Ferill 304. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 347  —  304. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um erindi frá Skattinum.

Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.


     1.      Hversu mörg erindi sendi Skatturinn á lögaðila og einstaklinga á árunum 2019–2024?
     2.      Hversu langan tíma tók það Skattinn að svara lögaðilum og einstaklingum eftir að svör bárust frá þeim? Óskað er upplýsinga um hve mörgum erindum var svarað innan mánaðar, þriggja mánaða, sex mánaða, tólf mánaða og eftir lengri tíma en ár.


Skriflegt svar óskast.