Ferill 327. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 386 — 327. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um kostnað vegna jafnréttismála og kynjafræði.
Frá Snorra Mássyni.
Hver hefur verið árlegur kostnaður ráðuneytisins og undirstofnana þess frá árinu 2017 við þjónustu, ráðgjöf, stefnumótun og fræðslu sem útvistað hefur verið og tengist jafnréttismálum og kynjafræði? Svar óskast sundurliðað eftir viðtakendum greiðslna, tegund veittrar þjónustu og undirstofnunum sem í hlut eiga.
Skriflegt svar óskast.