Ferill 285. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 321  —  285. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um endurskoðun á fyrirkomulagi og umfangi tryggingagjalds og launatengdra gjalda.


Flm.: Stefán Vagn Stefánsson.


    Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að skipa starfshóp sem framkvæmi heildstæða endurskoðun á fyrirkomulagi og umfangi tryggingagjalds, sem og annarra launatengdra gjalda, sem falla á lítil og meðalstór fyrirtæki, með sérstakri áherslu á að kanna ávinning þess að lækka eða fella niður gjöld gagnvart þessum fyrirtækjum. Starfshópurinn skili niðurstöðum sínum og tillögum að breytingum eigi síðar en í byrjun nóvember 2025.
    Starfshópurinn verði skipaður af fjármála- og efnahagsráðuneytinu og í honum eigi sæti:
              ¯      Fulltrúi fjármála- og efnahagsráðuneytis (formaður).
              ¯      Fulltrúi atvinnuvegaráðuneytis.
              ¯      Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
              ¯      Fulltrúi Samtaka atvinnulífsins (SA).
              ¯      Fulltrúi samtaka lítilla og meðalstórra fyrirtækja (Litla Ísland).
              ¯      Fulltrúi BHM eða ASÍ, í samráði við heildarsamtök launafólks.
              ¯      Sérfræðingur á sviði skattaréttar eða hagfræði, skipaður af fjármála- og efnahagsráðherra.
    Starfshópurinn starfi í nánu samráði við Skattinn, Hagstofu Íslands og aðra þá aðila sem geta veitt nauðsynleg gögn og innsýn.
    Helstu verkefni starfshópsins skulu vera:
              1.      Að fjalla um samhengi launatengdra gjalda og nýsköpunar innan lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem er lykilþáttur í að auka fjölbreytni atvinnulífsins og stuðla að hagvexti.
              2.      Að meta hvernig unnt sé að fella niður almennt tryggingagjald (eða að lækka það um helming) á fyrirtæki sem telja 20 starfsmenn eða færri.
              3.      Að greina hvort og hvernig tryggingagjald og önnur launatengd gjöld geti tekið mið af stærð fyrirtækja, getu þeirra til hagræðingar og fjármálaumsvifum þeirra.
              4.      Að skoða hvort hægt sé að ná markmiðum gjaldtöku á skilvirkari hátt, meta ávinning lægri gjaldtöku en þó án þess að rýra tekjur ríkissjóðs til lengri tíma litið, í samræmi við varúðarsjónarmið og sjálfbærni fjármála ríkisins, sbr. lög um opinber fjármál, nr. 123/2015.
              5.      Að leggja mat á samkeppnishæfni smærri og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi í framangreindu ljósi í samanburði við rekstrarumhverfi smærri og meðalstórra fyrirtækja í Noregi.
        

Greinargerð.

    Tryggingagjald er í eðli sínu skattur sem rennur í almennar tekjur ríkissjóðs. Þótt gjaldið hafi upphaflega verið hugsað sem framlag til að standa undir velferðar- og tryggingakerfum, er það í dag ekki eyrnamerkt tilteknum útgjöldum eða þjónustu.
    Tryggingagjaldið árið 2025 er 6,35% af heildarlaunum og skiptist í eftirfarandi þætti:
          ¯      Almennt tryggingagjald: 4,90%.
          ¯      Atvinnutryggingagjald: 1,35%.
          ¯      Gjald í Ábyrgðasjóð launa: 0,05%.
          ¯      Markaðsgjald: 0,05%.
    Launagreiðendur bera gjaldið og það leggst því beint á launakostnað fyrirtækja, óháð stærð þeirra. Auk tryggingagjalds greiða atvinnurekendur jafnframt önnur launatengd gjöld:
          ¯      Lífeyrissjóðsframlag atvinnurekanda: lágmark 11,5%.
          ¯      Orlofslaun: að lágmarki 10,17% (getur verið hærra samkvæmt kjarasamningum).
          ¯      Sjúkrasjóðs- og stéttarfélagsgjöld: oft 1-1,5%.
          ¯      Vinnuslysatrygging: breytilegt eftir starfsgrein.
          ¯      Framlag í starfsmenntasjóði: gjarnan 0,3-0,5%.
    Þegar allt er lagt saman getur heildarhlutfall launatengdra gjalda sem atvinnurekandi greiðir numið 30% eða meira af launakostnaði.
    Ástæðan fyrir endurskoðun tryggingagjalds og annarra gjalda er sú að álögur þeirra leggjast hlutfallslega þyngra á lítil og meðalstór fyrirtæki en þau stærri. Stærri fyrirtæki búa oft við meira svigrúm til hagræðingar, t.d. með aukinni tæknivæðingu og sjálfvirknivæðingu í rekstri, betri möguleika á fjármögnun og njóta stærðarhagkvæmni. Slíkt misvægi getur hamlað vexti minni fyrirtækja, dregið úr samkeppnishæfni þeirra og haft neikvæð áhrif á fjölbreytni atvinnulífsins. Einnig ber að hafa í huga að annar fastur kostnaður, svo sem bókhalds- og endurskoðendakostnaður, vegur hlutfallslega þyngra hjá smærri fyrirtækjum og dregur þannig úr svigrúmi þeirra til vaxtar.
    Með endurskoðun tryggingagjalds og annarra gjalda er leitast við að stuðla að sanngjarnara og skilvirkara kerfi. Markmiðið er að styrkja rekstrargrundvöll smærri fyrirtækja, auka samkeppnishæfni þeirra og stuðla að fjölgun þeirra og þar með fjölgun starfa í samfélaginu. Lækkun gjalda á smærri fyrirtæki gæti einnig hvatt til stofnunar nýrra fyrirtækja og þannig stuðlað að aukinni grósku og nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Slíkt hefði jákvæð áhrif á atvinnustig, hagvöxt og tekjur ríkis og sveitarfélaga. Þó búast megi við að lækkun gjalda geti haft tímabundin áhrif á tekjur ríkissjóðs, er á móti líklegt að fjölgun virkra og öflugra fyrirtækja skili sér í auknum skatttekjum og styrkari efnahagslegri stöðu til lengri tíma litið.

Samanburður við Noreg.
    Í Noregi er tryggingagjald atvinnurekenda á bilinu 0% til 14,1% eftir svæðum og atvinnugreinum, þó algengast sé 14,1%. Auk þess greiða atvinnurekendur að lágmarki 2% í lífeyrisiðgjald sem getur numið allt að 5% í sumum tilfellum. Þannig eru heildarlaunatengd gjöld atvinnurekenda í Noregi yfirleitt á bilinu 2–19% af launum sem er lægra en hér á landi þar sem þau geta farið yfir 30%. Markverður er einnig munur á sveigjanleika gjaldtökunnar, t.d. eftir landssvæðum, sem getur styrkt samkeppnisstöðu smærri fyrirtækja.
    Mikilvægt er að afla haldgóðra gagna um tekjur ríkissjóðs af tryggingagjaldi og öðrum gjöldum og greina ítarlega hvaða fjárhæðir fyrirtæki með t.d. fimm eða tíu starfsmenn greiða í gjöld á ársgrundvelli. Slík greining er forsenda þess að mat á áhrifum hugsanlegrar lækkunar eða niðurfellingar gjalda á smærri fyrirtæki sé byggt á skýrum og faglegum forsendum.