Ferill 122. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 369  —  122. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um verðbréfun.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og Seðlabanka Íslands.
    Nefndinni barst ein umsögn auk minnisblaðs frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem aðgengileg eru undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um verðbréfun og að breyting verði gerð á ýmsum lögum á sviði fjármálaþjónustu til samræmis. Frumvarpið innleiðir í íslenskan rétt m.a. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipun 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012. Notast hefur verið við skammstöfunina STSR sem heiti á þessum gerðum. Með STSR eru settar fram almennar kröfur sem gerðar eru til allra tegunda verðbréfunar og sérstakar kröfur til STS-verðbréfunar, en STS er ensk skammstöfun sem stendur fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Í umsögn Seðlabanka Íslands sem nefndinni barst kom fram tillaga um að bæta við heimild handa Fjármálaeftirlitinu til að sekta fyrir brot gegn banni 1. mgr. 4. gr. STSR. Þar er kveðið á um að sérstakir verðbréfunaraðilar skuli ekki hafa staðfestu í þriðja landi sem skráð er sem áhættusamt þriðja land með annmarka í regluverki sínu um baráttu gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverkastarfsemi eða telst ósamvinnuþýð lögsaga í skattalegu tilliti. Lagði Seðlabanki Íslands til að slíkri sektarheimild yrði bætt við stjórnvaldssektarákvæði 1. mgr. 5. gr. frumvarpsins.
    Þá barst nefndinni minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem kom fram að við útfærslu ráðuneytisins á 5. gr. frumvarpsins hafi verið byggt á 32. gr. STSR. Ákvæðið hafi að geyma upptalningu á þeim ákvæðum STSR-reglugerðarinnar sem aðildarríki skuli að lágmarki setja reglur um að varði viðeigandi stjórnsýsluviðurlögum að brjóta gegn af gáleysi eða ásetningi. Í minnisblaði ráðuneytisins kom fram að ekki væri vikið að 4. gr. STSR í 1. mgr. 32. gr. STSR og yrði þannig með tillögu Seðlabankans gengið lengra en leiðir af STSR-reglugerðinni. Ráðuneytið benti þó á að svigrúm væri til þess að ganga lengra en gat þess að til að mynda í Noregi hefði ekki verið tekið af skarið um að brot gegn 4. gr. STSR varði stjórnvaldssektum. Taldi ráðuneytið að með tillögu Seðlabankans yrði gengið lengra en efni reglugerðarinnar gerði ráð fyrir þótt slíkt væri ekki í andstöðu við efni hennar.
    Að því gættu telur meiri hlutinn ekki þörf á að ráðast í umrædda breytingu og þar með ganga lengra en lágmarkskröfur STSR kveða á um.

Breytingartillaga.
    Meiri hlutinn leggur til breytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif. Meiri hlutinn leggur til breytta fyrirsögn á 75. gr. laga um verðbréfasjóði, nr. 116/2021, til samræmis við þær breytingar sem lagðar eru til með 2. tölul. 17. gr. frumvarpsins.
    Þá er lagt til að breyta orðalagi 51. tölul. 1. mgr. 115. gr. laga um verðbréfasjóði, nr. 116/2021, til samræmis við framangreinda breytingartillögu meiri hlutans um fyrirsögn ákvæðis 75. gr. laganna.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    2. tölul. 17. gr. orðist svo: Lög um verðbréfasjóði, nr. 116/2021:
              a.      75. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

                     Áhætta vegna verðbréfunar.

                    
    Ef rekstrarfélag verðbréfasjóðs er útsett fyrir verðbréfun sem ekki uppfyllir lengur þær kröfur sem mælt er fyrir um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402, sbr. lög um verðbréfun, skal það, í því skyni að tryggja sem best hagsmuni fjárfesta í viðkomandi verðbréfasjóði, bregðast við og grípa til aðgerða til úrbóta, ef við á.
              b.      Í stað orðsins „útlánaáhættu“ í 51. tölul. 1. mgr. 115. gr. laganna kemur: áhættu.

    Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 8. apríl 2025.

Arna Lára Jónsdóttir,
form., frsm.
Ragna Sigurðardóttir. Marta Wieczorek.
Sigmar Guðmundsson. Sigmundur Ernir Rúnarsson.