákvarðanir til tiltekins tíma á meðan skorið er úr um mál viðkomandi nemanda. Miða má við að slíkar ákvarðanir séu teknar til skemmri tíma, svo sem tveggja til fjögurra vikna. Ákvæðið kemur ekki í veg fyrir að önnur tímabundin ákvörðun sé tekin í kjölfarið ef málið er enn óútkljáð.
    Í 5. mgr. ákvæðisins er fjallað um málsmeðferð ákvörðunar sem tekin er á grundvelli 3. og 4. mgr., sem verða 4. og 5. mgr. greinarinnar verði frumvarpið samþykkt, en um hana fer samkvæmt stjórnsýslulögum. Þetta er efnislega sama regla og nú er að finna í 5. mgr. 33. gr. a laganna. Þá er í ákvæðinu fjallað um ákvörðun sem tekin er í tengslum við nemanda sem er barn að aldri, sbr. 4. mgr. 33. gr. a laganna, en í 1. mgr. 32. gr. laganna felst réttur þeirra sem lokið hafa grunnskólanámi, hafa hlotið jafngilda undirstöðumenntun eða hafa náð 16 ára aldri til að stunda nám í framhaldsskóla til 18 ára aldurs.
    Í 6. mgr. ákvæðisins eru lagðar til breytingar sem ætlað er að skýra reglugerðarheimild ákvæðisins svo að ljóst sé að ráðherra hafi heimild til að setja nánari reglur um viðbrögð skóla við brotum nemenda.

Um 15. gr.

    Í ákvæðinu eru lagðar til breytingar á 33. gr. b laganna um skólabrag. Breytingunum er ætlað að samræma orðalag við 33. gr. a eins og henni er breytt, sbr. 14. gr. frumvarpsins, skýra skyldur skóla til áætlanagerðar og bæta kynferðislegu ofbeldi við upptalningu þess ofbeldis sem framhaldsskólum ber samkvæmt gildandi lögum að fjalla um í heildstæðri stefnu. Í breytingunni felst einnig að ákvæði þess efnis að skólar skuli hafa áætlun um framkvæmd tilkynningarskyldu samkvæmt barnaverndarlögum er fellt brott. Sú breyting er þó ekki til þess fallin að draga úr tilkynningarskyldu til barnaverndaryfirvalda skv. 17. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002, enda er tilkynningarskyldan bundin við hvern þann sem stöðu sinnar og starfa vegna hefur afskipti af málum barna.

Um 16. gr.

    Í ákvæðinu eru lagðar til breytingar á 44. gr. laganna sem miða m.a. að því að skýra stöðu samninga ráðherra við aðra skóla en opinbera framhaldsskóla annars vegar og skólasamninga við opinbera framhaldsskóla hins vegar. Við gildistöku laga um framhaldsskóla var litið svo á að ákvæði laganna um skólasamninga væri liður í að skapa umgjörð fyrir samræðu ráðuneytis og skóla og gera eftirlit ráðuneytisins skilvirkara og samstarf við skóla betra um þau mál, sbr. athugasemdir með frumvarpi því er var að lögum um framhaldsskóla. Í framkvæmd hefur þróunin hins vegar orðið sú að skólasamningar við opinbera framhaldsskóla hafa ekki verið gerðir í þó nokkur ár. Með ákvæðinu er því lagt til að horfið verði frá fyrirkomulagi skólasamninga við opinbera framhaldsskóla. Ráðherra hefur eftir sem áður heimild til að gefa stjórnvöldum er undir hann heyra almenn og sérstök fyrirmæli, sbr. t.d. 2. mgr. 12. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011.
    Í stað 1. mgr. gildandi ákvæðis er lagt til að kveðið verði á um samninga á milli ráðherra og annarra skóla en opinberra framhaldsskóla. Í ákvæðinu er efnislegu inntaki slíkra samninga lýst og er það samhljóða þeim áherslum sem birtast í 2. og 3. mgr. 44. gr. laganna. Í ákvæðinu er einnig lögð áhersla á að fara skuli yfir framkvæmd samninganna árlega og endurskoða gildandi samninga ef samningsaðilar telja ástæðu til.
    Í stað 2. mgr. gildandi ákvæðis er lagt til að mælt verði fyrir um heimild ráðherra til að framlengja samninga við aðra skóla en opinbera framhaldsskóla um allt að fimm ár í senn ef engar verulegar breytingar hafa orðið á starfsemi skólans og engin frávik hafa komið upp í tengslum við framkvæmd samningsins. Líkt og rakið er í 2. kafla frumvarpsins hafa ákveðnar breytingar orðið á ytra umhverfi samninga við aðra skóla en opinbera framhaldsskóla, þar á meðal með lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, og lögum um opinber innkaup, nr. 120/2016. Þá hafa ákveðnir framhaldsskólar sem reknir eru af einkaaðilum fest sig í sessi. Með hliðsjón af eðli þeirrar starfsemi sem um ræðir og rétti nemenda til menntunar er lagt til að þegar samningar við þá einkaaðila renna út verði ekki ráðist í umfangsmikið ferli. Gert er ráð fyrir að áður en ráðherra taki ákvörðun um að framlengja slíkan samning skuli upplýsingar um framkvæmd samningsins liggja fyrir eigi síðar en sex mánuðum áður en samningurinn rennur út. Heimild til endurnýjunar samnings er háð því að engar verulegar breytingar hafi orðið á starfsemi viðkomandi skóla og engin frávik hafi komið upp í tengslum við samninginn.

Um 17. gr.

    Ákvæðið þarfnast ekki skýringa.

Um 18. gr.

    Í a- og b-lið ákvæðisins er lagt að vísað verði til ráðherra þar sem ekki er talin ástæða til að fela undirstofnun verkefni tengd viðurkenningu lýðskóla.
    Í c-lið ákvæðisins er lögð til breyting sem tengist 4. gr. frumvarpsins. Lagt er til að ráðherra verði heimilt að veita lýðskólum viðurkenningu til bráðabirgða á meðan umsókn er til meðferðar. Vísað er til frekari skýringa við 4. gr. frumvarpsins.