Ferill 162. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 409 — 162. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Rósu Guðbjartsdóttur um stöðu þeirra sem hafa fengið synjun á umsókn um alþjóðlega vernd.
Leitað var til Útlendingastofnunar, heimferða- og fylgdadeildar ríkislögreglustjóra og Rauða krossins á Íslandi vegna fyrirspurnarinnar og eru svör ráðherra byggð á upplýsingum frá þeim.
1. Hversu margir einstaklingar sem synjað hefur verið um alþjóðlega vernd eru nú á landinu? Og hversu margir hafa verið lengur hér á landi en í 30 daga eftir að umsókn þeirra var hafnað?
Hinn 20. mars 2025 voru 267 einstaklingar staddir hér á landi sem höfðu hlotið endanlega synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og ákvörðun tekin um að þeir yfirgæfu landið. Af þeim höfðu 83 einstaklingar óskað eftir aðstoð Útlendingastofnunar við sjálfviljuga heimför og biðu brottfarar. Þá voru 184 einstaklingar á verkbeiðnalista heimferða- og fylgdadeildar ríkislögreglustjóra (HOF). Um er að ræða einstaklinga sem dvalið hafa umfram 30 daga á landinu eftir ákvörðun um að þeir yfirgefi landið og Útlendingastofnun hefur lagt fram beiðni til ríkislögreglustjóra um þvingaða framkvæmd flutnings.
2. Hver er fjöldi þeirra sem ekki finnast eða eru skráðir týndir í opinberum gögnum?
Hinn 20. mars 2025 voru 155 einstaklingar skráðir sem horfnir í málaskrá lögreglu. Áréttað er að talan endurspeglar heildarfjölda horfinna einstaklinga frá upphafi talninga en elstu skráningar eru frá árinu 2018. Lögreglan hefur ráðist í átaksverkefni við að staðsetja og hafa uppi á þessum einstaklingum og uppfæra skráningar í samræmi við þær upplýsingar. Talið er líklegt að hátt hlutfall þessara einstaklinga hafi þegar yfirgefið landið og að heildarfjöldinn muni því lækka.
3. Hver er fjöldi einstæðra mæðra með börn í þeim hópi?
Fjöldi mæðra í hópi horfinna einstaklinga er tvær.
4. Hvernig er aðstæðum þeirra sem bíða brottflutnings háttað?
Einstaklingar sem hljóta synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og ákvörðun hefur verið tekin um að þeir yfirgefi landið eru fluttir úr búsetuúrræðum Vinnumálastofnunar yfir í úrræði á vegum ríkislögreglustjóra. Þar fá þeir að dvelja í allt að 30 daga eftir endanlega synjun á umsókn um alþjóðlega vernd. Hægt er að framlengja dvölina ef einstaklingar sýna fram á samstarfsvilja um heimför. Fjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu fá að dvelja áfram í úrræðum Vinnumálastofnunar þar til þeir fara úr landi.
Einstaklingum sem bíða brottfarar og sýna ekki samstarfsvilja við flutning er vísað úr úrræðum ríkislögreglustjóra og leiðbeint um að nýta gistiskýli Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu. Gistiskýlið er opið frá kl. 17:00 til kl. 10:00. Í undantekningartilvikum, m.a. vegna veðurs, hefur það verið opið allan sólarhringinn. Þjónusta Rauða krossins takmarkast við húsnæði og næringu, þar á meðal morgunmat, kvöldmat og nesti. Aðgangur þessara einstaklinga að heilbrigðisþjónustu takmarkast við bráðaþjónustu.
5. Er markvisst eftirlit eða stuðningur við einstaklinga í þessari stöðu?
Einstaklingar sem Vinnumálastofnun og ríkislögreglustjóri þjónusta fá framfærslustyrk, húsnæði og nauðsynlega læknisþjónustu þar til þeir yfirgefa landið. Þeir sem una ákvörðun stjórnvalda og óska eftir aðstoð við sjálfviljuga heimför fá ráðgjöf frá Útlendingastofnun um fyrirhugaðan flutning úr landi. Jafnframt fá þeir einstaklingar sem bíða brottvísunar lögreglu regluleg viðtöl við heimferðasérfræðinga HOF sem veita leiðbeiningar og ráðgjöf um væntanlega heimför eða fylgd úr landi. Starfsfólk gistiskýlis Rauða krossins hlýtur einnig þjálfun í sálrænum stuðningi sem það nýtir í samskiptum við notendur skýlisins.