Ferill 297. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 336  —  297. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og barnamálaráðherra um rafræn próf í íslensku.

Frá Pawel Bartoszek.


    Hvernig miðar vinnu við stöðluð rafræn íslenskupróf sem byggjast á Samevrópska tungumálarammanum (CEFR), sbr.þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024–2026? Hvaða matsþrep á skalanum A1–C2 er reiknað með að prófin nái yfir þegar fyrst verður opnað fyrir þau?


Munnlegt svar óskast.