Ferill 147. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 402 — 147. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða og skipulagslögum (svæðisráð o.fl.).
Frá umhverfis- og samgöngunefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Fjórðungssambandi Vestfirðinga, Hafnasambandi Íslands, Landhelgisgæslu Íslands, Minjastofnun Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samgöngustofu og Skipulagsstofnun.
Nefndinni bárust tólf umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Umfjöllun nefndarinnar.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018, annars vegar í ljósi reynslu af framkvæmd laganna og hins vegar vegna forsetaúrskurðar um skiptingu starfa ráðherra, en málefnið fellur nú undir félags- og húsnæðismálaráðherra. Í frumvarpinu er meðal annars lagt til að uppfæra fyrirkomulag við skipan og skipunartíma svæðisráða og skýra hlutverk Skipulagsstofnunar. Einnig er lögð til breyting á ákvæði til bráðabirgða II í skipulagslögum, nr. 123/2010, um að Skipulagssjóður kosti gerð strandsvæðisskipulags fyrir Eyjafjörð og Skjálfandaflóa, líkt gert var vegna Vestfjarða og Austfjarða.
Upplýsingar um útgefin leyfi á haf- og strandsvæðum (3. gr.).
Með 3. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á 2. mgr. 8. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða þess efnis að leyfisveitanda verði við afgreiðslu leyfa um framkvæmdir á haf- og strandsvæðum gert skylt að leita álits Skipulagsstofnunar telji hann vafa leika á um hvort slík leyfisveiting samræmist gildandi strandsvæðisskipulagi. Einnig verði lögfest heimild Skipulagsstofnunar til að hafa frumkvæði að slíkri athugun. Í þessu samhengi bendir Skipulagsstofnun á að í 1. mgr. ákvæðisins er kveðið á um skyldu leyfisveitenda til að senda stofnuninni upplýsingar um útgefin leyfi á haf- og strandsvæðum. Af lögskýringargögnum megi ráða að átt hafi verið við undirstofnanir ráðuneytisins. Hins vegar gefi ráðuneyti einnig út ýmis leyfi til framkvæmda eða starfsemi á þessum svæðum en þar sem ekki er kveðið á um slíka upplýsingaskyldu er mikilvægt að henni sé komið á. Með því fæst heildaryfirsýn yfir allar leyfisveitingar á haf- og strandsvæðum á vegum ráðuneyta og stofnana ríkisins. Skipulagsstofnun leggur því til að 1. mgr. 8. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða verði gerð skýrari hvað þetta varðar. Jafnframt verði tekin afstaða til þess hvort kveða eigi fastar að orði í 2. mgr. 8. gr. laganna um skyldu stofnana sem sjá um að framfylgja ákvæðum strandsvæðisskipulags og eru leyfisveitendur til samráðs við Skipulagsstofnun og viðeigandi svæðisráð.
Nefndin telur ekki tímabært að leggja til slíkar breytingar á ákvæðinu í ljósi þess að unnið er að heildarendurskoðun laga um skipulag haf- og strandsvæða en beinir því til ráðuneytisins að fara yfir þessar athugasemdir Skipulagsstofnunar og leggja til viðeigandi lagabreytingar ef þörf er á.
Heildarendurskoðun á lögum um skipulag haf- og strandsvæða.
Nefndin fjallaði einnig um ýmis atriði sem umsagnaraðilar telja mikilvægt að séu tekin til skoðunar eða kveðið á um í lögum um skipulag haf- og strandsvæða.
Fjórðungssamband Vestfirðinga leggur áherslu á það í umsögn sinni að hafin verði vinna við gerð strandsvæðisskipulags við Breiðafjörð, samhliða gerð strandsvæðisskipulags á Eyjafirði og á Skjálfanda. Meðal annars sé brýnt að leysa úr því hvar mörk verndarsvæðisins á Breiðafirði, sbr. lög um vernd Breiðafjarðar, nr. 54/1995, liggja vegna skörunar við ákvæði annarra lagabálka. Nefndin tekur undir framangreind sjónarmið og beinir því til ráðuneytisins að slík vinna verði hafin sem fyrst.
Minjastofnun kallar eftir því að í lögum um menningarminjar, nr. 80/2012, verði kveðið á um skyldu til skráningar vegna skipulags haf- og strandsvæða, líkt og skylt er áður en gengið er frá aðalskipulagi, deiliskipulagi og raflínuskipulagi, sbr. 1. mgr. 16. gr. laganna. Þannig sé tryggt að hægt sé að taka upplýsta ákvörðun um hvernig standa skuli að framkvæmdum með hliðsjón af þeim menningarminjum sem eru skráðar á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði áður en sótt er um leyfi vegna framkvæmda.
Í umsögnum Sambands íslenskra sveitarfélaga, einstakra sveitarfélaga og Hafnasambands Íslands kom almennt fram sú afstaða að skipulag haf- og strandsvæða skuli vera á forræði sveitarfélaga og því mikilvægt að það sé rætt meðal annars við heildarendurskoðun á lögum um skipulag haf- og strandsvæða. Ekki megi ganga inn á skipulagsvald sveitarfélaga.
Nefndin hefur skilning á þeim sjónarmiðum sem rakin hafa verið að framan en líkt og komið hefur verið inn á er í ráðuneytinu unnið að heildarendurskoðun á lögum um skipulag haf- og strandsvæða. Nefndin fagnar því að sú vinna sé í gangi og væntir þess að ráðuneytið taki mið af framangreindum ábendingum við þá endurskoðun.
Breytingartillögur.
Skipan svæðisráðs (1. gr.).
Samkvæmt 5. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða skal ráðherra skipa eitt svæðisráð fyrir hvert svæði þar sem gera skal eða endurskoða strandsvæðisskipulag samkvæmt ákvæðum laganna. Í hverju svæðisráði skulu sitja átta fulltrúar og fer um skipan þeirra skv. 3. mgr. 5. gr. laganna en fjórir fulltrúanna eru tilnefndir af ráðherrum sem fara með þá málaflokka er helst varða nýtingu og vernd auðlinda á haf- og strandsvæðum. Vegna breyttrar verkaskiptingar innan Stjórnarráðsins er með 1. gr. frumvarpsins meðal annars lagt til að ráðherra skipi átta fulltrúa í svæðisráð, þar á meðal þrjá samkvæmt tilnefningum ráðherra sem fara með umhverfis-, orku-, ferða-, fjarskipta-, samgöngu- og sjávarútvegsmál. Í umsögn Skipulagsstofnunar er bent á að í 15. gr. laganna þar sem kveðið er á um heimild ráðherra til setningar reglugerðar er ekki tilvísun til ráðherra sem fer með fjarskiptamál, sbr. 1. gr. frumvarpsins. Til að gæta samræmis leggur nefndin til að bætt verði við 15. gr. laganna vísun til ráðherra sem fara með fjarskipta- og umhverfismál.
Ráðgefandi aðilar (2. gr.).
Með 2. gr. frumvarpsins er lagt til að 4. málsl. 6. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða verði felldur brott, en þar eru taldar upp þær fagstofnanir sem skulu vera svæðisráðum og Skipulagsstofnun til ráðgjafar í málum sem falla undir gildissvið laganna. Í greinargerð segir að upptalningin sé ekki og geti ekki orðið tæmandi og því sé nægjanlegt að tilgreina að um sé að ræða fagstofnanir sem fara með málaflokka er varða nýtingu og vernd á haf- og strandsvæðum án þess að tilgreina þær nánar.
Í umsögnum þeirra fagstofnana sem bárust nefndinni er lagst gegn því að fella ákvæðið brott. Fagstofnanirnar hafi yfirgripsmikla þekkingu á þeim málaflokkum sem þær fari með og komið geti upp aðstæður þar sem farist fyrir að fá fram sjónarmið ráðgefandi fagstofnana áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar. Hafnasamband Íslands taldi ástæðu til að halda ákvæðinu inni og vildi jafnframt að kveðið yrði á um samráð við hafnarstjórnir. Við meðferð málsins kom jafnframt fram að óskýrleiki um t.d. hvaða fagstofnanir og á hvaða stigi leyfisumsóknar þær skuli koma að málum geti lengt málsmeðferðartíma að óþörfu. Þá var mikilvægi samráðs leyfisveitenda og fagstofnana ítrekað.
Við meðferð málsins fyrir nefndinni var sérstaklega rætt um mikilvægi þess að í lögum sé að finna ákvæði er kveða á um öryggi sjófarenda og vernd siglingaleiða. Þetta sé ekki síst mikilvægt út frá öryggissjónarmiðum, þar sem margar ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli skipulags um haf- og strandsvæði geti t.d. haft bein áhrif á siglingaöryggi.
Nefndin tekur undir framangreind sjónarmið og telur mikilvægt að skýrt sé hvaða fagstofnanir komi að ákvarðanatöku um málefni haf- og strandsvæða, ekki síst með vísan til öryggissjónarmiða. Nefndin leggur til að 2. gr. frumvarpsins falli brott. Þá hvetur nefndin til þess að við heildarendurskoðun laga um skipulag haf- og strandsvæða verði lögð áhersla á að koma á formlegri umgjörð um hvernig standa skuli að samráði fagstofnana, til einföldunar og aukins gagnsæis bæði fyrir leyfisveitendur og fagstofnanir.
Samræmi strandsvæðisskipulaga við aðra opinbera stefnumörkun og áætlanagerð (4. gr.).
Með 4. gr. frumvarpsins er lagt til að í 2. mgr. 10. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða verði kveðið skýrar á um að strandsvæðisskipulag skuli taka mið af annarri opinberri stefnumörkun og áætlanagerð sem hafi áhrif á nýtingu og vernd þessara svæða. Í umsögnum fulltrúa sveitarfélaga er kallað eftir að nefndin skýri til hvaða áætlana er vísað annarra en kerfisáætlunar sem sé ekki ráðandi áætlun. Tryggja verði að ekki sé gengið inn á skipulagsvald sveitarfélaga. Þessu tengt bendir Skipulagsstofnun í umsögn sinni á ýmis atriði sem stofnunin telur mikilvægt að tekin séu til skoðunar í ljósi reynslu af framkvæmd laga um skipulag haf- og strandsvæða. Eitt þeirra er að tekin sé afstaða til þess hvort gera eigi kröfu um gerð ofanflóðamats við gerð strandsvæðisskipulags eða mat á hættu á slysasleppingum vegna ofanflóða á kvíar. T.d. sé í lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997, ekki gert ráð fyrir áhættumati á slysasleppingum vegna ofanflóða á kvíar. Þá benda bæði Samgöngustofa sem fer með siglingaöryggi og Skipulagsstofnun á mikilvægi þess að gert sé ráð fyrir áhættumati siglinga við leyfisveitingar vegna sjókvíaeldis, auk þess sem slíkt ákvæði sé ekki að finna í lögum um vitamál, nr. 132/1999. Báðar stofnanir ítreka að þar sem ekki hafi verið gætt nægilega að afmörkun siglingaleiða og öryggi siglinga við gerð strandsvæðisskipulags á Austfjörðum og Vestfjörðum eigi eftir að leysa úr óvissu þar um. Þá ítrekar Landhelgisgæslan mikilvægi samráðs í tengslum við öryggi siglinga.
Með 2. mgr. 10. gr. laganna var sérstaklega verið að hnykkja á því að við gerð strandsvæðisskipulags sé gætt að samræmi við lög þar sem tiltekin starfsemi er t.d. takmörkuð eða bönnuð. Í greinargerð frumvarpsins sem varð að lögum um skipulag haf- og strandsvæða, nr. 88/2018, er vísað til ýmissa laga og reglugerða sem átt geta við. Nefndin tekur undir framangreindar athugasemdir Skipulagsstofnunar og Samgöngustofu og telur mikilvægt í ljósi þess að lögunum er ætlað að setja umgjörð um skipulag haf- og strandsvæða að hnykkt sé á því að taka skuli mið af lögbundnum ákvörðunum er varða öryggi siglinga og gæta verði að samráði við leyfisveitingar þegar kemur að áhrifum á notkun siglingaleiða. Nefndin leggur til breytingu þess efnis.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. 2. gr. falli brott.
2. 4. gr. orðist svo:
Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 10. gr. laganna:
a. Við lokamálslið bætist: eða siglingaöryggi er ógnað.
b. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá skal tekið mið af öðrum stefnum og áætlunum sem hafa áhrif á nýtingu og vernd haf- og strandsvæða.
3. 7. gr. orðist svo:
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:
a. Á eftir orðunum „framsetningu strandsvæðisskipulags“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: nýtingarflokka í strandsvæðisskipulagi og skilgreiningu þeirra sem.
b. 3. mgr. orðast svo:
Þær reglugerðir sem kveðið er á um í lögum þessum skulu settar að fengnum tillögum Skipulagsstofnunar og að höfðu samráði við ráðuneyti umhverfis-, orku-, ferða-, fjarskipta-, samgöngu- og sjávarútvegsmála og Samband íslenskra sveitarfélaga.
Alþingi, 10. apríl 2025.
| Guðbrandur Einarsson, form. |
Jónína Björk Óskarsdóttir, frsm. |
Ingibjörg Davíðsdóttir. |
| Ása Berglind Hjálmarsdóttir. | Anna María Jónsdóttir. | Halla Hrund Logadóttir. |
| Jens Garðar Helgason. | Jónas Yngvi Ásgrímsson. | Ólafur Adolfsson. |