Ferill 302. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 345  —  302. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um upprunaábyrgðir raforku.

Frá Karli Gauta Hjaltasyni.


     1.      Hversu margar upprunaábyrgðir raforku hafa íslensk orkufyrirtæki selt árlega frá og með árinu 2018 og hvert er heildarverðmæti seldra upprunaábyrgða, annars vegar úr landi og hins vegar innan lands (afskráðar upprunaábyrgðir), árlega frá sama tíma?
     2.      Hvaða orkufyrirtæki voru seljendur og hverjir kaupendur upprunaábyrgða raforku og hvert var söluverð upprunaábyrgða á hverjum tíma, árlega frá og með 2018?
     3.      Telur ráðherra að sala á upprunaábyrgðum raforku hafi áhrif á alþjóðlegar skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum? Ef svo er, hvernig?
     4.      Telur ráðherra að sala á upprunaábyrgðum raforku eigi enn almennt ekki að hafa áhrif á möguleika innlendra kaupenda raforku til að sýna fram á hreinan uppruna raforkunotkunar sinnar, með vísan til svars ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn á 149. löggjafarþingi (326. mál)? Ef svo er, þá á hvaða hátt?
     5.      Má búast við að verð á upprunaábyrgðum hafi áhrif á raforkuverð innan lands? Sérstaklega er þess óskað að greint verði frá áhrifum, ef þau eru talin vera fyrir hendi, á raforkuverð til smærri fyrirtækja, grænmetis- og iðnframleiðenda.
     6.      Telur ráðherra að upprunaábyrgðir hafi haft aukin áhrif á möguleika fyrirtækja til að fá framleiðslu sína eða starfsemi vottaða samkvæmt alþjóðlegum og evrópskum umhverfisstöðlum og að þær hafi í auknum mæli haft áhrif á vistferilsgreiningar og útreikninga á kolefnisspori, sbr. skýrsluna Upprunaábyrgðir í íslensku samhengi sem var unnin fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og kom út árið 2016?
     7.      Með hvaða hætti hyggst ráðherra framfylgja ákvæðum 7. gr. reglugerðar nr. 757/2012?


Skriflegt svar óskast.