Ferill 293. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 331 — 293. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um stuðning frá Alþjóðaþróunarstofnun Bandaríkjanna.
Frá Snorra Mássyni.
1. Hafa stjórnvöld hlotið beinan eða óbeinan stuðning af einhverju tagi frá Alþjóðaþróunarstofnun Bandaríkjanna (USAID)? Ef svo er, hver var tilgangur stuðnings og hvaða verkefni og stofnanir nutu hans?
2. Hversu háa fjárstyrki hafa stjórnvöld þegið frá Alþjóðaþróunarstofnun Bandaríkjanna? Hvernig voru fjárstyrkir nýttir? Eru til opinberar skýrslur eða yfirlit um úthlutun fjárstyrkja frá stofnuninni?
3. Munu stjórnvöld þiggja stuðning frá Alþjóðaþróunarstofnun Bandaríkjanna eftirleiðis? Ef svo er, á hvaða sviðum?
Skriflegt svar óskast.