Ferill 98. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.

Þingskjal 363  —  98. mál.
Leiðrétt nafn.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 (niðurfelling fasteignaskatta í Grindavíkurbæ).

Frá umhverfis- og samgöngunefnd.


    Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti frá innviðaráðuneyti, Grindavíkurbæ, Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ og Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
    Nefndinni bárust þrjár umsagnir, auk minnisblaðs frá innviðaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Með lögum nr. 4/2024, um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, sem samþykkt voru á Alþingi 31. janúar 2024 voru fimm ákvæði til bráðabirgða, XXIX– XXXIII, lögfest. Með þremur þeirra, ákvæði XXIX, XXX og XXXI, var Grindavíkurbæ veitt skilyrt heimild til að fella niður fasteignaskatta vegna álagningar á árinu 2024. Lagasetningin var hluti af viðbrögðum stjórnvalda til að bregðast við þeirri náttúruvá sem þá vofði enn yfir Grindavíkurbæ, en bærinn var rýmdur 10. nóvember 2023 eftir að lýst var yfir neyðarstigi almannavarna.
    Með frumvarpinu er lagt til að framlengja heimildir Grindavíkurbæjar til að fella niður fasteignaskatta í sveitarfélaginu vegna náttúruvár sem steðjar enn að sveitarfélaginu.

Ákvæði til bráðabirgða XXIX, XXX og XXXI.
    Samkvæmt 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga skulu sveitarfélög árlega leggja fasteignaskatt á allar fasteignir sem metnar eru í fasteignamati 31. desember á næstliðnu ári samkvæmt fasteignaskrá, sbr. þó 4. mgr. 4. gr. og 5. gr. laganna. Með bráðabirgðaákvæði XXIX var Grindavíkurbæ veitt heimild til að falla frá álagningu fasteignaskatts í heild eða að hluta á árinu 2024, vegna yfirvofandi náttúruvár. Jafnframt var bæjarstjórn heimilt að gera greinarmun á fasteignum þegar fasteignaskattur er felldur niður í heild eða að hluta á grundvelli þess í hvaða flokk fasteignir falla skv. 3. mgr. 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, eða hvort þær eru í þéttbýli, dreifbýli eða á hættusvæðum sem skilgreind eru af Veðurstofu Íslands. Með ákvæði til bráðabirgða XXX var bæjarstjórn jafnframt veitt heimild til að fresta hverjum gjalddaga ársins 2024 um sex mánuði og með ákvæði til bráðabirgða XXXI var gildistími lögveðs í fasteign sem er andlag fasteignaskatts ársins 2024 tvöfaldaður úr tveimur árum í fjögur. Óvissa ríkir enn um búsetu í Grindavíkurbæ vegna yfirvofandi náttúruvár og sem fyrr segir er lagt til að gildistími ákvæðanna verði framlengdur þannig að þau taki einnig til álagningar fasteignaskatta á árinu 2025.
    Samtök atvinnulífsins lýsa í umsögn sinni stuðningi við efni frumvarpsins. Hins vegar árétta samtökin efasemdir sem þau settu fram við frumvarp það er varð að lögum nr. 4/2024. Samtökin hvetja til þess að áður en ákveðið verði að framlengja gildistíma bráðabirgðaákvæðanna þriggja verði felld niður heimild bæjarstjórnar til að gera áðurnefndan greinarmun á fasteignum við niðurfellingu fasteignaskatta í heild eða að hluta eða gert skýrar til hvaða sjónarmiða skal líta við slíka ákvörðun.
    Nefndin leggur ekki til breytingar á framangreindum ákvæðum og vísar til þess að enn vofir náttúruvá yfir Grindavíkurbæ líkt og þegar ákvæðin voru lögfest. Nefndin tekur jafnframt undir með Grindavíkurbæ að mikilvægt sé að afgreiða málið sem fyrst svo að forsendur við álagningu fasteignaskatts á árinu 2025 liggi skýrt fyrir.

Fjárhagsleg staða Grindavíkurbæjar.
Ákvæði til bráðabirgða XXXII (fasteignaskattsjöfnunarframlag úr Jöfnunarsjóði).
    Í umsögn sinni um frumvarpið vekur Grindavíkurbær athygli Alþingis á því að ekki er lagt til að framlengja gildistíma ákvæðis til bráðabirgða XXXII sem einnig var bætt við lög um tekjustofna sveitarfélaga, með lögum nr. 4/2024. Ákvæðið mælti fyrir um breytingu á viðmiðum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga við útreikning á fasteignaskattsjöfnunarframlagi til bæjarfélagsins í þeim tilgangi að koma í veg fyrir skerðingar vegna ársins 2024 og óskar Grindavíkurbær eftir því að gildistími ákvæðisins verði framlengdur.
    Í umsögn Grindavíkurbæjar kemur fram að ef ákvæðið gildir áfram vegna álagningar fasteignaskatta á árinu 2025 fáist sama framlag úr Jöfnunarsjóði skv. d-lið 1. mgr. 11. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga og ef ekki hefðu orðið náttúruhamfarir. Að óbreyttu sé fyrirséð að fasteignaskattsjöfnunarframlag Jöfnunarsjóðs til bæjarfélagsins komi til með að lækka um tugi milljóna króna. Skattstofn til álagningar fasteignaskatts hafi minnkað verulega þar sem stærstur hluti íbúðarhúsnæðis í Grindavík er nú kominn í eigu Þórkötlu og þær fasteignir því ekki teknar með við útreikning Jöfnunarsjóðs á framlaginu. Meðan ekki sé lagður á fasteignaskattur í þéttbýli í Grindavík sé brýn þörf á framlengingu bráðabirgðaákvæðisins en með því fái Grindavíkurbær slíkt framlag til jafns við önnur sveitarfélög vegna ársins 2025.

Önnur jöfnunarframlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
    Við meðferð málsins fyrir nefndinni kom fram að bæði tekjujöfnunarframlag og útgjaldajöfnunarframlag til Grindavíkurbæjar hefðu skerst verulega þar sem reiknireglur Jöfnunarsjóðs gerðu ekki ráð fyrir áhrifum af jafn fordæmalausum aðstæðum og þeim sem yfirstandandi náttúruvá hefur haft á íbúafjölda hjá sveitarfélaginu. Við útreikning þessara framlaga sé m.a. miðað við fullnýtingu tekjustofna, fjölda íbúa, hæð útsvarstekna o.fl. en þau hlutföll sem hefðbundið er að miða við þegar kemur að útreikningi framlaga hefðu skekkst verulega. Við útgjaldajöfnunarframlag ársins 2024 var miðað við að í upphafi þess árs væru 3.579 íbúar í Grindavíkurbæ. Í minnisblaði um fjárhagslega stöðu Grindavíkurbæjar sem nefndinni barst frá innviðaráðuneytinu kom fram að einstaklingum með lögheimili í sveitarfélaginu hefði fækkað um nær 70% frá því að jarðhræringar hófust í nóvember 2023. Í umsögn sinni lagði Grindavíkurbær áherslu á mikilvægi þess að endurskoða útreikning þessara framlaga. Nefndin tekur undir þau sjónarmið enda ljóst að regluverk J öfnunarsjóðs gerir ekki ráð fyrir þeim fordæmalausu aðstæðum sem upp eru komnar í Grindavík í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesi.

Vænt áhrif undanþágu 2. mgr. 7. gr. laga nr. 16/2024 á fjárhag Grindavíkurbæjar.
    Fasteignafélagið Þórkatla var stofnað á grundvelli laga um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, nr. 16/2024, en í 2. mgr. 7. gr. þeirra er mælt fyrir um undanþágu félagsins frá greiðslu fasteignagjalda, lóðarleigugjalda til opinberra aðila og þinglýsingar- og stimpilgjöldum. Við meðferð málsins fyrir nefndinni kom fram að bæði Grindavíkurbær og framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík leggja áherslu á og hafa sett fram tillögur til ráðuneyta um að þrengt verði að undanþáguákvæðinu. Er m.a. vísað til þess að ekki sé skýrt hvort vatns- og fráveitugjöld falli undir samheitahugtakið „fasteignagjöld“, sbr. 1. tölul. fyrrgreinds ákvæðis, en eðlilegt sé að félagið greiði bæði vatnsgjald og fráveitugjald enda sé rekstur þessara veitukerfa forsenda þess að hægt sé að halda fasteignunum við. Grindavíkurbæ sé skylt að þjónusta veitukerfin en vegna undanþágunnar fái bæjarfélagið engar tekjur á móti þeim kostnaði.
    Í þessu samhengi bendir nefndin á að lög um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík falla ekki undir málefnasvið umhverfis- og samgöngunefndar. Það gera hins vegar lög um tekjustofna sveitarfélaga sem kveða á um skyldu sveitarfélaga til álagningar fasteignaskatta skv. 3. gr. laganna. Nefndin telur brýnt að skýrt sé hvaða gjöld falla undir hugtakið fasteignagjöld í 1. tölul. 2. mgr. 7. gr. laga um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík. Nefndin telur jafnframt mikilvægt að skýrt sé hvaða sjónarmið liggja til grundvallar undanþágu frá greiðslu skatta og gjalda, sbr. 2. mgr. 7. gr. laganna.
    Við meðferð málsins fyrir nefndinni kom fram að fjárhagsstaða Grindavíkurbæjar hefði verið gríðarlega sterk fyrir þá náttúruvá sem vofir enn yfir. Staða bæjarins væri enn nokkuð sterk og skuldir óverulegar. Í minnisblaði innviðaráðuneytisins til nefndarinnar kom fram að innviðaráðherra og bæjarstjóri Grindavíkurbæjar hefðu í febrúar 2024 skrifað undir samkomulag um stuðning við stjórnsýslu og fjárhag Grindavíkurbæjar með aðkomu Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Í ljósi sterkrar fjárhagsstöðu sveitarfélagsins hefði ekki orðið af 600 millj. kr. styrkveitingu sem sótt var um á árinu 2024. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hafi verið falið það verkefni að meta fjárþörf Grindavíkurbæjar með hliðsjón af samkomulaginu sem var framlengt út árið 2025.
    Nefndin tekur undir með Grindavíkurbæ um að ekki verði gengið svo nærri fjárhagsstoðum bæjarfélagsins að rekstrarhæfi þess sé ógnað. Almennt ríkir einhugur um mikilvægi þess að endurreisa samfélagið í Grindavík en þá þurfi að tryggja að Grindavíkurbær hafi fjárhagslega burði til þess að svo geti orðið. Nefndin beinir því til ríkisstjórnarinnar að framangreind atriði er varða fjárhagsstöðu Grindavíkurbæjar verði skoðuð sérstaklega og að mynduð verði stefna sem fyrst um búsetu og atvinnurekstur í Grindavík til framtíðar.

    Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Jens Garðar Helgason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 3. apríl 2025.

Guðbrandur Einarsson,
form., frsm.
Ása Berglind Hjálmarsdóttir. Ingibjörg Davíðsdóttir.
Dagur B. Eggertsson. Fida Abu Libdeh. Jónína Björk Óskarsdóttir.
Ólafur Adolfsson. Sigurður Helgi Pálmason.