Ferill 295. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 334  —  295. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um innleiðingu lýðheilsumats í íslenska löggjöf.


Flm.: Jóhann Friðrik Friðriksson.


     Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að ljúka vinnu við innleiðingu lýðheilsumats í íslenska löggjöf. Stefnt skuli að því að lýðheilsumat verði fastur hluti af stjórnsýsluferlum til að stuðla að bættri heilsu og vellíðan landsmanna. Til að ná þessum markmiðum skuli ráðherra skipa sérfræðihóp fulltrúa frá fagráðuneytum, fræðasamfélagi, sveitarfélögum og embætti landlæknis. Sérfræðihópurinn leggi til aðferðir sem tryggi áhrifaríkt mat á heilsufarslegum áhrifum stjórnarfrumvarpa. Sérfræðihópurinn skili stöðuskýrslu sem kynnt verði Alþingi eigi síðar en 1. janúar 2026.

Greinargerð.

    Tillaga sama efnis og sú sem hér er lögð fram var fyrst flutt á 153. löggjafarþingi. Bárust um hana níu umsagnir. Þegar hún var endurflutt á 154. löggjafarþingi hafði verið tekið tillit til umsagnar embættis landlæknis og bárust velferðarnefnd fjórar jákvæðar umsagnir. Undirstrikuðu þær mikilvægi þess að innleiða lýðheilsumat í íslenska löggjöf. Tillagan er nú endurflutt lítið breytt.
    Flutningsmaður leggur til að lýðheilsumat verði fest í sessi sem fastur hluti stjórnsýslu á Íslandi. Lýðheilsumat er áhrifarík og einföld aðferð til að meta bein og óbein áhrif stjórnsýsluákvarðana og lagasetningar á lýðheilsu. Með innleiðingu lýðheilsumats skuli leitast við að tryggja að ákvarðanir stjórnvalda byggist á vandaðri og heildstæðri greiningu á heilsufarslegum áhrifum þeirra. Markmið þessa verði að tryggja að stjórnarfrumvörp sem lögð eru fyrir Alþingi verði metin miðað við áhrif þeirra á heilsu þjóðarinnar.
    Lífslíkur landsmanna hafa aukist verulega undanfarna áratugi og aldurssamsetning þjóðarinnar er að breytast. Í mannfjöldaspá Hagstofu Íslands í desember árið 2020 var gert ráð fyrir því að þeir sem eru 65 ára og eldri verði 20% mannfjöldans árið 2037 og meira en 25% árið 2064. Það þýðir að færri verða á vinnumarkaði fyrir hvern og einn sem er 65 ára og eldri. Samhliða þessu eykst sú byrði sem hlýst af langvinnum sjúkdómum og ýmsar áskoranir eru á sjóndeildarhringnum, m.a. vegna loftslagsbreytinga. Ef ekki verður brugðist við með markvissum hætti er ljóst að kostnaður og þjónustuþörf í heilbrigðiskerfinu og öðrum kerfum mun aukast verulega. Það veldur verulega neikvæðum áhrifum á samfélagið í heild. Flutningsmaður telur því mikilvægt að innleiða lýðheilsumat til að bregðast við þessum áskorunum.
    Heilsu má greina í líkamlega, andlega og félagslega vellíðan. Eitt mikilvægasta viðfangsefni stjórnvalda er að tryggja velsæld landsmanna miðað við þessa þætti. Stjórnvöld vinna að því markmiði með kerfum sem einkenna velferðarríki. Áhrifum á heilsu má skipta í fimm meginþætti: 1) áhrif löggjafar af hálfu stjórnvalda, 2) áhrif samfélagsins, 3) áhrif stofnana, 4) áhrif ýmissa hópa í samfélaginu og 5) persónulega þætti. Löggjöf skilar mestum heilsufarslegum ábata fyrir heildina þegar litið er til arðsemi og fyrirbyggjandi aðgerða. Því er mikilvægt að íslensk stjórnvöld meti áhrif löggjafar á heilsu á sama hátt og áhrif á jafnrétti kynjanna, umhverfisáhrif og kostnað. Um þessar mundir eru áhrif löggjafar iðulega metin á tveimur sviðum. Er það jafnréttismat á stjórnarfrumvörpum og viðamikill lagarammi sem gildir um umhverfismat. Hér er lagt til að horft verði til löggjafar og framkvæmdar í Finnlandi þar sem lagafrumvörp eru metin miðað við áhrif á lýðheilsu.
    Lýðheilsa er þverfagleg og tengist nær öllum sviðum daglegs lífs. Í lýðheilsustefnu til ársins 2030 er kveðið á um að stjórnvöldum beri að hafa lýðheilsu að leiðarljósi í áætlanagerð og stefnumótun í heilbrigðismálum, félagsmálum, menntamálum, skipulags- og samgöngumálum, umhverfismálum, nýsköpun og vísindarannsóknum og skatta- og efnahagsmálum. Löggjöf þarf að vera skýr. Í henni þarf að vera kveðið á um hlutverk heilbrigðisstofnana, sveitarfélaga og annarra sem sinna lýðheilsustarfi. Markmið lýðheilsustarfs þurfa að vera ljós og árangur þess aðgengilegur almenningi. Tilgangurinn er að skýra hlutverk og samhæfingu í lýðheilsustarfi.
    Rannsóknir sýna að áhrif löggjafar á heilsu vega þungt. Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar og almenningur hafi bestu mögulegu upplýsingar um áhrif laga og reglugerða á heilsu og lífsgæði. Embætti landlæknis, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og Sameinuðu þjóðirnar hafa hvatt til innleiðingar lýðheilsumats sem byggist á auknu upplýsingagildi og betri ákvarðanatöku stjórnvalda. Framkvæmd lýðheilsumats byggist á sannreyndum aðferðum og mikilli fræðilegri þekkingu. Embætti landlæknis býr yfir afburðaþekkingu á sviði lýðheilsu og forvarna og er því eðlilegt að stofnunin komi að útfærslu á lýðheilsumati í löggjöf.
    Opinber umræða og aðgerðir stjórnvalda undanfarin ár benda til breiðrar samstöðu um að Íslendingar taki Finna sér til fyrirmyndar og innleiði lýðheilsumat. Willum Þór Þórsson lagði áherslu á málaflokkinn þegar hann var heilbrigðisráðherra og helgaði heilbrigðisþing árið 2022 lýðheilsu, heilsueflingu, forvörnum og heilsulæsi. Innleiðing lýðheilsumats var ein af aðaláherslum í aðgerðaáætlun um lýðheilsustefnu sem kynnt var á þinginu. Núverandi heilbrigðisráðherra, Alma Möller, sem áður var landlæknir og ötull talsmaður lýðheilsu í því embætti, hefur verið málinu hliðholl. Auk þess eru umsagnir um málið allar á einn veg.
    Heilsan er dýrmætasta eign okkar. Í könnun meðal landsmanna kom skýrt fram að heilsan væri mikilvægasti þáttur lífsgæða. Tillaga þessi um innleiðingu lýðheilsumats er í samræmi við almenn markmið um lýðheilsu, forvarnir og geðheilbrigðismál. Með tillögunni er leitast við að tryggja að fagleg útfærsla á lýðheilsumati verði þáttur í vegferð í átt að bættri heilsu og vellíðan landsmanna og komandi kynslóða.