Ferill 317. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 362 — 317. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um gjaldfrjáls bílastæði fyrir hreyfihamlaða.
Frá Vilhjálmi Árnasyni.
1. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að hreyfihamlaðir einstaklingar geti lagt bílum sínum gjaldfrjálst í gjaldskyld bílastæði, sbr. 2. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 1130/2016, þar sem myndavélaeftirlit fer fram og krafa er stofnuð sjálfvirkt? Ef svo er, til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa?
2. Telur ráðherra að sýslumenn ættu að veita innheimtuaðilum aðgang að P-merkjaskrá til að koma í veg fyrir að hreyfihömluðum verði send krafa fyrir það að leggja í gjaldskyld bílastæði?
Skriflegt svar óskast.