Ferill 290. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 327 — 290. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um leikskóla, nr. 90/2008 (einkareknir leikskólar).
Flm.: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Jens Garðar Helgason, Rósa Guðbjartsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Jón Pétur Zimsen, Diljá Mist Einarsdóttir, Jón Gunnarsson, Njáll Trausti Friðbertsson.
1. gr.
Leikskóla sem starfar á grundvelli leyfis skv. 25. gr. er heimilt að veita börnum starfsmanna þess lögaðila sem stendur að rekstri hans forgang við innritun.
Njóti einkarekinn leikskóli framlags úr sveitarsjóði ber sveitarfélagi að greiða slíkum skóla sömu fjárhæð með hverju barni svo lengi sem hann uppfyllir skilyrði laga fyrir starfsemi leikskóla og reglna sem sveitarfélög setja á grundvelli laganna.
2. gr.
Greinargerð.
Þrátt fyrir að flest sveitarfélög taki einkaframtaki í leikskólamálum fagnandi og líti á slíka leikskóla sem hluta af lausninni en ekki vandamálinu er það ekki algilt. Til dæmis neitaði Reykjavíkurborg að greiða með börnum sem sækja leikskóla rekna af tilteknu fyrirtæki. Í lögum um leikskóla er ekkert sem kemur í veg fyrir að sveitarfélög ákveði að veita tilteknum einkareknum leikskólum framlag úr sveitarsjóði en öðrum ekki. Leikskólar sem reknir eru af fyrirtækjum, svokallaðir fyrirtækjaleikskólar, veita börnum starfsmanna fyrirtækisins alltaf forgang við innritun í skólann, enda er það grundvöllur þess að fyrirtæki ákveði að starfrækja leikskóla að börn starfsmanna þess komist á leikskóla sem fyrst og foreldrar þeirra þurfi ekki að vera frá vinnu í lengri tíma til að brúa bilið. Það er því algjör forsenda fyrir slíkum leikskólum að börn starfsmanna njóti forgangs. Hefur það fyrirkomulag sætt gagnrýni á þeirri forsendu að það brjóti gegn jafnræðisreglu og ekki megi líta til starfa foreldra við ákvörðun um innritun. Sú túlkun á 26. gr. laga um leikskóla stenst hins vegar illa skoðun, en þar kemur fram að við innritun í leikskóla megi setja sérstakar innritunarreglur með tilliti til aðstæðna barna og foreldra annars vegar og hins vegar með tilliti til aðstæðna í leikskólum sveitarfélagsins. Í ljósi þess að forgangur barna starfsmanna fyrirtækja er forsenda þess að fyrirtækjaleikskólar séu settir á fót verður ekki annað séð en slík forgangsregla samræmist 26. gr. laganna.
Nú þegar eru ýmsar sérstakar forgangsreglur í gildi í sveitarfélögum, m.a. reglur sem lúta að störfum foreldra barna, en í flestum ef ekki öllum sveitarfélögum njóta börn starfsmanna leikskólans forgangs við innritun. Því fæst ekki staðist að óheimilt sé að líta til starfa foreldra við innritun í leikskóla. Allar forgangsreglur verða þó að byggjast á málefnalegum grunni.
Í frumvarpi þessu er því lagt til að lögfest verði sérstaklega heimild einkarekinna leikskóla til að veita börnum starfsmanna þess aðila sem hann rekur forgang við innritun. Sé slík heimild ekki til staðar geta einstök sveitarfélög í reynd útilokað fyrirtækjaleikskóla frá framlögum úr sveitarsjóði með því að haga innritunarreglum sínum þannig að slíkir leikskólar geti ekki uppfyllt þær. Þá er jafnframt kveðið á um að njóti einkareknir leikskólar á annað borð framlags úr sveitarsjóði sveitarfélags er sveitarfélaginu skylt að greiða öllum slíkum skólum sömu fjárhæð með hverju barni sem gengur í skólann. Með þessu er tryggt að skoðanir sveitarstjórna á ákveðnum fyrirtækjum eða tiltekinni starfsemi geti ekki staðið í vegi fyrir því að greitt sé með hverju leikskólabarni.
Með framangreindu er þó ekki verið að gefa einkareknum leikskólum undanþágu frá lögum um leikskóla eða þeim reglum sem settar eru samkvæmt þeim, hvort sem þær eru settar af ráðherra eða sveitarfélögum. Eingöngu er verið að tryggja jafnræði á milli einkarekinna leikskóla og annarra og lögfesta heimild til að veita börnum starfsmanna þeirra fyrirtækja sem reka leikskóla forgang við innritun í viðkomandi skóla, enda er slík forgangsregla forsenda þess að slíkur skóli sé starfræktur.
Verði frumvarp þetta að lögum má ætla að fleiri og öflugri leikskólar verði byggðir, sérstaklega í þeim sveitarfélögum sem leikskólavandinn er mestur.