Ferill 106. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 349 — 106. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Þorgrími Sigmundssyni um úthlutun byggðakvóta.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur ráðherra vikið frá því að beita ákvæði E-liðar 2. gr. reglugerðar nr. 818/2024 um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2024/2025? Ef svo er, hvenær var það gert og á hvaða forsendum?
Reglugerð nr. 818/2024, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2024/2025, skilgreinir þær reglur sem stuðst er við varðandi skiptingu þeirrar ráðstöfunar sem tilgreind er í 5. gr. reglugerðar nr. 817/2024, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2024/2025 og almanaksárið 2025, er varðar byggðakvóta til fiskiskipa. Í E-lið 2. gr. reglugerðar nr. 818/2024 segir: „Þegar reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga skv. A-lið hér að framan, skal hlutur byggðarlaga með færri íbúa en 400 og sem úthlutað var aflaheimildum á fiskveiðiárinu 2023/2024, og eiga rétt til úthlutunar fiskveiðiárið 2024/2025, leiðréttur þannig að ekkert þeirra lækki um meira en 15 þorskígildistonn, milli fiskveiðiáranna 2023/2024 og 2024/2025.“
Í E-lið er sérstaklega tekið fram að þegar reiknaður er hlutur skv. A-lið skuli leiðrétta hlut byggðarlaga með færri en 400 íbúa. Því er það túlkun ráðuneytisins að þegar byggðarlag á samkvæmt reiknireglu ekki rétt á úthlutun komi ekki til takmörkunar á lækkun skv. E-lið. Engu að síður eru tilvik þar sem ráðuneytið hefur metið að ástæða sé til úthlutunar í byggðarlögum sem þó eiga ekki rétt á úthlutun samkvæmt reiknireglu eftir að kannað hefur verið hvort raunverulegar breytingar hafi orðið á útgerð eða botnfisksvinnslu í viðkomandi byggðarlagi á grundvelli heimildarákvæðis reglugerðarinnar. Þannig hefur úthlutun til byggðarlaga á undanförnum árum verið leiðrétt í einstaka tilvikum í byggðarlögum sem ekki eiga rétt á úthlutun samkvæmt reiknireglu þegar komið hefur í ljós eftir athugun ráðuneytis að ástæða sé til úthlutunar.