Ferill 334. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 395 — 334. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um túlkaþjónustu.
Frá Snorra Mássyni.
1. Hver hefur verið heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess vegna túlkaþjónustu á eftirtöldum sviðum undanfarin fimm ár:
a. lögregla og löggæsla,
b. fullnusta refsinga,
c. ákæruvald, dómstólar, réttarfar og réttaraðstoð,
d. málefni útlendinga, þar á meðal Útlendingastofnun?
2. Hvaða reglur gilda um kaup á túlkaþjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess?
3. Er til sundurliðun á aðkeyptri þjónustu og því vinnuframlagi sem þjónustan krefst þegar hún er unnin af fastráðnum starfsmönnum?
Skriflegt svar óskast.