Ferill 286. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 322 — 286. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um stuðningskerfi fyrir öryrkja til menntunar og aukinnar atvinnuþátttöku.
Flm.: Ingibjörg Isaksen.
Alþingi ályktar að fela félags- og húsnæðismálaráðherra að koma á fót heildstæðu og endurbættu stuðningskerfi fyrir öryrkja til menntunar og aukinnar atvinnuþátttöku. Stuðningskerfið verði mótað og innleitt eins fljótt og verða má.
Greinargerð.
Á síðasta ári var gerð grundvallarbreyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með innleiðingu hlutaörorkulífeyris, sem hvetja á til aukinnar atvinnuþátttöku öryrkja. Samkvæmt breytingunni fær hluti þeirra sem fara á lífeyri eftir 1. september nk. aðeins 82% af fullum örorkulífeyri og þarf því að afla aukinna tekna til að tryggja lágmarksframfærslu. Því er enn mikilvægara en ella að gera róttækar breytingar á fyrirkomulagi stuðnings til menntunar og aukinnar atvinnuþátttöku.
Með nýju og markvissu stuðningskerfi fyrir öryrkja er stefnt að eftirfarandi meginmarkmiðum:
1. Auka félagslega þátttöku og sjálfstæði. Menntun styrkir sjálfstæði fólks og minnkar þörf fyrir aðra opinbera aðstoð.
2. Nýta betur hæfileika og vilja einstaklinga. Margir öryrkjar hafa vilja til að leggja sitt af mörkum en skortir tækifæri og stuðning til þess.
3. Draga úr atvinnuleysi og efla fjölbreytni á vinnumarkaði. Endurmenntun stuðlar að meiri atvinnuþátttöku og dregur úr félagslegri einangrun.
Forsenda stuðningskerfisins er stofnun sérstaks styrktarsjóðs sem veitir öryrkjum fjárhagsaðstoð til menntunar og starfsþjálfunar. Mikilvægt er jafnframt að nýja stuðningskerfið byggist á eftirfarandi þáttum:
1. Að boðið sé upp á einstaklingsmiðaða ráðgjöf hjá Vinnumálastofnun eða öðrum viðeigandi stofnunum í samræmi við 15. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, sem kveður á um samvinnu við aðra þjónustuaðila.
2. Að stuðlað sé að sveigjanlegu námi með því að hvetja menntastofnanir til að bjóða upp á námsleiðir sem henta fólki með skerta færni, svo sem fjarnám eða nám með vinnu.
3. Að lögð sé áhersla á samstarf við fyrirtæki og stofnanir við að móta störf við hæfi og tengingu við atvinnulíf þannig að öryrkjar fái raunhæf tækifæri á vinnumarkaði að loknu námi.
4. Að fjármögnun stuðningskerfisins verði að fullu tryggð úr ríkissjóði í samræmi við lög um opinber fjármál, nr. 123/2015.
Við mótun nýrra áherslna er eðlilegt að núverandi fyrirkomulag stuðnings verði endurskoðað. Mikilvægt er jafnframt að hafa í huga að endurbætt og fullfjármagnað stuðningskerfi getur stuðlað að aukinni atvinnuþátttöku og minnkað kostnað samfélagsins vegna óvirkni. Þessi nálgun byggist á grundvallarviðmiðum um mannréttindi, jafnræði og jafnrétti til tækifæra.
Reynslan sýnir að fjárfesting í stuðningi við öryrkja eykur sjálfstæði einstaklinga, dregur úr félagslegri einangrun og nýtir betur mannauð samfélagsins. Með innleiðingu slíks kerfis er dreginn mikilvægur lærdómur af reynslu annarra þjóða og öryrkjum tryggð raunhæf tækifæri til þátttöku á vinnumarkaði, með jákvæðum áhrifum fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Fjölmörg lönd hafa komið á stuðningskerfum sem hjálpa öryrkjum að fá menntun eða starfsþjálfun og komast aftur út á vinnumarkaðinn, m.a.:
* Noregur: NAV (vinnumála- og velferðarstofnunin) veitir styrki til endurmenntunar og starfsnáms til að aðlaga fólk að nýjum störfum.
* Svíþjóð: Arbetsförmedlingen (vinnumiðlun) veitir fjárstuðning til menntunar og greiðir námskostnað að hluta.
* Þýskaland: Deutsche Rentenversicherung (lífeyristryggingar) veitir styrki til menntunar og aðstoðar við atvinnuleit eftir nám.
* Kanada: Canada Student Grant for Students with Permanent Disabilities og Workplace Safety and Insurance Board (WSIB) veita fjárhagsstuðning og námsstyrki.
* Ástralía: National Disability Insurance Scheme (NDIS) styður við nám og starfsþjálfun einstaklinga með áherslu á aukið sjálfstæði og atvinnuþátttöku.
Tillaga um mótun nýs stuðningskerfis fyrir öryrkja til menntunar og aukinnar atvinnuþátttöku styður vel við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, einkum markmið nr. 4 um menntun fyrir öll, nr. 8 um góða atvinnu og hagvöxt og nr. 10 um aukinn jöfnuð. Einnig samræmist tillagan ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (CRPD), sem Ísland hefur fullgilt, og byggist á því að allir hafi rétt til að lifa sjálfstæðu lífi og taka virkan þátt í samfélaginu án mismununar. Að auki er þessi nálgun í samræmi við leiðbeinandi tilmæli Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), sem leggja áherslu á mikilvægi endurhæfingar og atvinnuþátttöku einstaklinga með skerta starfsgetu.
Með því að fjárfesta í öflugu stuðningskerfi fyrir menntun og atvinnuþátttöku öryrkja getur Ísland þannig orðið fyrirmynd annarra þjóða í að mæta alþjóðlegum viðmiðum um mannréttindi, jafnrétti og sjálfbæra samfélagsþróun.