Ferill 292. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 430 — 292. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um aldurstengd réttindi.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hyggst ráðherra beita sér fyrir endurskoðun aldurstengdra réttinda í lögum og reglum, á mismunandi málefnasviðum, vegna hækkandi lífaldurs og bættrar heilsu eldra fólks? Ef svo er, hvað hyggst ráðherra gera?
Engin aldurstengd réttindi er að finna í lögum og reglum á málefnasviði forsætisráðuneytisins.
Áherslur ríkisstjórnarinnar í málefnum eldra fólks koma fram í stefnuyfirlýsingu hennar. Þar segir m.a. að ríkisstjórnin muni hækka ellilífeyri á hverju ári til samræmis við hækkun launavísitölu en þó aldrei minna en verðlag. Einnig verður almennt frítekjumark ellilífeyris hækkað í skrefum í 60.000 kr. á mánuði, tekið verður upp frítekjumark ellilífeyris vegna vaxtatekna og dregið úr skerðingum lífeyris vegna atvinnutekna. Þá verður sérstökum hagsmunafulltrúa eldra fólks falið að standa vörð um réttindi þess.
Áherslur ríkisstjórnarinnar á málefni eldra fólks birtast einnig í skipun ráðherranefndar um öldrunarþjónustu sem hefur það hlutverk að efla samráð og samhæfingu meðal þeirra ráðuneyta sem vinna að öldrunarþjónustu innan Stjórnarráðsins. Nefndinni er einnig ætlað að vera vettvangur fyrir stefnumótun og umræður um aðgerðir á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu er varðar eldra fólk.
Ekki hefur átt sér stað umræða á vettvangi ríkisstjórnarinnar um mögulegar breytingar á aldurstengdum réttindum.