Ferill 167. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 376  —  167. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um vöruúrval ÁTVR.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Stendur til að færa út á markað til einkaaðila hluta af þeim vörum sem ÁTVR selur nú og draga þannig úr vöruúrvali og hlutverki ÁTVR?
     2.      Ef svo er, hvenær má ætla að það verði gert?


    Engar ákvarðanir hafa verið teknar um slíkar breytingar á vöruúrvali hjá ÁTVR. Ekki hafa heldur verið teknar neinar ákvarðanir um breytingar á fyrirkomulagi á sölu áfengis í verslunum ÁTVR.