Ferill 197. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 377 — 197. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um kostnað við kröfur um þjóðlendur.
1. Hver hefur verið kostnaður við aðkeypta þjónustu í tengslum við kröfur fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkisins um þjóðlendur á svæði 12 sem tekur til eyja og skerja? Hverjir hafa hlotið greiðslu vegna þessarar aðkeyptu þjónustu? Svar óskast sundurliðað eftir skiptingu kostnaðar við upphaflegar kröfur annars vegar og við endurskoðaðar kröfur hins vegar.
Áfallinn kostnaður vegna aðkeyptrar þjónustu fyrir óbyggðanefnd í tengslum við kröfulýsingu ríkisins fyrir svæði 12 sem nær til eyja og skerja nemur samtals 96.351.588 kr. og dreifist á þrjú ár með eftirfarandi hætti:
| 2023 | 34.313.933 |
| 2024 | 55.159.116 |
| 2025 | 6.878.539 |
| 96.351.588 |
Stærstur hluti greiðslna hefur runnið til Juris lögmannsstofu eða sem nemur 91.281.076 kr. Þá hafa 5.070.512 kr. verið greiddar til teiknistofunnar Landforms vegna kortavinnu.
Kostnaður vegna upphaflegrar kröfulýsingar sem skilað var 2. febrúar 2024 til óbyggðanefndar nam 48.047.371 kr.
Eftir að upphaflegum kröfulýsingum var skilað til óbyggðanefndar var af hálfu óbyggðanefndar hafin vinna við að afmarka svæði 12 betur með aðstoð og samstarfi ýmissa aðila sem almennt koma að kortagerð. Afrakstur þeirrar vinnu er kortasjá sem byggist á nokkrum kortagrunnum og loftmyndum, flokkað eftir bestu heimildum á hverjum stað, og sýnir fjörumörk umhverfis landið.
Þegar þeirri vinnu var lokið hófst endurskoðun á þjóðlendukröfum íslenska ríkisins og var endurskoðuð kröfulýsing lögð fram 9. október 2025. Áfallinn kostnaður við þessa vinnu eftir 2. febrúar 2024 nemur 46.551.450 kr. Eftir þann tíma hefur fallið til kostnaður við að fara yfir kröfulýsingar gagnaðila og svara fyrirspurnum óbyggðanefndar, sem nemur 1.752.767 kr. Þar sem málsmeðferðinni fyrir óbyggðanefnd er ekki lokið vegna svæðis 12 má gera ráð fyrir að einhver frekari kostnaður muni falla til þar til óbyggðanefnd hefur lokið sínum störfum fyrir næstu áramót samkvæmt gildandi lögum.
2. Hlaut ríkissjóður afslátt vegna vinnu við að útfæra kröfur um þjóðlendur á svæði 12 sem voru augljóslega byggðar á misskilningi þar eð gerð var krafa um svæði sem voru inni í landi?
Ekki hefur verið veittur sérstakur afsláttur vegna vinnu gerð kröfulýsingar vegna svæðis 12 en vinna við þjóðlendumál er greidd í samræmi við sérstakan samning Juris og ráðuneytisins þar um.
Þegar svæði 12 var afmarkað og opnað af óbyggðanefnd lágu ekki fyrir upplýsingar um afmörkun stórstraumsfjöruborðs og svæðið var því einungis afmarkað með grófri línu umhverfis meginlandið. Upphaflegar kröfulýsingar íslenska ríkisins voru af þessum sökum eins víðtækar og raun bar vitni, þ.e. náðu til allra landfræðilegra eininga utan við þessa línu samkvæmt korti óbyggðanefndar, að frátöldum þeim sem unnt var að útiloka á grundvelli 1. mgr. 2. gr. laga nr. 46/1905, um hefð.
Í einhverjum tilvikum voru talin upp nöfn á svæðum í kröfulýsingu sem síðar reyndust vera innan meginlandsins, flest með landfyllingu eða tengingu við land sem ekki mátti sjá á kortum eða eru hólmar í ósum. Þar sem þessi svæði innan meginlandsins voru utan afmörkunar óbyggðanefndar á svæðinu þá voru þau í reynd undanskilin kröfu íslenska ríkisins. Þess ber þó að geta að í mörgum tilvikum þar sem athugasemdir voru gerðar var um að ræða fleiri en eitt svæði sem báru sama nafn, bæði á meginlandi og í sjó.
Í þessu sambandi má benda á að svæði 12 eins og það var afmarkað af óbyggðanefnd nær umhverfis allt Ísland og tekur til þúsunda eyja, skerja og annarra landfræðilegra eininga, nafngreindra og ónafngreindra. Þessar landfræðilegu einingar reynist oft erfitt að staðsetja með nákvæmum hætti á korti.
Í öllu ferlinu hafa kröfur íslenska ríkisins sífellt verið í endurskoðun eftir því sem frekari upplýsingar eða heimildir hafa leitt til þess að ljóst verði að telja að landsvæði sé í reynd undanskilið kröfu íslenska ríkisins eða að sýnt hafi verið fram á eignarréttarlega stöðu viðkomandi lands.