Ferill 129. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.
Þingskjal 333 — 129. mál.
Málsnúmer.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021 (samræming við EES-reglur).
Frá umhverfis- og samgöngunefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Landsneti, Landsvirkjun, Samorku, Samtökum iðnaðarins og Viðskiptaráði Íslands.
Nefndinni bárust ellefu umsagnir sem aðgengilegar eru á síðu málsins á vef Alþingis.
Umfjöllun nefndarinnar.
Með frumvarpinu er annars vegar lögð til breyting á ákvæði a-liðar 1. mgr. 2. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana að því er varðar umhverfismat skipulagsáætlana og hins vegar á töluliðum 3.08 og 3.09 í 1. viðauka við lögin sem varða lengd og þvermál leiðslna til flutnings á nánar tilgreindum efnum/efnasamböndum.
Tilefni lagasetningar er að á 154. löggjafarþingi (619. mál) lagði þáverandi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir Alþingi skýrslu um „gullhúðun“ við innleiðingu EES-gerða frá árinu 2010 til 2022. Frumvarp þetta er afrakstur þeirrar vinnu sem unnin var í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu til þess að færa löggjöfina að þeim lágmarkskröfum sem gerðar eru í EES-gerðum. Með frumvarpinu eru framangreind ákvæði laga nr. 111/2021 annars vegar færð til samræmis við lágmarkskröfur tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2001/42/EB um mat á áhrifum tiltekins skipulags og áætlana á umhverfið og hins vegar I. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2011/92/ESB um mat á áhrifum sem tilteknar framkvæmdir á vegum hins opinbera eða einkaaðila kunna að hafa á umhverfið.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að við vinnslu frumvarpsins hafi borist sjö umsagnir í samráðsgátt stjórnvalda. Kemur fram að umsagnir hafi allar verið jákvæðar fyrir utan eina og í þeim hafi m.a. verið bent á önnur atriði sem ráðuneytið mætti taka til skoðunar með tilliti til samræmis við EES-reglur. Fram kemur að ábending um samræmi við EES-reglur er varðar varmaorkuver og matsskilyrði um stíflur og raflínur og einnig ábending er varðar einföldun og hagræðingu á lögbundnum skyldum stofnana verði teknar til frekari skoðunar í ráðuneytinu.
Við umfjöllun málsins í nefndinni komu fram ábendingar af sama tagi frá umsagnaraðilum, einkum um tilefni til frekari samræmingar við EES-reglur og afhúðunar í lögunum. Nefndin tekur undir mörg þau sjónarmið og ábendingar og fagnar því að ráðuneytið hafi þær ábendingar umsagnaraðila til frekari skoðunar í ráðuneytinu.
Nefndin tekur undir mat á áhrifum frumvarpsins sem ætlað er að hafi almennt jákvæð áhrif á samfélagið þar sem lagt er til að dregið verði úr reglubyrði. Það hafi einnig jákvæð áhrif á stjórnsýslu Skipulagsstofnunar og muni draga úr álagi á stofnunina.
Með 3. gr. frumvarpsins er lagt til að lögin öðlist þegar gildi. Lítur nefndin svo á að ákvæði þeirra muni taka bæði til nýrra skipulagsáætlana, sbr. 1. gr., og nýrra framkvæmda, sbr. 2. gr., sem og skipulagsáætlana og framkvæmda sem þegar eru til meðferðar hjá stjórnvöldum við gildistöku laganna, með vísan til þeirra grundvallarsjónarmiða íslensks réttar að nýjum lögum skuli eftir gildistöku beitt um öll lögskipti sem undir ákvæði þeirra falla þótt til hafi stofnast áður en lögin gengu í gildi. Auk þess er um að ræða ívilnandi breytingu sem er til samræmis við EES-reglur og til þess fallin að draga úr álagi á Skipulagsstofnun.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Sandra Sigurðardóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 1. apríl 2025.
| Ingibjörg Davíðsdóttir, 1. varaform. |
Sigurður Helgi Pálmason, frsm. |
Ása Berglind Hjálmarsdóttir. | |
| Dagur B. Eggertsson. | Fida Abu Libdeh. | Jens Garðar Helgason. | |
| Jónína Björk Óskarsdóttir. | Ólafur Adolfsson. | ||