Ferill 341. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 417  —  341. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um lífeyrissjóðakerfið.

Frá Sigurði Inga Jóhannssyni.


     1.      Hversu margir lífeyrissjóðir starfa nú á Íslandi?
     2.      Hver var heildarrekstrarkostnaður lífeyrissjóðanna á síðustu fimm árum, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hvert er meðalhlutfall rekstrarkostnaðar af heildareignum sjóðanna fyrir síðasta heila reikningsár?
     4.      Hefur ráðherra látið vinna mat á því hvort frekari sameining lífeyrissjóða gæti skilað aukinni hagkvæmni og lægri rekstrarkostnaði fyrir sjóðfélaga?
     5.      Er ráðherra reiðubúinn að beita sér fyrir lagabreytingu um lágmarksstærð lífeyrissjóða með það að markmiði að sjóðirnir verði ekki fleiri en fimm á landsvísu?


Skriflegt svar óskast.