Ferill 293. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 372 — 293. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Snorra Mássyni um stuðning frá Alþjóðaþróunarstofnun Bandaríkjanna.
1. Hafa stjórnvöld hlotið beinan eða óbeinan stuðning af einhverju tagi frá Alþjóðaþróunarstofnun Bandaríkjanna (USAID)? Ef svo er, hver var tilgangur stuðnings og hvaða verkefni og stofnanir nutu hans?
Íslensk stjórnvöld hafa aldrei hlotið stuðning frá Þróunarsamvinnustofnun Bandaríkjanna, hvorki beinan né óbeinan. Hlutverk USAID, sem bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja niður, var að fara með opinbera þróunaraðstoð Bandaríkjanna en hún snýr aðeins að stuðningi við ríki sem teljast þróunarríki samkvæmt reglum þróunarsamvinnunefndar OECD (Development Assistance Committee, DAC).
2. Hversu háa fjárstyrki hafa stjórnvöld þegið frá Alþjóðaþróunarstofnun Bandaríkjanna? Hvernig voru fjárstyrkir nýttir? Eru til opinberar skýrslur eða yfirlit um úthlutun fjárstyrkja frá stofnuninni?
Vísað er til svars við 1. tölul.
3. Munu stjórnvöld þiggja stuðning frá Alþjóðaþróunarstofnun Bandaríkjanna eftirleiðis? Ef svo er, á hvaða sviðum?
Vísað er til svars við 1. tölul.
Alls fóru 10 mínútur í að taka svarið saman.