Ferill 178. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 406  —  178. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um kostnað ÁTVR vegna dómsmála.


     1.      Hver var kostnaður Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) og eftir atvikum íslenska ríkisins af rekstri máls sem lauk með dómi Hæstaréttar nr. 19/2024 sem kveðinn var upp 4. desember 2024?
    Ríkislögmaður fór með rekstur málsins fyrir hönd ríkisins. Ríkið var dæmt til greiðslu málskostnaðar, sem var 4.000.000 kr. á öllum dómstigum. Annar beinn kostnaður hefur ekki fallið til. Að því er varðar óbeinan kostnað þá er launakostnaður starfsfólks ekki aðgreindur eftir hverju og einu verkefni sem það sinnir.

     2.      Hver var kostnaður ÁTVR og eftir atvikum íslenska ríkisins af rekstri máls sem lauk með dómi Landsréttar nr. 535/2023 sem kveðinn var upp 20. febrúar 2025?
    Ríkið var dæmt til greiðslu málskostnaðar, sem var 3.500.000 kr. á báðum dómstigum. Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR er annar beinn kostnaður aðkeypt lögfræðiþjónusta vegna rekstrar málsins fyrir dómi og skiptist svo:
     a.      5.228.150 kr. vegna rekstrar málsins fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.
     b.      2.029.500 kr. vegna rekstrar málsins fyrir Landsrétti.
    Fjárhæðir eru án virðisaukaskatts.

     3.      Hefur ÁTVR tekið þær vörur sem um ræddi í þessum dómsmálum til sölu? Ef ekki, hver er ástæða þess og er það með samþykki ráðherra?
    Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR hafa umræddar vörur ekki verið teknar til sölu. Þá vísar hún til takmarkana sem leiða af þeim fjölda vara sem hafa verið felldar úr sölu með vísan til framlegðarviðmiða sem voru til umfjöllunar í dómi Hæstaréttar nr. 19/2024, auk þess sem stofnunin hafi yfir takmörkuðu húsrými að ráða. Þar af leiðandi sé ekki mögulegt að bregðast við niðurstöðunni með því að taka vörurnar til sölu. Afstaða til þess hvort tilteknar vörur eru teknar til sölu af hálfu ÁTVR eru ekki teknar af eða bornar undir ráðherra. Samkvæmt íslenskum rétti er ekki sjálfgefið að þegar stjórnvaldsákvörðun er felld úr gildi leiði það til þess að fyrra ástandi skuli komið á, heldur er þýðing niðurstöðunnar undirorpin mati hverju sinni.
    ÁTVR hefur óskað eftir leyfi Hæstaréttar til að áfrýja dómi Landsréttar í máli nr. 535/2023. Þannig er ekki ljóst hvort því máli er endanlega lokið.

     4.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að Dista ehf. fái það tjón bætt sem leiddi af ólögmætum ákvörðunum ÁTVR? Ef ekki, hvers vegna ekki?
    Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga um ríkislögmann, nr. 51/1985, fer ríkislögmaður með uppgjör bótakrafna sem beint er að ríkissjóði. Ráðherra nýtur leiðsagnar ríkislögmanns við að móta afstöðu til þeirra bótakrafna sem koma fram. Stjórnvöld þurfa að gæta hlutlægni þegar þau eiga aðild að ágreiningsmálum og leitast við að niðurstaða máls byggist á réttum atvikum og sé í samræmi við lög. Samkvæmt almennum reglum á tjónþoli rétt á að fá fullar bætur úr hendi þess sem telst bótaskyldur samkvæmt almennum reglum. Ráðuneytið gætir þess að afstaða ríkisins til bótakrafna sem beint er að ríkinu taki tillit til framangreindra sjónarmiða.