Ferill 308. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 413  —  308. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um stoðþjónustu.


     1.      Hversu margir starfsmenn á vegum ráðuneytisins starfa við stoðþjónustu? Svar óskast sundurliðað eftir ráðuneyti og starfseiningum.
    Ráðuneytið samanstendur af fimm skrifstofum þar sem 60 starfsmenn starfa. Það er hlutverk skrifstofu fjármála og innri þjónustu samkvæmt skipuriti að styðja við innra starf og stjórnendur ráðuneytisins, m.a. rekstur ráðuneytisins, skjala- og gæðamál, mannauðsmál, upplýsingamál, innkaup, samskipti við stofnanir og eftirlit með þeim, skiptingu á fjárhagsramma og vinnu við fjármálaáætlun og fjárlagagerð ásamt framkvæmd og eftirfylgni fjárlaga. Á sviðinu eru samtals 14 stöðugildi. Verkefnin eru fjölbreytt, fara þvert á ráðuneytið og mjög breytilegt er að hvað miklu leyti verkefnin falla eingöngu undir stoðþjónustu.

     2.      Að hve miklu leyti nýta viðkomandi einingar sér stoðþjónustu Fjársýslu ríkisins?
    Ráðuneytið nýtir sér bókhalds- og greiðsluþjónustu, launaþjónustu og þjónustu kjara- og mannauðssviðs Fjársýslu ríkisins. Einnig notar ráðuneytið aðra þjónustu Fjársýslunnar eftir því sem þörf er á.