Ferill 124. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 374  —  124. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun), nr. 145/2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og nr. 170/2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn.

Frá meiri hluta utanríkismálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá atvinnuvegaráðuneytinu, fjármála- og efnahagsráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 frá 20. júní 2019 um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur og um breytingu á tilskipun 2004/42/EB og reglugerðum (EB) nr. 765/2008 og (ESB) nr. 305/2011.
                  b.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1121 frá 8. júlí 2021 þar sem tilgreindar eru upplýsingar um tölfræðileg gögn, sem aðildarríkin eiga að leggja fram að því er varðar eftirlit með vörum sem koma inn á markað Sambandsins, með tilliti til öryggis og samræmis vara.
                  c.      Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1267 frá 20. júlí 2022 um að tilgreina verklagsreglur við tilnefningu prófunarstöðva Sambandsins vegna markaðseftirlits og sannprófunar á samræmi vöru við kröfur í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020.
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 frá 12. júní 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2401 frá 12. desember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki.
                  b.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012.
                  c.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/557 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun til að stuðla að endurbótum í kjölfar COVID-19 hættuástandsins.
                  d.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/558 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar aðlögun á rammanum um verðbréfun til að styðja við efnahagslegar endurbætur til að bregðast við COVID-19 hættuástandinu.
                  e.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1221 frá 1. júní 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar útreikning á lögbundnum gjaldþolskröfum fyrir verðbréfanir og einfaldar, gagnsæjar og staðlaðar verðbréfanir í eigu vátrygginga- og endurtryggingafélaga.
     3.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2024 frá 5. júlí 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og XII. viðauka (Frjálsir fjármagnsflutningar) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1230 frá 14. júlí 2021 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu (kerfisbinding).
    Framsetning tillögunnar telst að mati meiri hlutans vera í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 26. mars 2025.

Pawel Bartoszek,
form.
Dagbjört Hákonardóttir, frsm. Diljá Mist Einarsdóttir.
Jóhann Friðrik Friðriksson. Sigmar Guðmundsson. Sigurður Helgi Pálmason.
Víðir Reynisson. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir.