Ferill 335. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Prentað upp.
Þingskjal 396 — 335. mál.
Fyrirsögn.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um túlkaþjónustu á sviði fræðslumála.
Frá Snorra Mássyni.
1. Hver hefur verið heildarkostnaður ráðuneytisins og stofnana þess vegna túlkaþjónustu á sviði fræðslumála undanfarin fimm ár? Svar óskast sundurliðað eftir málefnasviðum.
2. Hvaða reglur gilda um kaup á túlkaþjónustu á vegum ráðuneytisins og stofnana þess?
3. Er til sundurliðun á aðkeyptri þjónustu og því vinnuframlagi sem þjónustan krefst þegar hún er unnin af fastráðnum starfsmönnum?
Skriflegt svar óskast.