Ferill 306. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 411  —  306. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um stoðþjónustu.


     1.      Hversu margir starfsmenn á vegum ráðuneytisins starfa við stoðþjónustu? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti, undirstofnunum þess og starfseiningum.
    Forsætisráðuneyti: Af starfsfólki ráðuneytisins starfa sjö aðilar við stoðþjónustu en annað starfsfólk sinnir stoðþjónustu að einhverju leyti í störfum sínum og eftir því sem þörf er á hverju sinni.
    Óbyggðanefnd: Enginn af þremur starfsmönnum óbyggðanefndar starfar alfarið við stoðþjónustu en allt starfsfólk nefndarinnar sinnir verkefnum af því tagi samhliða öðrum störfum eftir því sem þörf er á.
    Embætti ríkislögmanns: Hjá embættinu telst eitt stöðugildi til stoðþjónustu.
    Umboðsmaður barna: Hjá umboðsmanni barna starfar enginn alfarið við stoðþjónustu en allt starfsfólk sinnir verkefnum af því tagi samhliða öðrum störfum eftir því sem þörf er á.
    Hagstofa Íslands: Hjá Hagstofu Íslands starfa 14 starfsmenn við stoðþjónustu í þremur stoðdeildum.
    Þjóðgarðurinn á Þingvöllum: Þjóðgarðurinn er ekki með starfsfólk er sinnir stoðþjónustu.
    Seðlabanki Íslands: Seðlabanki Íslands er með 97 stöðugildi í þremur skilgreindum stoðsviðum.

     2.      Að hve miklu leyti nýta viðkomandi einingar sér stoðþjónustu Fjársýslu ríkisins?
    Forsætisráðuneyti: Ráðuneytið nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt tækniþjónustu þar sem það á við. Einnig notar ráðuneytið aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem þörf er á.
    Óbyggðanefnd: Óbyggðanefnd er í bókhalds- og greiðsluþjónustu hjá Fjársýslunni sem og launaþjónustu. Einnig hefur nefndin nýtt sér ráðgjöf Fjársýslunnar á sviði mannauðsmála.
    Embætti ríkislögmanns: Embættið nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar.
    Umboðsmaður barna: Umboðsmaður barna nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu sem og launaþjónustu Fjársýslunnar. Einnig hefur umboðsmaður barna nýtt sér ráðgjöf á sviði mannauðsmála.
    Hagstofa Íslands: Hagstofa Íslands nýtir sér mannauðstorg á vef Fjársýslunnar þegar það á við og nýtir stöku sinnum möguleika á að senda fyrirspurnir til Fjársýslunnar.
    Þjóðgarðurinn á Þingvöllum: Þjóðgarðurinn nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslunnar ásamt annarri þjónustu Fjársýslunnar.
    Seðlabanki Íslands: Seðlabanki Íslands nýtir sér stoðþjónustu Fjársýslunnar vegna útboða, rammasamninga og innheimtu vegna eftirlitsgjalds.