Ferill 345. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 423  —  345. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um úttekt á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Frá Bryndísi Haraldsdóttur.


     1.      Hefur ráðherra látið gera úttekt á framkvæmd laga nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, með hliðsjón af áætlun stjórnvalda vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka 2021–2023 og í samræmi við það sem lagt var til í áliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar á þskj. 2037 á 154. löggjafarþingi, þar sem gert var ráð fyrir að slík úttekt færi fram samhliða endurskoðun á áhættumati ríkislögreglustjóra?
     2.      Ef svo er, hvenær hófst vinna við úttektina, hverjir annast hana og hvenær er gert ráð fyrir að niðurstöður hennar liggi fyrir?
     3.      Ef svo er ekki, hver er ástæða þess að úttektin hefur ekki farið fram?


Skriflegt svar óskast.