Ferill 216. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 412  —  216. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um niðurlagningu menningar- og viðskiptaráðuneytisins.


     1.      Hver er sundurliðun 240 millj. kr. áætlaðs sparnaðar vegna niðurlagningar skrifstofu ráðuneytisstjóra og skrifstofu fjármála og gæðamála menningar- og viðskiptaráðuneytisins sem fjallað er um í minnisblaði ráðuneytisins frá 18. febrúar 2025?
    Í minnisblaði forsætisráðuneytisins til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, dagsettu 18. febrúar sl., kom fram að áætlaður sparnaður vegna niðurlagningar menningar- og viðskiptaráðuneytis næmi alls 362.178.630 kr.
    Fjárveitingar vegna reksturs menningar- og viðskiptaráðuneytis í fjárlögum fyrir árið 2025 námu tæpum 795 millj. kr. án sértekna, auk 8,2 millj. kr. til fjárfestinga. Við bætist launakostnaður vegna embættis ráðherra og stöðu aðstoðarmanna ráðherra sem er greiddur af launalið ríkisstjórnarinnar sem haldið er utan um í forsætisráðuneytinu, eða um 107 millj. kr. Að auki bar Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins ýmsan kostnað, einkum vegna akstursþjónustu við ráðherra.
    Fram kom í minnisblaðinu að áætluð hagræðing vegna reksturs húsnæðis og annars rekstrarkostnaðar sem og niðurlagningar stöðugilda á skrifstofu ráðuneytisstjóra og skrifstofu fjármála og gæðamála næmi um 240 millj. kr., eða 240.178.630 kr. Sá kostnaður skiptist með eftirfarandi hætti:

Laun Rekstrarkostnaður
Skrifstofa ráðuneytisstjóra 109.379.862 13.650.000
Skrifstofa fjármála og gæðamála 52.250.429 7.800.000
Húsnæði og annar rekstrarkostnaður 57.098.339
Samtals 161.630.291 78.548.339 240.178.630

    Í fyrrnefndu minnisblaði kemur einnig fram að gert væri ráð fyrir að tímabundin ráðningarsambönd flyttust til núverandi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis úr menningar- og viðskiptaráðuneyti. Um er að ræða 20% stöðugildi almenns starfsmanns til 31. maí 2025, 25% stöðugildi sérfræðings til 31. júlí 2025 og tímabundinn ráðningarsamning verkefnastjóra í fullri stöðu til 31. júlí 2025. Hagræðing vegna niðurlagningar þessara stöðugilda kemur því til framkvæmda þegar ráðningarsambandinu lýkur. Heildarkostnaður vegna þessara stöðugilda á árinu 2025 er áætlaður 19.248.049 kr.
    Áætla má að sparnaður vegna framangreindrar hagræðingar verði með eftirfarandi hætti árið 2026:

Laun og rekstrarkostnaður menningar- og viðskiptaráðuneytis 240.178.630
Tímabundnum ráðningarsamningum lokið 19.248.049
Laun og rekstrarkostnaður ráðherra og aðstoðarmanna 107.642.472
Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins 15.000.000
Samtals 382.069.151

    Samkvæmt framangreindu er gert ráð fyrir að áætluð heildarhagræðing verði rúmlega 380 millj. kr. á ári frá og með árinu 2026. Taka ber fram að í útreikningum er gert ráð fyrir hagræðingu vegna húsnæðiskostnaðar í tengslum við rekstur menningar- og viðskiptaráðuneytis en fyrirhugað er að nýta húsnæðið undir aðra starfsemi ríkisins.

     2.      Hver er sundurliðun 107 millj. kr. sparnaðar sem hlýst af því að fækka um einn ráðherra og tvo aðstoðarmenn?
    Meðfylgjandi tafla sýnir sundurliðun sparnaðar vegna launa, launatengdra gjalda og starfstengds kostnaðar vegna embættis menningar- og viðskiptaráðherra og tveggja aðstoðarmanna á ársgrundvelli:

Ráðherra Aðstoðarmenn
Laun 29.844.864 40.889.688
Launatengd gjöld 6.573.984 9.333.936
Áætlaður starfstengdur kostnaður 7.500.000 13.500.000
Samtals 43.918.848 63.723.624 107.642.472


     3.      Í hverju felst 15 millj. kr. sparnaður hjá Umbru vegna færri ráðherra?
    Sparnaður hjá Umbru – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins felst einkum í kostnaði í tengslum við rekstur ráðherrabifreiða. Að auki má gera ráð fyrir almennri hagræðingu í tengslum við fækkun stöðugilda, svo sem vegna hugbúnaðarleyfa. Upphaflega var talið að heildarsparnaður Umbru gæti numið um 30 millj. kr. vegna niðurlagningar menningar- og viðskiptaráðuneytis. Hins vegar var ákveðið veita Umbru svigrúm til að ráða starfsmann til sérverkefna sem tengjast sameiginlegri málaskrá Stjórnarráðs Íslands og leiddi það til þess að sparnaður vegna hagræðingar lækkar um 15 millj. kr. Um er að ræða umbótaverkefni sem mun til framtíðar leiða til hagræðingar í rekstri Stjórnarráðsins í heild sinni.

     4.      Hvað felst í þeirri óvissu sem vísað er til í tengslum við niðurlagningu ráðuneytisins? Getur niðurstaðan orðið minni sparnaður vegna niðurlagningar ráðuneytisins?
    Óvíst er hvenær sparnaður vegna húsnæðis kemur til framkvæmda en eins og áður segir er gert ráð fyrir þeim sparnaði í útreikningum. Einnig má gera ráð fyrir ófyrirséðum kostnaði vegna uppsagna á ýmsum þjónustusamningum sem eru háðir uppsagnarfresti.

     5.      Hver eru helstu verkefni starfsmanna þeirra 6,8 stöðugilda sem færast til innan Stjórnarráðsins og hvernig er gert ráð fyrir að finna þeim varanlega stöðu innan kerfisins?
    Alls voru sjö starfsmenn menningar- og viðskiptaráðuneytis í 6,8 stöðugildum fluttir í önnur störf innan Stjórnarráðsins á grundvelli 2. mgr. 7. gr. eða 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996.
    Ráðuneytisstjóri menningar- og viðskiptaráðuneytis var fluttur í embætti ráðuneytisstjóra menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis. Samhliða var ráðuneytisstjóri síðarnefnda ráðuneytisins fluttur í embætti ráðuneytisstjóra félags- og húsnæðismálaráðuneytis en ráðuneytisstjóri þess ráðuneytis hafði þá beðist lausnar úr embætti. Upplýsingafulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytis var fluttur í laust starf verkefnisstjóra áherslumála í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti. Skrifstofustjóri á skrifstofu fjármála og gæðamála í menningar- og viðskiptaráðuneyti var fluttur í laust starf staðgengils skrifstofustjóra í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti. Mannauðsstjóri menningar- og viðskiptaráðuneytis var fluttur í laust starf mannauðsstjóra menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis. Stjórnarráðsfulltrúi í 80% starfi í menningar- og viðskiptaráðuneyti var fluttur í starf sérfræðings í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti sem var laust vegna leyfis starfsmanns.
    Vegna skipulagsbreytinga í forsætisráðuneyti var verkefnastjóra ráðherra í menningar- og viðskiptaráðuneyti boðið starf ritara forsætisráðherra en fjármagn fylgdi ekki þeim flutningi. Þá var skjala- og gæðastjóra menningar- og viðskiptaráðuneytis boðið starf hjá Umbru – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins í tengslum við sérverkefni, m.a. vegna sameiginlegrar málaskrár Stjórnarráðs Íslands. Ekki fylgdi með fjármagn til Umbru vegna þessa en tilfærslan gerði það að verkum að sparnaður vegna hagræðingar varð 15 millj. kr. lægri.

     6.      Hvaða stöðugildi leggjast af og hefur lögmæti áætlaðra uppsagna eða starfsloka verið metið?
    Alls voru 35 stöðugildi í þáverandi menningar- og viðskiptaráðuneyti. Á skrifstofu ráðuneytisstjóra og skrifstofu fjármála og gæðamála voru 7,8 stöðugildi lögð niður. Önnur stöðugildi fylgdu stjórnarmálefnum til viðtökuráðuneyta. Sjá meðfylgjandi töflu:

Fjöldi stöðugilda sem voru lögð niður Fjöldi stöðugilda sem fluttust með stjórnarmálefnum
Menning og fjölmiðlar 11,2
Viðskipti og ferðamál 16
Skrifstofa ráðuneytisstjóra 5
Skrifstofa fjármála og gæðamála 2,8
Samtals 7,8 27,2

    Niðurlagning ráðuneytisins fól að auki sér niðurlagningu ráðherraembættis og stöðu tveggja aðstoðarmanna. Þá var ekki ráðið í lausa stöðu ráðherrabílstjóra á vegum Umbru. Niðurlagning menningar- og viðskiptaráðuneytis leiddi því í heild sinni til fækkunar 11,8 stöðugilda, sjá töflu yfir stöðugildi:

Starfsheiti Fjöldi stöðugilda
Ráðherra 1
Aðstoðarmaður ráðherra 2
Ráðuneytisstjóri 1
Skrifstofustjóri á skrifstofu fjármála 1
Verkefnastjóri ráðherra 1
Upplýsingafulltrúi 1
Skjala- og gæðastjóri 1
Mannauðsstjóri 1
Hagfræðingur 1
Stjórnarráðsfulltrúi 0,8
Bílstjóri ráðherra 1
Samtals 11,8

    Við niðurlagningu á menningar- og viðskiptaráðuneyti var farið að ákvæðum laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, og laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, sem og annarra laga sem gilda við niðurlagningu stofnana. Þess var gætt að réttindi starfsmanna væru virt bæði við niðurlagningu stöðugilda og flutning í starfi.

     7.      Hefur kostnaður við fækkun verkefna við þessar breytingar verið skilgreindur, umfram kostnað vegna starfsmannahalds?
    Stjórnarmálefni sem áður heyrðu undir menningar- og viðskiptaráðuneyti voru annars vegar flutt í nýtt menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og hins vegar í nýtt atvinnuvegaráðuneyti, en verkefnum tengdum stjórnarmálefnum var ekki fækkað.

     8.      Hefur eðlilegur umbreytingarkostnaður verið metinn? Ef svo er, hefur hann verið sundurgreindur, svo sem í flokka eins og húsnæði, aðlögun að nýju umhverfi, húsgögn og fleira?
    Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins áætlar að heildarkostnaður stofnunarinnar vegna breytinga sem urðu á Stjórnarráði Íslands vegna forsetaúrskurðar nr. 4/2025, um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, og forsetaúrskurðar nr. 5/2015, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, hafi verið um 8 millj. kr. en ekki liggja fyrir sundurliðaðar upplýsingar vegna niðurlagningar menningar- og viðskiptaráðuneytis. Umbreytingakostnaður Umbru í tengslum við breytta skipan ráðuneyta fólst einkum í uppsetningu tölvukerfa.
    Fjársýsla ríkisins áætlar heildarkostnað vegna breytinga á framangreindri skipan ráðuneyta vera u.þ.b. 30–35 millj. kr. og fólst hann einkum í breytingum á mannauðs- og bókhaldskerfum. Um var að ræða einskiptiskostnað hjá Fjársýslu ríkisins vegna varanlegra breytinga á bókhaldskerfum sem munu nýtast til framtíðar.
    Ráðgert er að nýta húsnæðið sem menningar- og viðskiptaráðuneyti hafði til umráða undir aðra starfsemi á vegum Stjórnarráðs Íslands en gert er ráð fyrir að sá húsbúnaður sem þar varð eftir verði nýttur undir hana. Hluti húsgagna og tölvubúnaðar var fluttur í atvinnuvegaráðuneyti. Reynt verður eftir föngum að finna not fyrir önnur húsgögn og búnað, t.d. í tengslum við fyrirhugaðan flutning ráðuneyta í húsnæði að Skúlagötu.
    Heildarkostnaður vegna flutningaþjónustu liggur ekki fyrir þar sem ekki allir reikningar hafa borist. Ekki liggja fyrir samanteknar upplýsingar um annan kostnað vegna breytinganna, til dæmis í tengslum við breytt heiti ráðuneyta, en hann er talinn óverulegur. Samkvæmt upplýsingum frá umræddum ráðuneytum eru breytingar og aðlaganir í fjárlagakerfum vel á veg komnar.

     9.      Hafa tímabundin áhrif flutninga starfsfólks verið metin að einhverju leyti, t.d. ef fresta þarf ákvörðunum eða verkefnum vegna illa undirbúins flutnings?
    Samkvæmt upplýsingum frá þeim ráðuneytum sem tóku við stjórnarmálefnum menningar- og viðskiptaráðuneytis hefur flutningur gengið vel og eru tímabundin áhrif nær engin en þeir starfsmannahópar sem um ræðir hafa aðlagast vel. Fram að sameiningu þann 15. mars annaðist starfsfólk þau verkefni sem það hafði með höndum í umræddum ráðuneytum og eftir það tímamark annaðist það sömu verkefni í nýju ráðuneyti.

     10.      Er gert ráð fyrir frekari aðgerðum til hagræðingar í kjölfar niðurlagningar menningar- og viðskiptaráðuneytisins?
    Á fundi ríkisstjórnar 4. mars sl. voru kynntar tillögur starfshóps um hagræðingu í ríkisrekstri eftir víðtækt samráð við almenning og stofnanir ríkisins. Samþykkt var að vinnuhópur forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis, sem starfaði með hagræðingarhópnum, starfi áfram og leggi fram frekari tillögur í samráði við öll ráðuneyti. Ráðuneytum var falið að vinna nánar að útfærslu og framkvæmd tillagna á kjörtímabilinu. Þessi vinna stendur yfir og mun fela í sér margvíslega hagræðingu í rekstri ríkisins á næstu árum í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, m.a. í gegnum sameiningar og fækkun stofnana, sjóða, nefnda og ráða á vegum ríkisins. Frekari breytingar á skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands eru þó ekki fyrirhugaðar.