Ferill 303. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 346  —  303. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um jafnlaunavottun.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hyggst ráðherra bregðast við því að rannsóknir hafa ekki sýnt marktækan mun á kynbundnum launamun milli þeirra aðila sem hafa innleitt jafnlaunastaðalinn og fengið jafnlaunavottun annars vegar og þeirra sem ekki hafa gert það hins vegar?
     2.      Telur ráðherra að tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar um einföldun og endurskoðun á jafnlaunavottunarferlinu gangi nægilega langt?
     3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að tekið verði sérstaklega til skoðunar hvaða kostnaður fellur til hjá atvinnulífinu og opinberum stofnunum vegna jafnlaunavottunar, með það að markmiði að draga úr slíkum kostnaði?


Munnlegt svar óskast.